4.12.08

Að standa og bjóða aðstoð sína en geta lítið gert.

Þetta er ekki það auðveldasta, að horfa upp á konuna sína þurfa að upplifa, nánast eina, það sem í garð nú gengur.  Þetta er semsagt byrjað og við á leið upp í FERA.   Hversu langan tíma það mun svo taka er afstætt held ég.

Ég  er að upplifa mig, í fyrstaskipti á æfinni, eins og illagerður hlutur sem hefur ekki tilgang í þessu verki, þó ég viti reyndar vel að það er ekki rétt.  Hlutverkið, þó lítið sé, er í raun risastórt. 

Það er skrítið að vera nánast áhorfandi að þessu öllusaman, það er skrítið að einbeita sér svona sterkt, maður ætti að nota það í söngnum....... kannski ég fari nú að gera það loksins :)

Allavega, frúin kvelst og ég blogga.... er það eðlilegt??  hver veit nema sá sem allt veit.   Ég er allavega tilbúinn og nú leggjum við af stað.  Ég er nokkuð öruggur um að þetta gerist nú í nótt, þ.e 5.desember 2008 kreppuveturinn mikla, fæðist sá sem mun erfa ríkidæmi Egils og Soffíu, krónprins/essan kemur til að frelsa oss frá illu..... hvað sem það nú þýðir :)

Hugsanir verðandi föðurs hafa nú tekið yfirhöndina..........

Í næsta bloggi verð ég titlaður faðir Egill.

Nýja barnið....

...er ekki enn komið í heiminn :)

Vorum semsagt að koma úr seinna tékki í dag og þar eru samdrættir orðnir ansi þéttir, þó þeir séu ekki sterkir ennþá, en það ber vott um það að nú styttist ískyggilega í að eitthvað gerist. 
Ljósmóðirin segir að það kæmi henni ekki á óvart þó þetta fari af stað seint í kvöld eða nótt.

Ef ekki þá er það bara mæta með orkuna og góða skapið upp í FERA í fyrramálið, þar sem frúnni verður gefið efni sem örvar framleiðslu oxytócíns á 4 tíma fresti þangað til barnið fæðist.   Ég mæti allavega með nóturnar mínar og lappann, og svo þarf maður bara að eyða tímanum í að horfa á þætti og læra fyrir laugardag.

Birti hérna eina mynd frá því rétt áðan, þegar ljósmóðirn var að stinga nálum í Soffíu til að hjálpa með samdrætti og verki, á meðan hún var í cardiotocograph.  Ekki bjóst ég við að sjá S í nálarstungum, en svona er Berlín í dag.
 

Upp á deild og heim aftur

Hentumst upp í FERA í morgun, þar sem hormóninu prostaglandín var beitt til að fá eitthvað til að gerast.  Það fór eitthvað í gang við það, en hvort það sé nóg á svo eftir að koma í ljós.

Við erum því komin heim núna aftur til að slaka á og undirbúa kvöldið/nóttina/morgundaginn. Eigum að mæta uppeftir aftur kl 18.  

meira síðar......


2.12.08

Stressið magnast

Eins og lesendur þessarar síðu átta sig líklegast á þá er enn ekkert barn komið í heiminn, en það er væntanlegt.  Átætlaður komutími er fimmtudagur og í allrasíðasta lagi föstudagur.   Þetta er svosem ágætt, nema kannski fyrir þá staðreynd að ég er að fara í mjög stóra audition á laugardaginn.  Það verður ekki áhugavert að mæta lítið sofin í þá þrekraun!   EN eins og ég hef áður sagt, maður verður bara að reyna að gera þetta eins og best getur orðið miðað við aldur og fyrri störf.

