Ákvað að bregða mér í kvikmyndahús í kvöld til að reyna að dreifa huganum fá áheyrnarprufunni á morgun. Ég átti frímiða á MysteryMovie hjá Cinestar, og ákvað því að drífa mig með Daníel norska, Gunnari og frú. Yfirleitt hef ég nú séð ágætis myndir þarna, en það sem var í boði var svo lélegt að ég fór eftir 5 mínútur! Þeir sem sjá sérstaka ástæðu til að tuða yfir því að ef ég sá bara 5 mínútur af myndinni áður en ég ákvað að fara, þeir geta bara átt sig og sínar skoðanir. Ég er orðin það sjóaður í kvikmynda áhorfi að ég get í 90% tilfella sagt til um skemmtanagildi myndarinnar á fyrstu mínútunum, hin 10% dæma sig sjálf með leikaravali, leikstjóra og tónlist í byrjun myndar, auk þess hafði ég séð trailerinn einhverju áður og þá þurfti ég að hafa mig allan við til að æla ekki á hausinn á manneskjunni sem sat fyrir framan mig. Þessi mynd sem var sýnd í kvöld fékk semsagt 0 af 10 mögulegum hjá mér. Myndin sem um ræðir heitir "Vicky Cristina Barcelona" og er eftir leiðindagaurinn Woody Allen, og þar er eiginlega myndin algerlega búin að dæma sig. Hún er að fá fína dóma á IMDB, en fínir dómar segja ekkert um skemmtanagildið, þeir segja bara til um hversu "áhugaverð" myndin er, en sá skali er bara ekki til hjá mér, þar sem ég fer fyrst og fremst eftir skemmtanagildi.
Á morgun er svo áheyrnarprufa fyrir BBC keppnina, og ég veit ekki alveg í hvaða ástandi ég er núna, er einhvernvegin ekki mikið stressaður, en veit að það á eftir að koma. Ég kann mitt mjög vel, og verð bara að treysta því að röddin verði þarna á morgun, og ég hiti mig rétt upp, auk þess að hafa stjórn á stressinu.
Hingað kom svo ljósmóðirin okkar í morgun og fór yfir ýmis ráð sem hægt er að nota til að koma fæðingu af stað, og sagði okkur í leiðinni að þegar konur fara framyfir, þá fer fæðing oftast af stað svona 9-12 eftir settan dag, sem er svosem gott og blessað. Soffía þorir núna ekki að nota neitt af ráðum ljósmóðurinnar, þar sem ég er að fara í áheyrnarprufuna á morgun, og þetta má alls ekki fara af stað á þeim tíma! Þannig er bara það. En svo má þetta nú fara að gera sig, ef þetta fer ekki af stað í kvöld, þá eru litlar líkur á að það gerist yfirhöfuð fyrr en annaðkvöld, þar sem fæðingar fara yfirleitt af stað seinnipart og á kvöldin. Bara gaman að því.
Meira var það ekki í bili, nú er ég farinn að horfa á eitthvað og svo að sofa. Hugsið nú til mín á morgun kl 15:30 (14:30 að IS tíma)