1.5.09

Spargelzeit, Mollið, MBT, Júlía og sundið ofl

Þá er 1.maí runnin upp, ekki  það að ég hafi nokkurntíma haldið eitthvað sérstaklega upp á þennan dag.  Hér rétt hjá okkur er loksins búið að opna mollið(verslunarmiðstöðina), sem búin er að vera í byggingu síðan við fluttum hingað.  Það má segja að þetta sé alveg svakalega flott, og sérstaklega að vera búin að fá þetta hérna í grendina.  Þarna er stórmarkaður sem mér sýnist eiginlega hafa upp á að bjóða allt það sem hugurinn girnist, nema t.d maldon salt!  En þetta er risastórt og gott úrval, sem er frábært.  Ég hentist þangað í gær með ungfrúnna og verslaði spargel sem er einmitt í season núna, það hefur komið á óvart hversu virkilega góður matur þetta er þegar vel tekst til.  Okkur var einmitt boðið í mat hjá Janet í gærkvöldi þar sem við fengum soðin spargel með soðnum kartöflum, svo er það bara salt og pipar og smá smjör, það er algert rugl hvað þetta er góður matur, eins og hann hljómar lítið spennandi.  Hérna í kvöld koma svo Gunnar og Erla að njóta með okkur spargel :)
Ég fékk mér MBT skó í Svíþjóð og er þvílíkt ánægður með þá, þetta er í fyrsta skipti í yfir 3 ár sem ég splæsi á mig skóm og þessir voru svosem ekki gefins.  En eftir að hafa gengið á þessu í nokkra daga verð ég að segja að þetta er alveg svaklega þægilegt og tekur verulega í aftanverð læri og rass, maður finnur að þetta er að virka sem er stórfínt.  Ég hef svosem aldrei haft nein sérstök bak eða hné vandamál en finn að þetta gerir ekkert annað en að styrkja, og mér finnst þetta bæta líkamsstöðuna mjög mikið.  Ég mæli því sannarlega með þessum skóm fyrir þá sem ganga mikið og vilja nýta tímann til að fá smá brennslu og styrkingu á sama tíma.  Ég hefði líklega aldrei fengið mér þetta á Íslandi, þar sem ekki er eins sjálfsagt að fara út að ganga þar eins og hér, þar sem maður gengur nánast allt sem maður fer. 

Nú hér er bara dagur eftir dag sem skartar sól og yfir 20 stiga hita, þetta er vægast sagt stórkostlegur tími og maður er einhvernvegin alltaf í partýskapi :)  Ég var að lesa að þetta væri hlýjasti Apríl mánuður í þýskalandi síðan 1820!!!  Ég leyfi mér allavega ekki að kvarta, og vona bara að sumarið verði svona áfram.

Ungfrúin fór í sund í dag og skemmti sér konunglega sem fyrr.  Hún er rosa kát og skemmtileg og þroskast greinilega hratt þessa dagana.  En það er eins og það sé enn eitthvað að pirra hana á kvöldin, og það virðist vera versna.....allavega í mínum augum og eyrum.  Hún grenjar nánast eins og þegar hún var með kveisuna í þá gömlu góðu!   En það er ekki málið, eru þetta tennur, geðveiki eða eitthvað annað???  Það veit ég svei mér þá ekki, en þetta er verulega óþolandi.

Hérna er svo að lokum ein mynd af föður og dóttur í sundi :)  Gleðilega hátið

3 ummæli:

  1. Mikið rosalega er þetta falleg mynd af sundgörpunum ;)

    Sjáumst svo eftir nokkra daga.

    Kv, BKB

    SvaraEyða
  2. Ég er mjög forvitin að vita hvað þetta Spargel er?
    Viltu fræða mig um það?

    Gaman að fylgjast með þroska föðurins í barnaslagnum, þú ert alveg að ná því hver vinnur þessa lotu. Ég heyrði einu sinni sagt: "Eitt barn ekkert en tvö á við tíu". Fannst það bara sniðugt þar til barn númer tvö fæddist hjá okkur og þá var barn númer þrjú eftir (tek það fram að það liðu 7 á milli tvö og þrjú) Eftir barn númer 3 hættum við!!! En erum auðvitað óskaplega ánægð með unglinganga og verðandi unglinginn.
    Gang ykkur allt í haginn og við sjáumst svo vonandi í Berlín í júní. Hefur HÖA beðið þig um að syngja með okkur?
    kv. Aðalheiður

    SvaraEyða
  3. Takk fyrir þetta Heiða, já Spargel er semsagt Aspargus eða bara "assbass" upp á íslenskuna :)

    HÖA hefur orðað eitthvað við mig, en ekkert hefur verið meitlað í stein ennþá, ég verð allavega til í slaginn þegar kallið kemur :) Hlakka til að sjá ykkur öll hérna eftir mánuð eða svo.

    SvaraEyða