Þá er æfingum fyrir óperuball lokið, allavega í bili. Ég fagnaði því með því að verða aftur veikur, reyndar myndi flest venjulegt fólk ekki kalla þetta veikindi, en ég get ekki unnið þegar svona er ástatt og það er ótrúlega leiðinlegt og erfitt. Eins og áður hefur komið fram, þá verð ég afar sjaldan veikur, en einhverrahlutavegna hef ég tvívegis orðið raddlaus af veikindum síðustu mánuði, og það er enganvegin skemmtilegt!! Sami hóstinn er kominn upp og áður ásamt hæsi og rugli.. Ég get ekki tengt þetta beint við ranga raddbeitingu, heldur kannski frekar við næringarástand og þétt æfingaplan. Núna tekur svo við aðeins meiri rólegheit, allavega næstu vikuna eða svo. Svo á ég nú von á að þetta þéttist aftur. Fyrsta sýning á nýju ári er ekki fyrr en 5.Febrúar nk. Svo er óperuballið á afmælisdaginn minn 12.Febrúar og svo þann 14. verður farið til Íslands í vetrarfríinu. Svo var ég að frétta eftir mjög óformlegum leiðum að það gæti farið svo að ég fái eitt aðalhlutverk á næsta tímabili, en ég trúi því ekki fyrr en ég sé það skrifað. Ef ekkert gerist þá er ég bara á leiðinni heim, en ef þetta gengur eftir gæti ég fengist til að íhuga að vera lengur. En þetta eru auðvitað allt bara hugsanir dagsins í dag. Þetta gæti breyst með stuttum fyrirvara.
Rétt í þessu var ég svo að fá símtal frá framkvæmdarstjóra sinfóníuhljómsveitarinnar í Frankfurt(Oder), þar sem hann var að biðja um upplýsingar í samninginn vegna "Das Lied von der Erde". Ég fæ semsagt ágætlega borgað, svosem ekkert til að fara yfirum yfir, en ég er ánægður með þetta. Veit reyndar ekkert hversu mikin skatt ég þarf að greiða af þessu eða hvernig það virkar, en það þarf víst að koma í ljós eins og allt annað. Ég get samt ekki neitað því að um mig fór sterkur stress hrollur, því ég kvíði þessu meira en flestu öðru sem ég hef gert á ferlinum.
Hér er orðið ansi hlýtt, og í dag er um 9 stiga hiti sem er bara nokkuð fínt, allur snjór farinn og nú tekur við rigningartímabil, sem á líklegast eftir að endast vel fram í Febrúar. En ég fagna því að snjórinn er farinn! Vodafone er búið að klippa á tenginguna okkar, 3 dögum fyrir lok samnings!! Helvítis Vodafone! Ég birti þetta blogg því í gegnum símann minn fína sem getur allt :) Við eigum svo von á að T-mobile netið detti inn á Mánudag.
Svo ein í lokin :)
ég veit um fullt af fólki sem mætir ekki til vinnu með svona veikindi... ;)
SvaraEyðaVonandi samt að þetta fari nú allt að lagast og að stórt hlutverk detti niður fyrir framan þig :)
Annars er nokkurn veginn sama að gerast hérna (vona ég), ss snjórinn að fara, því að þá getur maður farið að nota hjólið sitt aftur og þarf ekki að eyða helling af pening í almenningssamgöngur daginn út og inn.