Í gærkvöldi skellti ég mér á lokakvöld í keppni í klassískum söng hérna í þýskalandi.  Þessi keppni er eingöngu fyrir Þjóðverja, og er sú stærsta sinnar tegundar í þýskalandi.  Þarna keppa nemendur allastaðar af landinu.   Keppnin fór fram í Deutsche Oper, og við sátum nánast aftast og efst í húsinu, en sáum vel.  Þegar maður situr svona aftarlega sér maður í raun hversu vel söngvarar berast, sem er nú eitt af því allra mikilvægasta sem söngvari þarf að hafa.   Og viti menn, það voru tveir söngvarar þarna sem bárust eitthvað í þessu stóra óperuhúsi, annarsvegar var stelpa sem ég söng með í Fledermaus um daginn og hinsvegar var það sú sem vann, og hún átti það svo sannarlega skilið, fín rödd, þó ekkert sérstaklega spennandi, en mjög fín.   Auðvitað er það ákveðin standard að komast í svona keppni, það ber vott um vinnusemi og mikla tilfinningu fyrir tónlist og flutningi hennar, sem flestir keppenda höfðu gott vald á.   Strákarnir í keppninni voru sérstaklega illa til fara raddlega og ég skil bara ekkert í því hvernig í ósköpunum þessir menn komust áfram!    Ég get reyndar eftir þessa orðahríð bara vonað að mín rödd muni berast í komandi áheyrnarprufum, og að þetta sé nógu gott hjá mér.  Ég set sjálfan mig að sjálfsögðu á sama standard og ég ætlast til að af öðrum sem ég horfi á, annað væri bara fásinna. Mér skils á fólki sem þekkir til að þetta sé hin svokallaði "þýski skóli", þar sem mikil áhersla er lögð á tónlistarlega hæfni og ákveðna fegurð, sem virðst vera fólgin í því að syngja voðalega létt og veikt, og skv því sem ég sá í gær virkar það bara alls ekki!!   Það er mikilvægara að leyfa hverri rödd að vera eins og hún er og reyna að ná fram þessu svokallaða "klangi", eða fókus í röddinni.  Ef þetta er ekki til staðar, þá skiptir bara engu máli hvað þú ert með fallega rödd, ef þú berst ekki yfir hljómsveit, þá þarftu eitthvað að endurskoða.   Ég ítreka, ég veit ekkert hvort ég get þetta sjálfur en ég veit að það sem ég sá í gær var ekki rétt.  Og endaði á að vera mjög óspennandi fyrir vikið.

Jæja, þá er að halda áfram daglegu lífi, fer í tíma hjá Janet seinnipartinn, þann fyrsta  í rúmar 3 vikur. 

30.11.08

Mikið sungið, mikil þreyta en gaman

Þetta mega svosem alveg vera einkunarorð næstu daga.   Ég söng semsagt í áheyrnarprufu í fyrradag og svo á tónleikum í gær.  Ég tel að það hafi gengið mjög vel, og er nokkuð sáttur við útkomuna, þó vissulega megi alltaf gera mun betur, ég stefni þá að því næsta laugardag milli 16:30 og 20:00 þegar ég fer í áheyranarprufu hjá Staatsoper, að gera ennþábetur, og þá verður maður að vera í toppformi!   Það verður vissulega gaman að sjá hvað koma barns 1-2 dögum áður hefur að segja um það.......  úff það kemur bara þegar það kemur og það verður sem verða vill.   

Ég er að hendast til Wolfgang núna á eftir nokkrar mínútúr, ég fór semsagt líka í tíma hjá honum í gær :)  er búinn að eyða um 400 Evrum í söng í þessum mánuði, þetta kostar mikið og vonandi nær þetta nú að standa undir sér bráðum.  En komandi námslán ná kannski að bjarga einhverju, þar sem núverandi laun ná rétt að dekka mat og leigu, eitthvað minna verður það í mars, en svona er það bara, ekki vera vanþakklátur fyrir það sem maður þó hefur.

Hérna fyrir neðan birti ég svo myndband frá því í gærkvöldi, þar sem ég er að syngja hina fáránlega erfiðu "Di rigori armato il seno" úr Der Rosenkavalier eftir Richard Strauss.  Fyrir þá sem ekki vita þá er þessi aría eina tenórhlutverkið í þessari 6 tíma löngu óperu... ansi magnað ekki satt :)


28.11.08

Dagurinn í dag var merkilegur dagur

Ég vaknaði eldsnemma af sjálfsdáðum, sem gerist nú yfirleitt þegar eitthvað mikið er framundan, og það var ekki barnið, heldur var það áheyrnarprufan mikla fyrir BBC.    Ekki er ég viss um hvort það gekk vel eða illa, en mér leið allavega ágætlega og held ég hafi skilað því sem ég þurfti að skila á sómasamlegan hátt.  Sá sem var að hlusta virtist ánægður og þakkaði mér kærlega fyrir söngin, hann er breskur, og því veit maður ekkert hvaða stöðu maður er í :)   Ég var með tilbúnar 3 aríur, og ég söng fyrstu og erfiðustu aríuna ágætlega held ég, svo bað hann um næstu aríu og eftir það þurfti hann ekki að heyra meira, hvort sem það var afþví að þetta var svo gott eða svo hræðilegt á eftir að koma í ljós.  Ég hentist svo í að fá mér einn ÖL með strák sem er að syngja við Deutsche Oper, hann var einmitt á undan mér í röðinni fyrir prufuna.  Þekkti hann lítillega úr síðasta partíi hjá Janet.  Það var voða fínt.

