15.6.11

Ég hata Görlitz!!

Jæja kæru lesendur, þá gerðist það sem ég óttaðist.  En það sem var of gott til að vera satt var það líka.  Ég sagði frá því byrjun mánaðarins að ég hefði sungið fyrir hérna í húsinu, AFTUR!!  Og hefði í kjölfarið fengið næst stærsta hlutverkið í Der Vogelhändler, sem ég var svosem alveg sáttur við, allavega betra en viðbjóðslega smáhlutverkið sem þeir ætluðu að bjóða mér.  Nú er semsagt komið í ljós að þeir þurfa að taka þetta hlutverk af mér, vegna "mistaka á skrifstofunnu" voru þeir búnir að lofa öðrum hlutverkinu, og höfðu ekki talað sig nógu vel saman.  Þetta þýðir að 2 vikur eru núna farnar í vaskinn af lærdómi, og ég þarf að byrja að læra annað hlutverk, sem ekki bara er ótrúlega leiðinlegt og ómerkilegt og ekki fyrir mína raddtýpu, heldur afar óspennandi kostur miðað við það sem ég var byrjaður að læra.  Ég á í raun ekki til almennileg lýsingarorð til að lýsa því hvernig mér líður núna.  Ég er gjörsamlega búinn að missa áhugann á þessu starfi, og að hugsa sér að ég eigi eitt ár eftir hérna í þessu rugli!!  Með litla möguleika að finna mér eitthvað annað að gera!

Þetta er stórkostlegt og frábært, og ég lofa því að reyna að vera jákværður í næsta bloggi. En það er gott að koma þessu frá sér á prent, til að tappa af smá reiði.

1 ummæli:

  1. Leiðinlegt að heyra, vonandi að það birti til.

    SvaraEyða