Allavega, snemma í fyrramálið hendist ég í tíma hjá títtnefndum Wolfgang, og svo heim að klára að vinna og svo er það bara til Íslands, þar sem góðvinur minn Þröstur ætlar að sækja mig á völlinn, ég mun stoppa stutt í Reykjavík og fljúga snemma til Akureyrar daginn eftir. Síðan á að skíra 14.febrúar, fljúga svo til baka til Reykjavíkur og eyða nokkrum dögum í Laugarási, svo er það að syngja fyrir Íslensku Óperuna og fara til tannlæknis föstudaginn 20.febrúar. Að öðru leiti hefur ferðin lítið verið skipulögð.
Svo er það áheyrnarprufa þegar ég kem út og síðustu 4 dagarnir í vinnu, þetta er allt stórmerkilegt. Ég er búinn að fá námslánið mitt, það fyrsta á ferlinum og ég get ekki annað sagt en það breyti ansi miklu, áhyggur af næsta ári hurfu fljótlega, þó þarf maður nú að fara varlega með það sem maður er með. Það er auðvelt að eyða peningum, þó þér séu nú eiginlega til þess:), en galdurinn er að gera það svo skynsemi sé í því.
Dagarnir hér hafa verið ósköp ljúfir og það er sannarlega ekki hægt að kvarta yfir því. Þó neita ég því ekki að ég sakna þess að sjá ekki Júlíu litlu vaxa á þeim hraða sem hún er búin að vera gera. Hún fór með mömmu sinni í höfuðbeina og spjaldhryggs jöfnun í gær og í dag, og skilst mér að hún hafi bara verið mjög góð, það er vonandi að það haldi áfram að vera þannig. Svo á mánudag þá eigum við tíma hjá íslenskum lækni, sem ætlar að taka röntgen og gera einhverjar rannsóknir, þá erum við allavega búinn að gera flest allt sem hægt er, nema að setja hana á formúlu. Það er semsagt versti kosturinn skv öllum. Svona er það nú.
Hérna eru svo tvær myndir sem ég fékk sendar í dag.


hún er svo sæt - veit hreinlega ekki hvernig þetta endar ;)
SvaraEyðaBKBen
Tollahliðin hér eru frábær... maður fer altaf í hnút og svo á maður hættu á að vera friskaður á leiðinn úr landi! meira bullið...
SvaraEyðajá hún er myndarleg frænka mín. Sérstaklega þegar hún er svona hágrenjandi eins og hún er á öllum hinum myndunum sem maður sér
SvaraEyðaJá, ekki eru þær fáar búksorgirnar er þú burðast með! Viltu annars nokkuð vera að koma?!!! hihihihi
SvaraEyða(þú ættir að prófa að vera ég í tolli; óhreinu nærfötin upp o.sv.frv.Það hafa oft verið gefandi stundir við klið lokaðara plastpokanna minna).
Er það nokkuð augntönn, sem þarf að líta á? Vonandi ekki. Þær eru verstar.
Já Lady Júlía, faðir Egill, hún fríkkar með hverri mynd... og einn góðan veðurdag (það er ótrúlega stutt þangað til) mun standa fyrir framan þig ung og falleg kona, ... sem glottir kankvíslega þegar pabbi/mamma láta gossa ráðleggingar og umvandanir.
Ritað af reynslu.
Ættarfylgjan.
P.S. Það verður ein samslungin dásemd fyrir ykkur að kynna krónprinsessu ættarinnar fyrir óðalinu. Ekki kvíði ég kuldanum þar!
Æ.