Stelpan hefur semsagt hlotið fullt nafn fyrir augum guðs og manna og erum við að sjálfsögðu voða ánægð með að þetta sé nú allt komið, þ.e öll formlegheitin búin.
Það er annars að frétta að ég kom til landsins fyrir rúmri viku síðan og hef dvalið í góðu yfirlæti hjá tengdó í Skagafirðinum. Þar var líka drifið í það að fara með þá litlu til læknis til að láta kanna allt sem hægt væri svo það væri nú hægt að útiloka alvarlegri hluti. Það var gert með rannsókn á blóði og þvagi auk skoðunnar hjá frábærum lækni á Akureyri. Þetta er semsagt bara ungbarnakveisa!! En það eru nú góðar fréttir að hún hefur stórlagast á síðustu 2 vikum. Núna er þetta að mestu bundið við kvöldin milli 20 og 1 á nóttu. Við erum því nokkuð ánægð með þetta þar sem sú litla er að mestu núna ansi lífsglöð.
Risastór veisla var haldin að Neðri-Ási, og sú litla fékk margar góðar og fallegar gjafir, héðan fara að sjálfsögðu margar þakkir til allra sem þangað mættu og glöddust með okkur.
Allavega við erum nú mætt í Holtið og þar verðum við fram á föstudag, en þá er ferðinni heitir til RVK þar sem þarf að útrétta ýmislegt :) M.a á að reyna að sína Íslensku Óperunni að ég get sungið og fara út að borða með frúnni á meðan guðfeðgin passa og sjá til þess að Júlía víki ekki af hinum gullna vegi trúarinnar.
Hérna fyrir neðan má svo sjá skírnarmynd af þeirri litlu og eina þar sem sú litla sýnir stollt plásturinn sem hún fékk eftir blóðrufuna sem hún fór í hjá lækninum :)

til hamingju með litlu dömuna :)
SvaraEyðaTil hamingju með snúlluna og fallega nafnið hennar. Gott að hún er farin að lagast og þetta ekki alvarlegra en ungbarnakveisa, hún ætti allavega að fara að rjátlast af henni fljótlega- vonandi. Allavega heyrir maður oft talað um 3 mánuði. EN ég er ekki expert í því annars :)
SvaraEyðakv. Ósk Gunnarsd.
Til hamingju með Júlíu Freydísi, flottar myndirnar af henni, hún hefur strax svo mikinn karakter, eins og hún sé eldri en hún er :)
SvaraEyðakv. Guðný frænka
Til lukku með nafnið, dásamlega fallegt.
SvaraEyðaKnús Helen
Til hamingju med fallegt nafn á fallega dömu :o)
SvaraEyðaKv.
Ása í DK