Svo hentist ég heim þar sem Soffía var búin að kaupa handa mér litla freyðivín og Lindtt súkkulaði, hvað er hægt að biðja um meira?  Kannski að barnið manns farið að koma í heiminn??  Jahh sveimérþá.   Þegar ég var svo að sötra síðustu dropana af freyðivíninu fékk ég símtal sem mun líklega breyta framtíðinni umtalsvert, en það var símtal frá núverandi atvinnuveitanda mínum, þar sem var verið að segja mér upp störfum.   Jahhá, mér finnst einhvernvegin að ég hafi átt von á þessu í einhvern tíma og það hlaut að koma að þessu.   Ég hef ákveðið að taka þessu sem jákvæðum hlut, því við búum svo vel hérna að skulda ekkert, og eiga ekkert, því erum við kannski ekki í eins mikilli hættu með að missa allt, að auki fæ ég 6 mánaða fæðingarorlof, og það ætti að vera nóg til að ég geti allavega fengið einhverja vinnu hérna úti, og farið alfarið frá því ömurlega ástandi sem nú ríkir á Íslandi.

Óléttuhornið:
Ekkert að gerast, þýðingarlaust að vera eitthvað að ræða það frekar :)

27.11.08

Sumir eru bara leiðinlegri og geðveikari en aðrir

Ákvað að bregða mér í kvikmyndahús í kvöld til að reyna að dreifa huganum fá áheyrnarprufunni á morgun.  Ég átti frímiða á MysteryMovie hjá Cinestar, og ákvað því að drífa mig með Daníel norska, Gunnari og frú.  Yfirleitt hef ég nú séð ágætis myndir þarna, en það sem var í boði var svo lélegt að ég fór eftir 5 mínútur!  Þeir sem sjá sérstaka ástæðu til að tuða yfir því að ef ég sá bara 5 mínútur af myndinni áður en ég ákvað að fara, þeir geta bara átt sig og sínar skoðanir.  Ég er orðin það sjóaður í kvikmynda áhorfi að ég get í 90% tilfella sagt til um skemmtanagildi myndarinnar á fyrstu mínútunum, hin 10% dæma sig sjálf með leikaravali, leikstjóra og tónlist í byrjun myndar, auk þess hafði ég séð trailerinn einhverju áður og þá þurfti ég að hafa mig allan við til að æla ekki á hausinn á manneskjunni sem sat fyrir framan mig.   Þessi mynd sem var sýnd í kvöld fékk semsagt 0 af 10 mögulegum hjá mér.  Myndin sem um ræðir heitir "Vicky Cristina Barcelona" og er eftir leiðindagaurinn Woody Allen, og þar er eiginlega myndin algerlega búin að dæma sig.  Hún er að fá fína dóma á IMDB, en fínir dómar segja ekkert um skemmtanagildið, þeir segja bara til um hversu "áhugaverð" myndin er, en sá skali er bara ekki til hjá mér, þar sem ég fer fyrst og fremst eftir skemmtanagildi.

Á morgun er svo áheyrnarprufa fyrir BBC keppnina, og ég veit ekki alveg í hvaða ástandi ég er núna, er einhvernvegin ekki mikið stressaður, en veit að það á eftir að koma.  Ég kann mitt mjög vel, og verð bara að treysta því að röddin verði þarna á morgun, og ég hiti mig rétt upp, auk þess að hafa stjórn á stressinu.

Hingað kom svo ljósmóðirin okkar í morgun og fór yfir ýmis ráð sem hægt er að nota til að koma fæðingu af stað, og sagði okkur í leiðinni að þegar konur fara framyfir, þá fer fæðing oftast af stað svona 9-12 eftir settan dag, sem er svosem gott og blessað.  Soffía þorir núna ekki að nota neitt af ráðum ljósmóðurinnar, þar sem ég er að fara í áheyrnarprufuna á morgun, og þetta má alls ekki fara af stað á þeim tíma!  Þannig er bara það.  En svo má þetta nú fara að gera sig, ef þetta fer ekki af stað í kvöld, þá eru litlar líkur á að það gerist yfirhöfuð fyrr en annaðkvöld, þar sem fæðingar fara yfirleitt af stað seinnipart og á kvöldin.  Bara gaman að því.

Meira var það ekki í bili, nú er ég farinn að horfa á eitthvað og svo að sofa.  Hugsið nú til mín á morgun kl 15:30 (14:30 að IS tíma)