Það er kannski rétt að byrja á því að henda hér inn núna að hérna á Biesnitzerstrasse 31, er von á 4ða einstaklingnum í fjölskylduna. Settur dagur er 4.September, og það verður gaman að sjá hvort það stenst, því þetta virðast vera jafn nákvæm vísindi og jarðfræði :) Erfiður tími fyrir okkur, en vonin er auðvitað sú að þetta smelli allt inn í hefðbundin form. Það er ekki laust við að kvíðinn byrji að setjast að, eftir reynslu fyrsta barns!!
Merkilegt er svo að segja frá því að í gær söng ég aðra sýningu mína á árinu!! Sem er magnað þegar maður lítur til þess að nú er Mars. Textarugl gerði þetta að leiðinda sýningu í mínum huga, en það reddaðist allt án þess að fólk tæki eftir því held ég :)
Í kjölfar frétta af heilsufari fólks, og líferni mínu og andlegu ástandi ákvað ég að leita mér lækninga. Ég hef, svo lengi sem ég man eftir mér þjáðst af óútskýranlegum kvíða, sem hefur reyndar aldrei truflað mig neitt stórkostlega í mínu daglega lífi. En mér hefur fundist þetta vera að versna og ég hef drukkið áfengi til að halda þessu niðri (ekki ólíklegt að vítahringur hafi skapast) :) Frekar óeðlilegt í mínum huga, en svona er þetta bara. Þessi kvíði hefur haldist niðri við það að ég hef haft mikið að gera, en nú þegar ég er einn í kotinu, og hef nægan tíma til að hugsa, þá fór þetta allt af stað aftur. Ég fór því til læknis sem ætlar að senda mig strax í allar mögulegar og ómögulegar rannsóknir, sem er reyndar eitthvað sem ég líka oft velt því fyrir mér að gera. Sjálfur hef ég fylgst vel með eigin blóþrýsingi og hann er alltaf fullkominn! Sama er að segja um blóðsykurinn. En ég veit ekkert um kólestrólið, lifrina, nýrun og skjaldkirtilin, sem gætu öll átt þátt sinn í þessu. Þetta ástand mitt gæti því auðvitað átt sér líkamlegar ástæður sem er vert að rannsaka. Ég hef verið boðaður í blóðprufur og hjartalínurit á þriðjudag, auk þess sem ég þarf að fá einhvherja græju festa við mig sem ég þarf svo að vera með í einn sólarhring. Ég fékk svo líka ávísun á geðlækni sem ég mun að sjálfsögðu nýta mér, bara spurning hvernig það á allt eftir að ganga á þýsku!! :)
Í millitíðinni fékk ég nokkrar litlar bláar töflur af Lorazepam sem á að vera svaka fínt stuff. Er búinn að prufa að taka það svona þegar ég finn kvíðaáhrif, segi nú ekki að mér finnist það virka, en ég finn svona mild áfengisáhrif og verð þreyttur, auk þess sem ég steinsofna á kvöldin :) En þetta er ávanabindandi lyf og því hef ég hætt inntöku þess í bili, með tilheyrandi kvíðaröskunareinkennum :) Ég auðvitað líka byrjaður að hreyfa mig meira og borða hollari mat, sem verður líklegast bara bóla eins og alltaf, en ég er þó allavega að reyna.
Heilsufar kvenkynsins í litlu fjölskyldunni er slæm þessa stundina, báðar búnar að vera með leiðinda kvef og hita sem er alls ekki gott mál, sérstaklega fyrir Soffíu. Sú litla harkar þetta nú af sér eins og allt annað. Hún vill mjög gjarnan spjalla við pabba sinn í símann, og byrjar samtalið alltaf á "stóra stóra flugvélin", hún man ennþá stundina þegar hún sagði bless við pabba sinn á flugvellinum og henni var þá sagt að ég væri að fara burtu í stóru flugvélinni :) Mögnuð þessi litlu skott :)
Í næsta bloggi langar mig að sýna ykkir smá vídeó af mér í action á sviðinu :) Á reyndar eftir að sjá myndirnar sjálfur, en það gekk ágætlega og ég vona að það verði sýningarhæft :)
Þangað til næst, góðar stundir.
Innilega til hamingju litla fjölskylda :)
SvaraEyða