Við erum semsagt held ég búin að prufa allt sem við höfum aðgang að hérna, til að róa þá litlu.
-Minifom
-Dicycloverine Hydrochlorid
-ColicCalm (hómópataformúlu)
-Jurtate
-Svæðanudd
-Shiatsu
-Þrýstipunktanudd
-Heilun og reiki.
Hún sofnar jú alltaf á endanum, en er það til marks um að eitthvað af þessu sé að virka.... nei held ekki. Það sem hefur virkað best hingað til er þessi "burðarpoki" sem ljósmóðirin lánaði okkur. Sem er auðvitað gott og blessað. ColicCalm virðist virka í nokkrar mínútur eftir að það hefur verið gefið, en svo fer allt í háaloft aftur. Hér er því eiginlega kominn svona doði í mann og maður þarf að fara gera það sem margir barnalæknar tala um, en það er einfaldlega að láta hana bara gráta!! Leggja hana bara frá sér í smá stund á meðan maður er að ná geðheilsunni aftur, svo tekur maður hana og huggar í næstu umferð. Þetta gerði ég í nótt og gaf góða raun. Láta
hana bara afskiptalausa í svona 5-10 mín og taka hana svo upp og gefa snuð. Þá steinsofnaði hún allavega. Það má líklegast rífast eitthvað um þessar aðferðir, en það er til lítils, þar sem svona er þetta bara.
Ég þakka svo falleg orð í kommentakerfinu hjá mér, maður er að stíga fyrstu skrefin í þessu barnastandi og það er gaman og gott að vita að maður er ekki einn í þessu.
Rakst annars á gamla góða mynd úr Kvistholti sem fær mig alltaf til að brosa, ég birti hana hér fyrir neðan og vona að fólk hafi jafn gaman af henni og ég :)
Svo eru að sjálfsögðu komnar inn JÓLAMYNDIR héðan frá Kurfürsten.



