17.6.08

17.júni 2008


Þetta hátíðarblogg mitt er nú ekki langt. En ég er kominn aftur til Berlínar og eiginkonan varð eftir á landi ísa. Já kallinn er bara búinn að gifta sig öllum að óvörum......en það var auðvitað meiri nauðsyn en eitthvað sem átti að gerast strax, því verður svona "alvöru" síðar, þar sem við vonandi getum boðið einhverjum :)

Nú athöfnin tók litlar 5 mín hjá Sýslumanni á Selfossi í stórgóðu veðri. Begga frænka og sá gamli voru vottar. Systkyni mín sem ennþá eru heima, voru viðstödd ásamt þeirri gömlu. Þetta var mjög ánægjuleg stund, og það sem átti upphaflega að vera bara gallbuxur og eitthvað létt, varð aðeins formlegra en maður hafði planað. Að lokinni athöfn var skálað í freyðivíni niðri við á, og svo haldið á Rauða húsið á Eyrarbakka, þar sem hópurinn fékk sér að borða brúðkaupsmat. Alltsaman var þetta nú búið kl 16:00. Ekki flókið það...... hjónakornin héldu svo í Fléttarann, þar sem við steinsofnuðum. Þegar við rifum okkur svo upp, þá var pöntuð pizza og gott fólk kom í heimsókn og gladdist með okkur. Ég flaug svo aftur hingað til Berlínar í dag, og gat því ekki notið 17.júní, eins og hefði verið gaman. Fékk einnig póst frá sendiráðinu íslenska, og þau voru með eitthvað boð í dag hérna í Berlín, sem ég missti þvímiður líka af. Hefði gjarnan viljað mæta og sjá aðra hérna, maður gerur allt of lítið af því.

Jæja, daglegt streð hefst á morgun, þar sem ég fer á sérstaka framburðaræfingu vegna Leðurblökunnar sem verður sýnd þann 13 Júlí nk.

Ekki var það meira að sinni, en hér er rakt og fínt, eins og vanalega og ég lýkþeim 17. með köldum bjór og Battlestar Galactica.

JUST MARRIED :)

15.6.08

Á Íslandi

Þar lenti ég seint seint á fimmtudaginn síðasta. Tókst að ná mér í heiftarlegt ofnæmi eftir að hafa borðar fræmengað salat. Ég vissi að kannski fengi ég einhver viðbrögð, en þar sem þau hafa oft á tíðum verið væg, þá lét ég til leiðast, með þeim afleiðingum að ég bólgnaði allur upp og, gat ekki talað sökum bólgu í mjúkagómnum. Alveg hrikaleg lífsreynsla, en var þó ekki stórhættu, þar sem öndunarvegurinn hélst þó opinn. Einnig missti ég heyrnina á báðum eyrum tímabundið, þar sem eyrun gátu ekki þrýstijafnað sig í aðflugi vegna bólgu. Mæli ekki með þessu :)

Nú veðrið hérna er búið að vera með allrabesta móti dagana sem við höfum verið hér. Skruppum á Selfoss með pappíra til sýslumanns, og fengum okkur svo ís. Þá rákumst við á þann gamla úr Hveratúni, en hann hafði lagt súbarú sínum yfir tvö bílasstæði fyrir utan apótekið og var að leita að VÍS. Það var auðvitað gaman að hitta þann gamla þar sem hann var eldhress að vanda.

Nú gær var svo útskrift líffræðingsins í fjölskyldunni. Við Soffía og Binni, vorum heima á meðan útskrifitin fór fram til að undirbúa komu þeirra fjölmörgu gesta sem von var á. Veislan var bara hin allra besta í litlu húsnæði og litlu eldhúsi. Gaman var að hitta alla ættingjana, að vanda. Guðný var, að mér skilst stóránægð með þetta alltsaman, og þannig á það að vera. Tekin voru ógrynni af myndum, og eflaust dettur eitthvað af þeim inn á þetta eða annað bloggið í fjölskyldunni :)

Stefnan er svo tekin austur í dag, þar sem á að reyna að koma "gömlu" búslóðinni betur fyrir í Holtinu, þar sem mér skilst að allt sé útúm allt þar á bæ. Maður er því að fara í svona sektarkenndarferð :)

