6.3.09

Að vera þannig upplagður

Þá er þessari fyrstu "vinnuviku" að ljúka og ég er smátt og smátt að melta með mér atburði liðinna daga.  Þetta er vissulega frábært að vera valinn af 460manns og ekki bætir nú úr skák tölvupósturinn sem ég fékk frá þeim í gær.  En þar stendur að ég hafi líka verið valinn til að syngja á sérstökum Góðgerðartónleikum sem haldnir verða í Mercedes höllinni hérna í Berlín þann 14.Maí nk.  Þetta eru semsagt tónleikar þar sem sérvaldir sigurvegarar úr Alþjóðlegri Söngkeppni Kammeroper 2009 koma fram.  Ég veit ekkert út á hvað það gengur en það skiptir heldur ekki máli eins og er :)

Nú svo fékk ég þetta nokkuð nákvæmlega útlistað hvernig þetta verður í sumar.

Æfingar hefjast 19. Júní og frumsýning er 27.Júní svo verða auka sýningar 10. og 25 Október í Braunschweig og fyrir það fæ ég borgað :)  Einnig vilja þau að ég taki þátt í Óperugala  sem verður haldið 2. 3. 4. og 5 Júlí.  Þetta lítur semsagt bara vel út og ég hlakka mikið til.

Í gær kíkti hingað Gunnar nokkur og við horfðum á Mad Max trílógíuna, það var ágætis skemmtun.   Á morgun eigum við svo von á Paul og Önu í kaffi, en þau voru á hinu geysiskemmtilega geburtsvorbereitungskurs með okkur.  

Júlíuhornið
Í gær rann upp fyrir okkur að Júlía hefur ekki verið að grenja út af verkjum í rúma viku!  Sem er mjög gott.  Hún hefur samt sem áður verið að grenja slatta og er mj0g vælin þegar hún tekur sig til.  Hún er ennþá með ótrúleg leiðindi þegar á að gefa henni að drekka og grenjar um leið og hún fer á brjóst, þetta er ótrúlega þreytandi og leiðinlegt, sérstaklega fyrir Soffíu, því það þarf alltaf að reyna að svæfa hana fyrst og svo bíða eftir að hún vaknar eftir um 5 mínútur og þá er hægt að gefa henni.   Við erum byrjðu að gefe blessuðu 3 mánaða barninu graut á kvöldin í þeirri veiku vona að hún muni sofa aðeins meira.  En eins og það lítur út núna virðist það ekki vera skila tilætluðum árangri, en það góða er að hún borðar grautinn og virðist alveg hafa gaman af því. Þetta fer allavega ekki illa í hana.   Það sem er að hrjá  hana núna er nefstífla sem virðist valda því að hún sefur ekki mjög vel.   Fyrir utan þetta má eiginlega segja að hún afskaplega ljúft og gott barn sem hefur mjög gaman af öllu í kringum sig.  Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur að sjá hverjsu hratt hún er að þroskast og hvað hún virðist vera með sterkar taugar.  Þetta er allavega júlíuhornið í dag, verði sæl.

Guð blessi Ísland.

2 ummæli:

  1. Vorið er sem sagt farið að láta á sér kræla á flestum vígstöðvum. Ekki skal ger lítið úr því.

    SvaraEyða
  2. Þá ertu sennilega farinn að uppgötva hvernig "sögnin að vera foreldri" beygist. Húrra fyrir frk. Júlíu, hvort sem hún ergir þig eða ekki. Hins vegar þekkti ég lýsingarnar á erfiðleikum við brjóstagjöfina. - Hún verður nú hins vegar ekki á brjósti alla æfi. Hún verður "bara" í hjartanu, heilanum og hverri taug!!! Þetta var þó huggun
    Ættarfylgjan ógurlega

    SvaraEyða