Ungfrú JFE hefur tekið upp á því að klæða sig úr öllum fötunum eftir að hún er komin upp í rúm á kvöldin, það helgast líklegast af því að við erum byrjuð að "koppaþjálfa" sem þýðir að hún er bara með bleyju þegar hún sefur, þetta gengur að vísu upp og ofan, en einhversstaðar þarf að byrja. En þessi aukaafurð þess, sem er að klæða sig úr öllu er alveg stórmerkileg. Hún klæðir sig úr öllum fötunum og bleyjunni og liggur svo í ískulda og sefur bara vært. Við förum reyndar alltaf inn til hennar áður en við förum að sofa, og klæðum hana aftur í, án nokkurra vandræða. Þetta er bara svolítið pirrandi :) En ekkert til að setja mann úr jafnvægi. Hún er líka svakalega dugleg að syngja og kann að telja líka :) En ég tel afar óvíst að neitt annað en páfagauka lærdóm sé að ræða.
Æfingar fyrir jólatónleika eru hafnar og þó það sé ekki beint erfitt, þá tekur það aðeins á röddina og að auki er svo erfitt fyrir mig að æfa svona samsöng einn. Ég þarf að hafa hinar raddirnar til að átta mig á því hvar ég er :) En þetta gengur svosem ekkert illa. Þetta er ekki mikið og það erfiðasta er allt með kór að syngja á sama tíma.
Hér sveiflast hitinn upp og niður og í morgun var aðeins um 0.8 gráður, en samt ekki svo kalt. Veðrið va mjög fallegt og ég tók nokkrar myndir í tilefni þess, sem má sjá hér fyrir neðan. Í dag ætla ég svo að reyna að henda í kleinur, fyrst maður er orðin svona duglegur að djúpsteikja :)



ég var mjög hikandi við að halda lestrinum áfram eftir að hafa lesið fyrirsögnina, en forvitnin varð öllu yfirsterkari ;) kv. kristín ósk
SvaraEyða