Varðandi komment við síðasta bloggi, þá er það nú þannig að trúin tilheyrir hverjum og einum og er innra mál hvers og eins. Þó þarna séu nokkur rotin epli þá skemma þau alltaf útfrá sér, og stofnun sem slík styður það. Það er því stofnunin sem slík sem ég er að mótmæla, og sú staðreynd að skipulögð trúarbrögð eru aldrei af hinu góða, og hafa aldrei verið. Þetta var bara síðasta kornið. Og varðandi kirkjuna hans Bjössa, mér þykir það góð hugmynd, en þá þarf líklegast að stofna sérstakt trúfélag í kringum það ekki satt? Jæja nóg af bulli í þetta skiptið, ég sé ykkur svo aftur hér í tölvulandi þann 17 júní, þar sem ég blogga sértakt hátíðarblogg :)

11.6.08

Brrrrrr

Það er frekar kalt í höfuðborg þýskalands þessa dagana, rétt um 18-20°C og skýjað, gott ef það gæti bara ekki ringt hérna á næsta sólarhring.

Nú er ég einn í höllinni, og dagurinn skiptist á milli þess að fara á söngæfingar og vinna, það hefur ekkert breyst frá því ég var heima :) Nú jæja en hvað með það, ég er svo á leið til Íslands á morgun, og þar verður meðal annars farið í útskriftarveislu hjá duglegu systur minni sem hafði það af önnur af systkinunum að þræla sér í gegnum Háskóla, og því ber að sjálfsögðu að fagna. Það er að sjálfsögðu tilhlökkun í manni að koma aðeins heim, en það er nú bara aðallega til að hitta soninn, og fjölskylduna. Annað á dagskrá verður upplýst síðar.

Ég er mikið búinn að vera vellta fyrir mér þjóðverjum, og það er ýmislegt skrítið sem ég hef rekist á, hér kemur örstutt upptalning:

-Þeir eru ekki stundvísir, eins og margir Íslendingar virðast halda (lestarkerfið er hugsanlega eina undantekningin, en það er bara afþví að klukkan breytist í samræmi við það hvar lestarnar eru hverju sinni :))
-Þeir eru ekki þolinmóðir
-Þeir eru ekki skilningsríkir
-Stór hluti karlmann er með hring í eyrum (öðru eða báðum)
-Um 10-15% kvenna eru með hár sem er litað eins og rauðrófa eða aflitað með svarta rót.
-Bjórinn er frekar ódýr
-Matur er frekar ódýr
-Kvikmyndahús er frekar dýrt(þ.e eina húsið sem sýnir myndir á upprunalegu tungumáli)
-Þeir þjóðverjar sem ég þekki skammast sín fyrir skrifræðið og stífnina hérna.
-Rúllustigar á lestarstöðvum fara sjálfkrafa í gang ef einhver þarf að nota þá.
-Ef barn fæðist í þýskalandi og foreldrar eru ekki giftir er barinu úthlutað lögfræðingi.
-Það verður að vera búið að ákveða nafn á barn innan 6 vikna.
-Í mat er til eitthvað sem heitir "sterkt", en það er ekki sterkt.
-Í bakaríum er aðallega hægt að fá svampbotnakökur og jóla og sandkökur.
-Þeir elska Ísland og Íslendinga, einhverrahlutavegna.
-Ef maður notar ekki "vöru aðskiljara" á kassa í verslunum verður starfsfólk pirrað
-Hér má ekki grilla utandyra í fjölbýlishúsum (í mörgum hverfum)
-ALLT sjónvarpsefni er á þýsku
-Ef það er ekki búið að skrifa það niður í dagbókina þá er það ekki til.
-Ekkert til hérna sem heitir að vera spontant.
-Þýskir túristar hirða allt lauslegt.
-Þýskir túristar fara ekki út að borða ef matur er innifalinn í hóteli.
-Þýskir túristar frátaka sólbekki án þess að nota þá.

Þrátt fyrir allt þetta, þekki ég nú nokkra þjóðverja sem eru auðvitað fínasta fólk, og maður á auðvitað ekki að vera alhæfa svona, en svona lítur þetta bara út fyrir einföldum Íslendingi.

Í kjölfar þess að Hilmar hefur sagt upp störfum í Skálholti, hef ég ákveðið að segja mig úr íslensku þjóðkirkjunni,, og hef skrifað langt bréf sem ég mun einnig senda á biskupsstofu um málið........ekki það að það verði lesið þar, en það er bara svona prinsip mál.

