Ég er nú komin í það að sækja um námslán, þar sem tekjurnar duga orðið varla fyrir söngtímum, undirleikstímum. Staða krónunar gerir það að verkum að ég er ekki bara að fá minna útborgað, heldur hefur allt hækkað í verði líka, þannig að þetta er tvöfallt tap. EN ég er svosem ekki einn um það. Ég ætla því að láta á það reyna hvort ég geti allavega fengið skólagjalda og makalán, þar sem það er nú barn á leiðinni og ég fæ alveg örugglega ekki framfærslulán, þar sem ég er á tekjum sem sannarlega ná að dekka framfærslu. En þegar barnið kemur, þá er ég hræddur um að það dugi ekki til. En sjáum hvað setur.
Janet Williams sagði mér frá tenór hér í Berlín sem heitir Wolfgang Millgramm, hann er búinn að syngja í rúm 25 ár og er enn að. Janet sagðist hafa heyrt góða hluti um hann og ég ætti endilega að prufa að hafa samband. Sem ég og gerði og fór í tíma hjá honum í dag. Maðurinn er mikill snillingur, þó ber að taka öllu svona með varúð, en hann lét mig ekki bara byrja að syngja eitthvað heldur gerðum við allskyns æfingar allan tímann sem miða að því að minka þrýstinginn á röddinni, það er í raun alveg stór magnað hvað það skiptir miklu máli. Ég er loksins farinn að skilja hvað er átt við með að syngja á loftstraumnum en ekki þrýstingi!! Þetta er HRIKALEGA mikilvægt atriði og ég hélt alltaf að ég væri að gera þetta rétt, en svo er aldeilis ekki! Þetta er í raun það sama og David og Janet ásamt fleirum hafa verið að segja, EN, ég bara skildi það allt í einu í dag. Að auki lét hann mig fá æfingar til að gera heima, sem er alltaf gott. Þetta er í raun fyrsta skipti sem mér hefur verið sett beint fyrir í söngnámi :) Ég er svo að fara hitta hann aftur í október, og þá ætla ég sko að vera búinn að negla þetta algerlega til helvíts! Fínt að hafa markmið.
Nú það styttist í heimsókn frá Íslandi, og er það vissulega tilhlökkunarefni. Það styttist líka í næsta "geburtsvorbereitungskurs", sem er ekki eins mikið tilhlökkunarefni. Við fórum þangað í fyrsta skipti af 7!! í síðustu viku, og lærðum á 2 tímum það sem ég þegar kann og gat kynnt mér á 5 mínútum á youtube. Að auki var þessi miður gáfulega pólsk/þýska kona að kenna mér hvernig á að nudda mjóbakið...... hmm, reyndar veit hún ekki að ég er lærður nuddari, og ég ætla svosem ekkert að vera ljóstra því upp, en þetta er pirrandi, En ætli maður láti sig ekki bara hafa það þar sem við erum búin að borga fyrir þetta helvíti.
Annars er það að frétta af tölvuleikjamálum að ég er búinn að klára Assassins Creed (sem var bara nokkuð góður) og The Devil may Cry 4(sem var líka mjög góður) . Nú eru nýjast Crysis leikurinn það sem er á náttborðinu hjá mér, og það er sko alls ekki slæm útrás það.
Óléttuhornið:
Þar gengur bara allt mjög vel, og styttist í skoðun hjá Dr. Rott. Það er alltaf tilhlökkunarefni, þar sem manni gefst kostur á að greina kynið :) Sem ég ætla mér að vera búinn að komast að áður en barnið fæðist :) Kúlan stækkar sjáanlega nánast á hverjum degi og Soffía hefur það bara rosalega gott, engar hryllingssögur enn allavega. Við erum búin að panta far til Íslands í febrúar næstkomandi og er ætlunin að reyna skíra á þeim tíma. Að sjálfsögðu vitum við ekkert hvernig það allt fer, en vonandi gengur þetta bara áfram í sögu eins og það hefur gert hingaðtil.
Þar gengur bara allt mjög vel, og styttist í skoðun hjá Dr. Rott. Það er alltaf tilhlökkunarefni, þar sem manni gefst kostur á að greina kynið :) Sem ég ætla mér að vera búinn að komast að áður en barnið fæðist :) Kúlan stækkar sjáanlega nánast á hverjum degi og Soffía hefur það bara rosalega gott, engar hryllingssögur enn allavega. Við erum búin að panta far til Íslands í febrúar næstkomandi og er ætlunin að reyna skíra á þeim tíma. Að sjálfsögðu vitum við ekkert hvernig það allt fer, en vonandi gengur þetta bara áfram í sögu eins og það hefur gert hingaðtil.
Þá var það ekki fleira að sinni........ verið þið sæl.



Eins og sjá má á þessari mynd fór allt á flot á svölunum hjá okkur, þar sem niðurfallið stíflaðist eða er reyndar búið að vera stíflað síðan við fluttum hingað.
