6.5.09

Það er StarTrek dagur í dag, du dí dí (sungið með Daloon rúllu laginu)

Þá er komið að því að maður fái að sjá nýjustu Star Trek myndina.  Þetta lítur út fyrir að verða svakalega góð mynd, vona bara að það gangi eftir, enda engin annar en J.J Abrams (Lost, Cloverfield, Alias) sem pródúserar og leikstýrir.   Maður getur ekki annað en hlakkað til.

Hér er bara búið að vera skítaverður síðustu 3-4 daga, enda náttúruleg búið að vera frábært það sem af er sumri, það er allt í lagi þó það komi nokkrir leiðinda dagar.   Vona bara að væntanlegir gestir fái nú betra verður en er í kortunum!  

Það styttist óðum í Benefit-Gala tónleikana og ekki laust við að maður sé aðeins farinn að finna fyrir því í maganum.  Ég var að frétta í gær að við eigum að kunna utanbókar hið stórskemmtilega lag "O sole mio"......sem ég reyndar kann....... EN Á ÞÝSKU!!  Ég sit því sveittur við að reyna að læra þennan ógeðslega leiðinlega texta sem passar mjög illa við lagið...... en svona er þetta víst í "bransanum".

Nú Soffía er búin að hringja í svefnráðgjöf vegna títtnefndrar Júlíu, og það er byrjað að reyna að fylgja ákv plani með hana og það þarf að sjá  hvernig það kemur út.... vonandi bara vel!

Ég lýk þessu svo í dag með stórkemmtilegri mynd sem ég tók í DK, en þar var Sören aðalmyndefnið.......svo eftir á þegar ég var að skoða myndirnar kom svolítið fyndið í ljós :)

1 ummæli:

  1. aaaaahhahahahaha...finnst þessi mynd alltaf jafn fyndin, verið að sturta í sig áður en hún kemur fyrir hornið :D

    vonandi annars að það fari nú að komast einhver regla á þessi svefnmál hjá ungfrúnni...

    SvaraEyða