8.6.08

Sunnudagur til sólar

Enn einn sunnudagurinn hér í Berlín og veðrið bara frábært......ég hugsa nú samt að bloggum um veður sé lokið í bili þangað til eittvað breytist, maður er bara svo viðbúinn því að allt snúist allt í einu og maður sé staddur í íslensku sumarveðri :)

Ég er bara á fullu að læra hlutverkið mitt í Leðurblökunni, og við erum með gesti. Soffía er búin að sjá um að fara "rúntinn", og ég er búinn að vera heima að læra. Í gær var svo músíkæfing, sem bara ég mætti á.....!! Alveg magnað! Maður hélt að hér tæki fólk söngnum alvarlega. Jæja en æfingin gekk allavega vel, ég held ég eigi eftir að geta skilað þessu svo sómi sé af fyrir mig.

Nú getur maður bloggað um það sem er að gerast í "barnamálum", við Soffía fórum á kynningarkvöld fyrir FERA, sem er svona félagsskapur ljósmæðra hérna í Berlín, þau eru til húsa ekki langt frá okkur, og því var tilvalið að fara þangað, þau eru með 3 kvensjúkdóma og fæðingalækna, og einn þeirra, sem er lækninrinn "okkar", er stofnandi þessa félagsskapar. Hann er alveg ótrúleg frábær og talar mjög góða ensku, hann er búinn að ráðleggja okkur hjálpa nákvæmlega eins og maður var að vona. Hann tildæmis sagði okkur endilega að fara í þessi hefðbundnu litningagalla skönn, og sagði okkur allt um það. Efir að við fórum í þetta eru nú um 1:60000 að eitthvað sé að, og það eru 90% líkur á að það sé rétt. En þetta eru auðvitað bara þrennt sem er skannað fyrir, þannig að ekkert öruggt í þessum heimi, maður vonar þá auðvitða það besta. EN þetta er eitthvað sem kallast Geburtshaus, eða fæðingarheimili, og er því ekki spítali sem slíkur. Barnið fæðist og svo förum við bara heim 4-6 tímum seinna, það var pínusjokkerandi að heyra það, en þau hafa séð það að börnum og foreldrum gengur betur ef þau eru heima en 2-3 daga á spítala......ég verð að segja að þetta er það eina sem mér þykir svona "óöryggi" en auðvitað veit ég að það er ekki, þetta fólk ætti að vita hvað það er að tala um. Nú svo eru allskyns óöryggi í gangi, eins og t.d með tryggingar og annað slíkt, en mér skilst að evrópska skírteinið eigi að covera þetta alltsaman. Þó gæti verið að við þyrftum að borga einhvern 45.þús kall. En þá bara gerum við það...þýðir ekkert að vera væla. Nú svo tekur við ýmislegt sem fólk þarf almennt ekki að gera.....eins og að ver búinn að ákv nafnið á barninu fljótlega svo við getum fengið útgefið vegabréf handa því. Og ef við erum ekki gift, þá er allskyns fáránleg pappírsvinna sem við þurfum að ganga í gegnum....og barnið fær skipaðan þýskan lögfræðing sem á að gæta hagsmuna þess. Úff úff, maður nennir nú ekki að pæla í þessu.

Jæja meira síðar, erum að fara í pikknikk með tengdó og co :)

3.6.08

Eftir fréttir....

Byrja nú á þakklæti til allra sem sendu okkur hamingjuóskir í commenta kerfinu.
Ég birt hér létta frumorta vísu (afþví ég er orðin svo gamall), sem fékk margar ágiskanir. En svarið er að sjálfsögðu einfallt í kjölfar nýjustui frétta héðan frá Kurfürstenstrasse.
Hvað er ég?
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
tilheyri samt, án þess að vinna.
Lítið ég gef nema kærleik í hjarta
Tek mér það leyfi aðeins að kvarta
þegar ég þarf þess því þannig ég lifi.

