12.11.10

Flatkökur, barnabætur, jólin og lífið

Súpið mitt!! sagði ungfrúin þegar hún sá vatnsflöskuna sína undir borði hérna rétt áðan, og flýtti sér að ná í hana. Fyrsta skipti sem ég hef heyrt hana eigna sér eitthvað, án þess að vera beint að apa eftir því sem við segjum. Ég ákvað því að prufa hana og spurði "er þetta súpið þitt?" þá kom svarið "já súpið mitt". Þannig að þá er það komið á hreint :)

Umsókn um barnabætur hefur loksins verið samþykkt hér í þýsklandi og það verður að segjast eins og er að maður finnur fyrir smávægilegum létti að það sé þó allavega frá. Bæturnar eru um 180 Evrur á mánuði, og það munar sko alveg um það! Það versta í þessu er kannski það að við fáum ekki greitt nema frá ágúst á þessu ári! Sem þýðir í raun að við erum búin að tapa 8.mánuðum af barnabótum, því ekki fáum við þær frá íslandi. En á móti kemur að nú erum við komin með pappíra sem ég get látið RSK á Íslandi fá sem sýna að ég hef ekki fengið bætur í þýskalandi fyrir árið 2009. Og það ætti að þýða að við fáum þá allavega íslensku barnabæturnar fyrir 2009. Sem léttir aðeins á skuldastöðunni á Íslandi.

Ég tók mig til og henti í flatkökur í gær til að sjá í fyrsta lagi hversu mikið mál er að gera þetta og hinsvegar hvort þetta sé þess virði, þar sem við eigum lítinn kost á að fá nýjar og fínar flatkökur þessi jólin. Ég er ekki viss um það sé alveg þess virði að fara í gegnum allt það vesen sem fylgir því að gera svona lagað. Fyrir það fyrsta þá þarf maður að hnoða degið í gúmmíhönskum, í öðru lagi þarf maður að nota MIKIÐ af hveiti svo þetta helvítis deig festist ekki alltaf í kökukeflinu, nú eða fjárfesta í silicon kökukefli. Svo þarf að ná kökunum í rétta þykkt sem er ekki auðvelt með ömurlegu kökukefli og of lítið af hveiti. En á endandum tókst mér þó að framleiða einar 12 kökur, ég gafst nánast upp eftir að hafa líklega endanlega eyðilagt gömlu teflon pönnuna á heimilinu. Samt sem áður bragðast kökurnar vel, þrátt fyrir að ég hafi ekki átt til rúgmjöl, þær eru bara ljósari á litinn en maður finnur ekki mikin mun þannig séð. Til að gera þetta svo betra þyrfti maður að eiga úðakönnu til að úða vatni yfir kökurnar til að þær verði ekki harðar, en það virtist laga aðeins að láta þetta bara liggja allt saman undir rökum klút. Þetta var mikil skítavinna og er ég ekki viss um að ég nenni þessu fyrir jólin, sérstaklega þar sem hér vantar líka hangikjötið!!

Jólin eru á næsta leiti og við erum búin að skipuleggja eina helgarferð til Berlínar í Desember, aðeins að komast í annað umhverfi í smá stund, eins og þetta er nú allt saman fínt, er þetta svolítið þreytandi líka.

Í kvöld er svo önnur sýning af Tiefland, og svo taka við æfingar fyrir Candide og Jólatónleika. Hér eru núna öll lauf fokin af trjánum eftir óveður gærkvöldsins, og alvöru haust að hefjast. Ekki það að það sé búið að vera eitthvað gott veður hérna, en núna er bara orðið kuldalegra.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli