11.6.08

Brrrrrr

Það er frekar kalt í höfuðborg þýskalands þessa dagana, rétt um 18-20°C og skýjað, gott ef það gæti bara ekki ringt hérna á næsta sólarhring.

Nú er ég einn í höllinni, og dagurinn skiptist á milli þess að fara á söngæfingar og vinna, það hefur ekkert breyst frá því ég var heima :) Nú jæja en hvað með það, ég er svo á leið til Íslands á morgun, og þar verður meðal annars farið í útskriftarveislu hjá duglegu systur minni sem hafði það af önnur af systkinunum að þræla sér í gegnum Háskóla, og því ber að sjálfsögðu að fagna. Það er að sjálfsögðu tilhlökkun í manni að koma aðeins heim, en það er nú bara aðallega til að hitta soninn, og fjölskylduna. Annað á dagskrá verður upplýst síðar.

Ég er mikið búinn að vera vellta fyrir mér þjóðverjum, og það er ýmislegt skrítið sem ég hef rekist á, hér kemur örstutt upptalning:

-Þeir eru ekki stundvísir, eins og margir Íslendingar virðast halda (lestarkerfið er hugsanlega eina undantekningin, en það er bara afþví að klukkan breytist í samræmi við það hvar lestarnar eru hverju sinni :))
-Þeir eru ekki þolinmóðir
-Þeir eru ekki skilningsríkir
-Stór hluti karlmann er með hring í eyrum (öðru eða báðum)
-Um 10-15% kvenna eru með hár sem er litað eins og rauðrófa eða aflitað með svarta rót.
-Bjórinn er frekar ódýr
-Matur er frekar ódýr
-Kvikmyndahús er frekar dýrt(þ.e eina húsið sem sýnir myndir á upprunalegu tungumáli)
-Þeir þjóðverjar sem ég þekki skammast sín fyrir skrifræðið og stífnina hérna.
-Rúllustigar á lestarstöðvum fara sjálfkrafa í gang ef einhver þarf að nota þá.
-Ef barn fæðist í þýskalandi og foreldrar eru ekki giftir er barinu úthlutað lögfræðingi.
-Það verður að vera búið að ákveða nafn á barn innan 6 vikna.
-Í mat er til eitthvað sem heitir "sterkt", en það er ekki sterkt.
-Í bakaríum er aðallega hægt að fá svampbotnakökur og jóla og sandkökur.
-Þeir elska Ísland og Íslendinga, einhverrahlutavegna.
-Ef maður notar ekki "vöru aðskiljara" á kassa í verslunum verður starfsfólk pirrað
-Hér má ekki grilla utandyra í fjölbýlishúsum (í mörgum hverfum)
-ALLT sjónvarpsefni er á þýsku
-Ef það er ekki búið að skrifa það niður í dagbókina þá er það ekki til.
-Ekkert til hérna sem heitir að vera spontant.
-Þýskir túristar hirða allt lauslegt.
-Þýskir túristar fara ekki út að borða ef matur er innifalinn í hóteli.
-Þýskir túristar frátaka sólbekki án þess að nota þá.

Þrátt fyrir allt þetta, þekki ég nú nokkra þjóðverja sem eru auðvitað fínasta fólk, og maður á auðvitað ekki að vera alhæfa svona, en svona lítur þetta bara út fyrir einföldum Íslendingi.

Í kjölfar þess að Hilmar hefur sagt upp störfum í Skálholti, hef ég ákveðið að segja mig úr íslensku þjóðkirkjunni,, og hef skrifað langt bréf sem ég mun einnig senda á biskupsstofu um málið........ekki það að það verði lesið þar, en það er bara svona prinsip mál.

3 ummæli:

  1. mátt skrifa nafnið mitt undir líka :)

    Er einmitt að fara að gera mér ferð niður í þjóðskrá að segja mig úr þessi kjaftæði líka!

    SvaraEyða
  2. Skemmtileg samantekt á Þjóðverjum. Allt skal vera pünktlich!

    Styð ykkur annars í aðgerðum ykkur við að finna trúna.
    Sjálfur hef ég ekki viljað láta misvitra trúboða trufla eigin sannfæringu. Það eru til góðir og slæmir einstaklingar. Okkar er að horfa til þeirra góðu og bera gæfu til að láta hina ekki bögga sig.
    Tek það fram að ég er alls ekkert að tala niður til ykkar eða neitt því um líkt. Öllu heldur réttlæta afstöðu mína til kirkjunnar og trúarinnar. Slæmt að þurfa þess. Það eru allt of margir sauðir innan kirkjubáknsins.

    SvaraEyða
  3. Það kom upp hugmynd á fundi hjá Skálholtskórnum þar sem við vorum að fara yfir stöðuna,(einhver kórfélaginn varpaði henni fram í gríni eða alvöru): ...að segja sig úr Þjóðkirkjunni en skrá sig í kirjuna hans Bjössa í Úthlíð. Þangað er notalegt að koma, allir velkomnir með söng og spil. Þangað rinnu gjöldin okkar.
    Tillaga fyrir þá sem vilja stíga skrefið.
    bkv. Aðalheiður

    SvaraEyða