Hræðslu ég vek þó sumum í huga
þó er ég saklaus en næ fólk að buga
gefðu mér ást þína, líf og hjarta
ég hef mér þá eitthvað í lífin'að skarta.
því að ég þarf þess og þannig ég lifi.
-------
Æfingar eru hafnar á fullu fyrir Leðurblökuna, og ekki hægt að segja annað en að það sé komin tilhlökkun í mann. Þetta er skemmtileg sýning, og mjög fyndin. En svo veit maður ekki hvað þessi leikstjórnarnemar ákveða að gera með þetta. Vonandi verður það bara nokkuð eðlilegt....sem er líklega fjarlægur draumur, þar sem óperu og leiksýningar hérna í Berlín eru að verða þekktar fyrir allskyns rugl eins og fólk hlaupandi um nakið á sviði, rotnandi kanínuhræ á videóskjá, osfrv rugl. Það er í raun magnað hvað "listin" er í huga sumra ljótt hugtak. Á lít á sjálfan mig sem frekar umburðarlindan, en þegar kemur að algjörri afbökun á söguþræði og birtingu atriða sem bara hafa ákkúrat ekkert með söguna að gera, þá verður maður soldið skúffaður. EN þetta er auðvitað mín skoðun, það eru misjafnar skoðanir á þessu eins og svo mörgu öðru. En ég er búinn að mæta á 2 æfingar, þar sem mikið er talað á þýsku, og ég skil nánast ekki helminginn af því sem er sagt, en ég skil oftast nóg til að ná útgangspunktinum. Þetta tekur allt tíma, en ég hef með mér í þessu eina norska mótleikkonu, sem talar góða þýsku, og útskýrir fyrir mér ef ég alveg úti á þekju! Þetta er semsagt bara fínasta fínt!

Nú af veðrinu er það að frétta að hér er bara gjörsamlega búið að vera steikarveður í rúma viku, og virðist ekkert lát vera á. Það er ekki laust við að maður biðji um rigningu eða kulda í einn dag! En ekki mikið meira en það, því þá er maður að svíkja grundavallar prinispp, að allt er betra en veðrið á Íslandi :) Eða svo til maður saknar þess þó af og til í mestu hitnum.
Jæja, ekki hef ég meira að segja að sinni.

1.6.08

Stóru fréttirnar.....

........sem ég var búinn að lofa eru ss þær að von er á nýjum leigjanda hérna hjá okkur á Kurfürstenstr.75. Vandamálið er það að viðkomandi mun ekki borga neina leigu í 18 ár, sem er ókostur :) En það er samtsem áður talsverð tilhlökkun hér á bæ, og spennandi tímar framundan. Líklegast vita flestir af þessu núna, og því kannski ekki um neinar stórfréttir að ræða, en fínt að gera þetta bara svo á official hátt. Von er á þessum háæruverðuga gesti um 20.nóvember, sem er bara fínasta fínt. En maður fer þá ekki mikið heim um jólin held ég......þetta verður bara lítið ævintýr í staðin. Litla fjölskyldan á Kurfürstenstrasse........kannski ekki alveg nafn á barnabók, en verður að duga :) Þá er þetta loksins komið útúr skápnum og maður getur farið að missa útúr sér ýmislegt hérna á blogginu, sem maður er hingaðtil búinn að vera passa sig á :)

Í öðrum fréttum er það helst að ég er að fara syngja Alfred í "Die Fledermaus" hérna í Berlín þann 13 Júlí nk. Þetta er spennandi verkefni, og frekar erfitt hlutverk fyrir mig, en hvenær er svona lagað ekki erfitt, það þarf bara að vera skemmtilegt líka og þá gengur þetta allt upp!

Nú svo er bara steikjandi hiti hérna og búið að vera síðustu daga, alveg ótrúlega magnað, sama hitastig og á Rhodos!! Sem er alveg spaklega skemmtilegt. Það er bara spáð áframhaldandi hita hérna og steikjandi sól.........svona er lífið maður!!

Jæja, nóg í bili....gömlu spili....úti á þili.

29.5.08

Komin heim....brún og sælleg :)

Nýjar myndir komnar inn hér til vinstri!!
Þá er vikuför okkar á Rhodos lokið, og við bara nokkuð ánægð. Veit ekki hvort er hægt að skrifa mikla ferðasögu um málið en hér kemur það sem flæðir úr skapandi huga mínum þessa stundina :)

