Við familían skelltum okkur til Berlínar þann 17.Júni, því það hittist einmitt þannig á að ég gat fengið frí þennan eina dag í æfingaferlinu. Við áttum líka tíma í Berlín til að fara í nákvæma sónarskoðun vegna naflastrengs vandamálsins sem hugsanlega gæti verið mjög alvarlegt, og svo ætluðum við að hitta vini, versla skó á Júlíu og fara í fögnuð í ráðherrabústaðnum.
Það er skemmst frá því að segja að þetta var allt strikað út af listanum eftir þessa ferð :)
Sónarinn gekk vel og það er mikill fjársjóður fyrir okkur að hafa fundið þetta klínik, því fólkið sem vinnur þarna er afar vingjarnlegt og manni líður vel þarna. Ólíkt aðstæðunum hérna í Görlitz. Allt leit mjög vel útí skoðuninni og Hákon (læknir) sagði okkur að við þyrftum ekki að hafa frekari áhyggjur af þessu, barnið vex eðlilega og nóg blóðflæði er til barnsins þrátt fyrir aðeins eina slagæð. Þetta var því mikill léttir. Við erum því byrjuð að huga að nafni sem verður að vanda nokkuð erfitt mál, en það hlítur að hafast á endanum. Við fengum einnig að vita kyn barnsins og það væri gaman ef gestir síðunnar myndur taka þátt í laufléttri skoðanakönnun hérna hægramegin á síðunni, bara svona til gamans :)
Til að hjálpa til við valið sýni ég ykkir hérna sónarmynd sem við fengum. Mun skýrari en sú sem við fengum af Júlíu. Og gæti líklegast hjálpað þeim sem ekki þegar "finna það í beinunum" hverskyns þetta er nú :)

Blessuð þið í þýska!!
SvaraEyðaVonandi hafið þið það gott þrátt fyrir ýmislegt!
Mér sýnist þetta vera svipmikill STRÁKUR!!!
Til hamingju!!!
Kveðjur Sigrún frænka.
Sammála Sigrúnu, held að þetta sé strákur - en ég hélt nú líka að Júlía vær strákur, þannig að það er ekkert að marka mig ;)
SvaraEyðaKveðja
BKBEn