7.12.08
Nýjar myndir,
Ég set svo inn link á myndir hérna vinstramegin á síðuna svo það sé sem styst að fara.
6.12.08
Fyrsti dagurinn búinn
Fyrst langar mig nú að þakka öllum sem sendu okkur hamingjuóskir í kommentakerfinu, slíkt er alveg stórkostlegt og reyndar alveg ótrúlegt að sjá hvað margir eru búnir að vera fylgjast með þessu!!
Við erum búin að opna nýja myndasíðu sem verður sérstaklega notuð til þess að halda utan um myndir af ungfrúnni, svo að þeir sem ekki komast í heimsókn, geti allavega verið aðeins með okkur í þessu :)
Nú svo var ég að misreikna aðeins áheyrnarprufuna hjá Staats oper :) Hún er víst á morgun, en ekki í dag.... sem er eiginlega bara fínt, þar sem ég er ekki alveg tilbúinn í dag :)
NÝJA MYNDASÍÐAN er á slóðinni:
http://picasaweb.google.com/egilsdaughter

5.12.08
Eflaust eru einhverjir búnir að bíða eftir þessu bloggi :)
En loksins er það búið, loksins er það byrjað.


Í nótt kl 2:24 kom í heiminn lítil stúlka, 3595 gr að þyngd eða rétt rúmar 14Merkur(fyrir þá sem verða endilega að hafa það í gömlu gullvigtinni sem er bara notuð á Íslandi) 51.cm á lengd er stúlkan, og hin rólegasta miðað við allt. Hjartsláttur barnsins í lok fæðingar hélst í stöðugum 130 slögum, sem er bara nokkuð gott, og virðist þetta jafnaðargeð bara fylgja henni...... allavega enn sem komið er :)
Soffía stóð sig eins og hetja og kláraði dæmið á rétt rúmum 4 tímum, sem er nú bara nokkuð gott held ég, maður var farinn að búa sig undir miklu meiri tíma. Hún er allavega hress og kát, en nokkuð þreytt eins og gefur að skilja. Fæðinging fór fram í vatni, sem var nú ekki alveg eitthvað sem við vorum beint búin að ákveða, en mér skilst að það hafi munað mjög miklu fyrir Soffíu. Þó vatnið dragi ekki úr verkjum, þá hjálpar það mikið til við slökun milli verkja og er þægilegri fyrir barnið..... það segja allavega ljósmæður :)
Flestir eru nú líklegast búnir að frétta þetta á einn eða annan hátt, en hér kemur semsagt "opinbera" yfirlýsingin, ásamt mynd af ungfrúnni sem erfa mun auðæfin.


