Morguninn eftir situr maður hér í litla tölvuherberginu, eina staðnum í húsinu sem hægt er að nálgast "internetið", og hugleiðir í raun ekkert! Óperan gekk nokkuð vel, nokkur áföll sem ekki margir tóku eftir. Að loknum 1.þætti fékk ég létt tiltal frá Wolfgang um hvað mætti betur fara og ég gerði mitt besta til að leiðrétta það. Raddlega gekk þá allt mun betur. Svo var farið á veitingastað í nágreninu og teknir nokkrir léttir drykkir. Komin í rúmmið fyrir 2 og vakað núna í morgunsárið kl 10 :) Í dag tekur svo við hvíld og á morgun hefjast svo æfingar fyrir Galatónleikana, sem mér skilst að séu það allra mikilvægasta, því þangað koma agentar og ýmsir aðalsmenn sem gott er að heill. Það er því talsvert mikil vinna framundan og þessu verður svo öllu lokið á sunnudaginn eftir viku.
Litla familían mín kemur svo 7.Júlí og einnig kemur mín ástkæra systir í heimsókn sama dag. Að því loknu kemur minn hálfnorski bróðir og hans frú. Í ágúst var ég svo eitthvað búinn að minnast á hlutverk í Fidelio, en ég er ekki alveg viss um að það sé endilega eitthvað sem ég muni gera, þar sem þetta er ekki óperan sem slík, heldur er þetta eitthvað workshop sem ég þarf að borga 180 Evrur fyrir, mér þykir það heldur mikið núna á þessum síðustu og verstu, þannig að ég hugsa að ég blási það af.
Jæja ætla að reyna að fara finna mér eitthvað að borða hérna á þessum furðulega stað. Þangað til næst, djísus kræst.
Flott að heyra að þetta gekk vel ! Þú rúllar svo væntanlega upp þessum galatónleikum býst ég við ;)
SvaraEyðaEr farin að hlakka mikið til að koma í heimsókn...
Norðanvindurinn beri hamingjuóskir og hvatningu frá Paradís norðurhafa.
SvaraEyðaHálfnorskur bróðir er snilld. Ég get endalaust hlegið af þessu :-) Þetta er svipað góður frasi og fimm háskólapróf! Kveðja úr krepputown
SvaraEyða