Ferðin hófst á því að við sváfum ekki neitt þar sem flugið var kl 4:10, sem þýddi að við þurftum að leggja af stað héðan c.a 1:30. Við ákváðum því bara að vaka og sofa í flugvélinni. Þegar á völlin var komið var þar mætt samansafn hallærislega klæddra einstaklinga, og sumir gengu jafnvel svo langt í nískunni að pakka inn regn/sólhlíf!! Sem kostar um 3-4 EUR á áfangastað :) Nú svo var innritað, og þar sem við vorum mætt snemma, þá hefum við átt að geta valið úr sætum, en svo var aldeilis ekki.....skil ekki hvernig þetta virkar hérna. EN allavega, ég bað þá hróðugur um neyðarútgangssætin, og þá var það bara 20kall á mann takkfyrir, sem ég afþakkaði pent. Við komum svo um borð og þá var þetta þrengsta sætaskipan sem ég hef nokkurtíma upplifað. Við fengum sætisitthvorumegin við gang....ekki einusinni saman....ekki það að það hafi pirrað mig eitthvað sérstaklega, og viti menn neyðarsætin voru laus alla ferðina :) Maður reyndi að sofa eitthvað aðeins í þessu 3 tíma flugi, en það varð nú eitthvað lítið úr því. Við vorum svo lent á staðartíma um kl 9, og það var bara frekar heitt og fínt, þó var svalandi vindur þarna sem tók á móti okkur(vindurinn er einmitt aðalsmerki Rhodos, allavega vesturhlutans) og er þetta vinsæll áfangastaður fyrir "Windsurfing". Nú við sóttum töskur og ætluðum bara svo að finna leigubíl til að taka á hótelið, þar sem hvergi var talað um það í ferðagögnum að okkar biði rúta og fararstjóri. Sem var svo raunin, sem betur fer :) það var 60 manna rúta sem keyrði okkur svo á hótelið, sem var bara allsendis stórgott hótel. Við töldum að innifalið í herberginu væri morgunmatur, sem reyndist rétt, en það sem meira var að líka var innifalinn kvöldmatur!! Sem var bara ótrúlega fínt, við nýttum okkur það nokkrum sinnum, og bara virkilega fínn matur. Herbergið var stórfínt, þó hefði verið fínt að hafa loftkælingu, en það var nú kannski ekki svo brjálæðislega heitt. Loftkælingin virkar ekki fyrr en 1.júní. Hótelgarðurinn var svakalega fínn, en þarna, eins og annarsstaðar þar sem þjóðverjar eru í fríii, þá var ekki hægt að fá neinn bekk, þar sem þeir vakna eldsnemma, henda handklæðunum sínum á bekk, og fara svo bara inn aftur, eða hvað sem þeir gera þegar þeir eru ekki í sólbaði. Við fórum því yfirleitt bara á ströndina fyrir neðan hótelið sem var bara fín, þrátt fyrir að vera steinvöluströnd(útaf rokinu).

Þarna var mikið rok oft á tíðum, en það var bara nokkuð fínt. Maður fann það seinnihluta vikunnar, þegar fór að hlýna all ískyggilega. Nú tveim dögum eftir að við lentum, kom Begga frænka ásamt Völu frænku og Birki og hrúgu af Vatnsleysuættingjum þeirra :) Við skemmtum okkur konunglega saman, þó það sé alltaf magnað hvað er erfitt að vera í einhverjum hópum í svona ferðum :)

Í mötuneytinu voru skilti sem á stóð:
"You can eat as much as you want, but it is not allowed to take the food with you" Djöfull hafa þeir fengið að finna fyrir því hjá þessum Þjóðverjum, það hlítur að vera einhver ástæða fyrir þessu, og jú, þau okkar sem hafa unnið í ferðaþjónustu, vitum að þarna er Þjóðverjum rétt lýst.

Nú það var bara hangið á ströndinni allan daginn alla daga og farið út að borða sum kvöld. Á laugardagskvöldið fórum við öll saman á næsta pöbb með risaskjá og horfðum á Eurovision, þar sem ekki var annað hægt en að hlæja að sigursætunum......Þarna heyrði ég í fyrsta skipti framlag Azerbaijan.....sem mér þótti nú bera af í frumlegheitum og stórskemmtilegu lagi. Ísland var flott, þó ég sé nú ekki hrifin af honum Frikka, þá stóðu þau sig vel.

Svo var tekið eitt svona menningarrölt um gamlabæinn á Rhodos, og það var rosa gaman, fínar verslanir og dýr bjór.

Svo þegar við komum heim í morgun, þá var bara búið að rífa allar flísar af svölunum hjá okkur, og verið að setja nýjar!! Alveg magnaður andskoti :)

Jæja læt þetta gott í bili, hljóp létt yfir eina viku í þessu, vona að fólk hafi nennt að lesa :)

Myndir frá ferðinni koma svo inn í kvöld.