23.6.09

Öppdeit frá Braunschweig

Hér gengur allt..... varla eins og í lygasögu, því þvímiður er þetta ekki mjög professional, þó hérna sé A hljómsveit og við séum að æfa í svokölluðu A-húsi. Æfingar hafa svosem gengið upp og ofan,en það er stanslaust verið að breyta tempóum hér og þar og svona smáatriðum sem virkilega geta sett allt úr skorðum fyrir þá sem hafa lagt það á sig að reyna að læra eitthvað :) Flestir eru þó nokkuð vel undirbúnir og þrátt fyrir að fyrsta æfing hafi gengið eins og hryllingsmynd.... fyrir mig allavega :) Þá hefur það nú leiðrétt sig og þetta gengur bara nokkuð vel.

Í dag var fyrsta "sitzprobe" en það er fyrsta æfing þar sem verið er að samhæfa hljómsveit og söngvara. Að sumu leiti var það auðveldara, en öðru erfiðara. Gaurinn sem er að stjórna er frekar erfiður þar sem hann tekur ekki nægjanlegt mark á söngvaranum og við erum öll svolítið týnd í þessu öllusaman, en þetta á eftir að smella ágætlega saman held ég.......eða vona allavega :)

Ég sakna þess eilítið að hafa ekki með mér hérna hana litlu dóttur mína (og konu auðvitað) sem mér skilst að sé að dafna sem aldrei fyrr í sveitum Skagafjarðar, en svona er bara lífið, söngvaralíf er sjómannalíf, bara verr borgað!

Ég fékk svo SMS á dögunum frá Janet Williams, kennaranum mínum, og vinur hennar er að setja upp Fidelio eftir Beethoven, mer býðst þar hlutverk Jaquino sem er einskonar dyravörður í fangelsinu... ef svo má að orði komast....fangavörður líklegast. Lítið hlutverk, en fyrir um 10 árum söng Jonas nokkur Kaufmann þetta hlutverk og ekki er hann á slæmum stað í lífinu í dag :) Maður veit aldrei.....

Allavega það er annars ekki mikið að frétta héðan annað en þetta.

Hér er svo ein mynd af prinsessunni í lokin til að gleðja fólkið.

Viel spass.

3 ummæli:

  1. Gangi þér vel Egill. Gaman að fylgjast með baktjaldastússinu ;)

    SvaraEyða
  2. Þetta smellur.
    Auðvitað verður að taka fullt mark á söngvurunum :)

    SvaraEyða
  3. Munt glansa sem aldrei fyrr ... með áttaréttum" stjórnanda; nær hlestu höfuðáttum fyrr en varir! ;) Ættarfylgjan

    SvaraEyða