5.6.10

Sumarið er loksins komið.......allavega í bili.

Síðan síðast, þá hefur það gerst að sumarið gekk í garð, og ekki seinna vænna. Í gær og í dag höfum við fengið að njóta hitastigs sem er vel yfir 20 gráðum, og í dag skreið mælirinn í rúm 31 hérna á svölunum. Það varð því úr að við gátum notað skítódýru útisundlaugina sem við .keyptum handa ungfrúnni fyrir einhverju síðan, þegar við héldum að sumarið væri að koma :)

Sú litla hefur verið merkilega pirruð undanfarna daga og er erfitt að festa hönd á hverju um kennir, en líklegast er að þetta sé einhver blanda af veikindum, persónulegum þroska og svefnleysi. Hverju sem um er að kenna, þá væri afar ljúft að þessu færi að ljúka, þar sem þetta er afar þreytandi. Orðaforði og málnotkunarhæfileikar gera æ meira vart við sig og það er afar gaman að verða vitni að því. Það eru samt einhverjir hljóðmyndurþættir sem eftir eiga að smella í gang, en ég á nú von á því að svoleiðis sé það nú bara almennt.

Ég er á leið til Görlitz enn eina ferðina, bæði til að sýna síðustu sýningu af "Der besuch der alten Dame" og svo til að taka þátt í 6 daga æfingaferly fyrir Leðurblökuna, sem ég mun taka þátt í næsta árið þarna. Maður fær nánast ekkert borgað fyrir þetta og það er eiginlega sorglegt að láta sig hafa það, en sem áður þá verður maður að líta á það að hver einasta evra í vasann er þvímiður nauðsynlega eins og sakir standa.

Hér í hitanum hefur greinilega verið ákveðið að skrúfa fyrir heita vatnið, því við höfum ekki fengið neitt heitt vatn hérna inn í 2 daga!! Þetta var líka alltaf að gerast síðasta sumar en pirraði kannski ekki svo mikið. Maður hefur því brugðið á það ráð að fara ekki í sturtu og til að vaska upp hefur maður einfaldlega bara soðið vatn í potti og helt í vaskinn :) Maður kann að bjarga sér:)

Ég kveð ykkur að sinni með myndum frá sumrinu hérna á svölunum :)





2 ummæli:

  1. KRÚTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT!!

    Kveðja
    BKBen

    SvaraEyða
  2. Hæ Alltaf gaman að fylgjast með skrifum þínum Egill. Og ég tali nú ekki um myndirnar af dömunni hún er alveg stórkostleg. Vona að allt gangi ykkur í haginn. Hef verið stödd í svona peningabasli. En það reddast!!!Kveðjur Sigrún frænka

    SvaraEyða