9.12.09

Hið langa ferli og geðveikin

Fyrir rétt rúmu ári síðan fékk ég símtal þar sem mér var sagt upp störfum hjá fyrirtækinu sem ég vann hjá. Það hefur gengið merkilega vel síðan vegna þess að ég fékk barnabætur fyrir Júlíu. Þannig að það blessaðist alltsaman á endanum. Nú fyrir nokkrum dögum fékk ég svo bréf frá LÍN, þar sem mér var gert að greiða rúma hálfa miljón króna til baka af því sem þeir kölluðu ofgreitt námslán! Þetta var eiginlega það versta sem gat komið upp í þeirri stöðu sem nú er hérna í hjá mér í Berlín. Ég fór því á kaf í málið að reyna að finna útúr því hvernig stæði á þessu. Þetta var semsagt vegna þess að ég hafði ekki skilað inn staðfestingu kennara á því að ég hafi lokið seinni önn, sem ég vissulega gerði, en ég er svo nýr í þessu LÍN dótaríi að ég hugsaði ekkert meira út í það. Þeir sendu reyndar ekkert bréf sem lét mig vita að ég ætti eftir að skila þessum pappírum! En núna eftir smá samtöl við LÍN og kennarann minn hefur það komið upp út kafinu að þessi skuld hefur verið felld niður og ég fæ meira að segja smá meiri pening! En auðvitað þarf maður að lenda í einhverju svona fyrst :) Mér er að lærast það smátt og smátt að það þýðir ekki að panikka og æsa sig yfir því sem gerist, aðeins að taka því með jafnaðargeði og trúa því að það sé til góðs. Það var nákvæmlega það sem ég gerði í þetta skiptið, tók jákvæðnina á þetta, sem ég geri nú ekki oft. Ég hef því ákveðið að reyna að snúa mér af þeirri leið sem ég hef talið best í þessum efnum, og ætla að prufa hina leiðina :) S.s að vera jákvæður út í atburði og umhverfi. Það verður erfitt en ég get það eins og allt annað sem ég tek mér fyrir hendur.

Í næstu viku eru fyrirhugaðar tvær áheyrnarprufur, annarsvegar í Görlitz og hinsvegar í Braunschweig. Það þarf ekki mörgum blöðum um það að fletta að Braunschweig er náttúrulega betra húsið, svona upp á framtíðina að gera, en ég mun syngja mjög vel í báðum prufunum og sýna fyrir sjálfum mér að ég get vel gert þetta. Að þessu loknu er svo eiginlega komið jólafrí, en það er aldrei að vita hvort það komi einhverjar fleiri prufur upp á yfirborðið í mánuðinum, en ég efa það. Svo er það bara Ísland í tvær vikur eftir áramótin, en ég ætla að vera þar 8-22.jan.

Nú meira var það nú ekki héðan í bili, meira um lífið og tilveruna síðar.

3 ummæli:

  1. Veit um einn sem lenti í nákvæmlega því sama, minni upphæð reyndar. LÍN að búa til peninga á sofandi fólki ?

    "Ef við sendum þetta út á nógu marga þá hljóta einhverjir að borga"... neinei segi bara svona :P

    gott að þetta blessaðist

    SvaraEyða
  2. áfram Egill!

    :)
    bkben

    SvaraEyða
  3. Gott þetta með jákvæðnina.
    LÍn er akkúrat svona, maður sendir þeim tvö blöð í sama umslaginu og fær staðfestingu fyrir annað en að hitt hafi vantað....
    Gangi þér vel.
    Sesselja

    SvaraEyða