Stoltur faðir er sá sem bloggar núna.
4.12.08
Að standa og bjóða aðstoð sína en geta lítið gert.
Þetta er ekki það auðveldasta, að horfa upp á konuna sína þurfa að upplifa, nánast eina, það sem í garð nú gengur. Þetta er semsagt byrjað og við á leið upp í FERA. Hversu langan tíma það mun svo taka er afstætt held ég.
Ég er að upplifa mig, í fyrstaskipti á æfinni, eins og illagerður hlutur sem hefur ekki tilgang í þessu verki, þó ég viti reyndar vel að það er ekki rétt. Hlutverkið, þó lítið sé, er í raun risastórt.
Það er skrítið að vera nánast áhorfandi að þessu öllusaman, það er skrítið að einbeita sér svona sterkt, maður ætti að nota það í söngnum....... kannski ég fari nú að gera það loksins :)
Allavega, frúin kvelst og ég blogga.... er það eðlilegt?? hver veit nema sá sem allt veit. Ég er allavega tilbúinn og nú leggjum við af stað. Ég er nokkuð öruggur um að þetta gerist nú í nótt, þ.e 5.desember 2008 kreppuveturinn mikla, fæðist sá sem mun erfa ríkidæmi Egils og Soffíu, krónprins/essan kemur til að frelsa oss frá illu..... hvað sem það nú þýðir :)
Hugsanir verðandi föðurs hafa nú tekið yfirhöndina..........
Í næsta bloggi verð ég titlaður faðir Egill.
Nýja barnið....
...er ekki enn komið í heiminn :)
Vorum semsagt að koma úr seinna tékki í dag og þar eru samdrættir orðnir ansi þéttir, þó þeir séu ekki sterkir ennþá, en það ber vott um það að nú styttist ískyggilega í að eitthvað gerist.
Ljósmóðirin segir að það kæmi henni ekki á óvart þó þetta fari af stað seint í kvöld eða nótt.
Ef ekki þá er það bara mæta með orkuna og góða skapið upp í FERA í fyrramálið, þar sem frúnni verður gefið efni sem örvar framleiðslu oxytócíns á 4 tíma fresti þangað til barnið fæðist. Ég mæti allavega með nóturnar mínar og lappann, og svo þarf maður bara að eyða tímanum í að horfa á þætti og læra fyrir laugardag.
Birti hérna eina mynd frá því rétt áðan, þegar ljósmóðirn var að stinga nálum í Soffíu til að hjálpa með samdrætti og verki, á meðan hún var í cardiotocograph. Ekki bjóst ég við að sjá S í nálarstungum, en svona er Berlín í dag.
Upp á deild og heim aftur
Hentumst upp í FERA í morgun, þar sem hormóninu prostaglandín var beitt til að fá eitthvað til að gerast. Það fór eitthvað í gang við það, en hvort það sé nóg á svo eftir að koma í ljós.
Við erum því komin heim núna aftur til að slaka á og undirbúa kvöldið/nóttina/morgundaginn. Eigum að mæta uppeftir aftur kl 18.
meira síðar......
2.12.08
Stressið magnast
Eins og lesendur þessarar síðu átta sig líklegast á þá er enn ekkert barn komið í heiminn, en það er væntanlegt. Átætlaður komutími er fimmtudagur og í allrasíðasta lagi föstudagur. Þetta er svosem ágætt, nema kannski fyrir þá staðreynd að ég er að fara í mjög stóra audition á laugardaginn. Það verður ekki áhugavert að mæta lítið sofin í þá þrekraun! EN eins og ég hef áður sagt, maður verður bara að reyna að gera þetta eins og best getur orðið miðað við aldur og fyrri störf.
Í gærkvöldi skellti ég mér á lokakvöld í keppni í klassískum söng hérna í þýskalandi. Þessi keppni er eingöngu fyrir Þjóðverja, og er sú stærsta sinnar tegundar í þýskalandi. Þarna keppa nemendur allastaðar af landinu. Keppnin fór fram í Deutsche Oper, og við sátum nánast aftast og efst í húsinu, en sáum vel. Þegar maður situr svona aftarlega sér maður í raun hversu vel söngvarar berast, sem er nú eitt af því allra mikilvægasta sem söngvari þarf að hafa. Og viti menn, það voru tveir söngvarar þarna sem bárust eitthvað í þessu stóra óperuhúsi, annarsvegar var stelpa sem ég söng með í Fledermaus um daginn og hinsvegar var það sú sem vann, og hún átti það svo sannarlega skilið, fín rödd, þó ekkert sérstaklega spennandi, en mjög fín. Auðvitað er það ákveðin standard að komast í svona keppni, það ber vott um vinnusemi og mikla tilfinningu fyrir tónlist og flutningi hennar, sem flestir keppenda höfðu gott vald á. Strákarnir í keppninni voru sérstaklega illa til fara raddlega og ég skil bara ekkert í því hvernig í ósköpunum þessir menn komust áfram! Ég get reyndar eftir þessa orðahríð bara vonað að mín rödd muni berast í komandi áheyrnarprufum, og að þetta sé nógu gott hjá mér. Ég set sjálfan mig að sjálfsögðu á sama standard og ég ætlast til að af öðrum sem ég horfi á, annað væri bara fásinna. Mér skils á fólki sem þekkir til að þetta sé hin svokallaði "þýski skóli", þar sem mikil áhersla er lögð á tónlistarlega hæfni og ákveðna fegurð, sem virðst vera fólgin í því að syngja voðalega létt og veikt, og skv því sem ég sá í gær virkar það bara alls ekki!! Það er mikilvægara að leyfa hverri rödd að vera eins og hún er og reyna að ná fram þessu svokallaða "klangi", eða fókus í röddinni. Ef þetta er ekki til staðar, þá skiptir bara engu máli hvað þú ert með fallega rödd, ef þú berst ekki yfir hljómsveit, þá þarftu eitthvað að endurskoða. Ég ítreka, ég veit ekkert hvort ég get þetta sjálfur en ég veit að það sem ég sá í gær var ekki rétt. Og endaði á að vera mjög óspennandi fyrir vikið.
Jæja, þá er að halda áfram daglegu lífi, fer í tíma hjá Janet seinnipartinn, þann fyrsta í rúmar 3 vikur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)