1.2.09

Að hafa ekki vitað þetta áður

Í gær var sem sagt farið á "The Bird", sem fyrir þá sem ekki vita er hamborgara og steikarstaður að bandarískri fyrirmynd.   Þangað er langt að fara fyrir mig, eða um klukkutími.  Við hittumst þarna fámennur hópur íslendinga til að gæða okkur á hamborgurum.    Það má eiginlega segja að þarna hafi ég smakkað besta borgara í heimi fram til þessa.  Það er með ólíkindum hvað þetta var gott, kjötið var líklega um 6-7 cm breitt gert úr glænýju nautahakki, með einhverjum ruglgóðum kryddum og eldgrillað.   Þetta var að sjálfsögðu ekki eldað meira en "medium rare", þeir taka það reyndar fram á matseðlinum að vinsamlegast ekki biðja um meiri steikingu en medium :)  Ég kann vel við þennan stað.  Maður fær troðinn disk af miklu góðgæti, allt er búið til á staðnum meira að segja tómatsósan.  Mínusarnir sem staðurinn fær er háfaðinn og svo var bjórinn hálfflatur. En ég mun alveg örugglega fara aftur.  Verðmiðinn?  Jahh, ekki það ódýrasta, en 11 Evrur fyrir borgarann og 3 fyrir bjórinn, en það má svosem teljast eðlilegt.   Þarna eru líka steikur sem gaman væri að prufa, en fyrir 300gr steik þar að borga litlar 36 Evrur, en miðað við borgara reynsluna, þá efast ég ekki um að steikin sé góð.


Jæja þá fer maður að koma sér í það að læra tónfræði og tónlist.  Júlía er enn við sama heygarðshornið og ekkert við því að gera, þó á að reyna að panta tíma hjá lækni í næstu viku, einhverjum sérfræðingi í óþoli barna.  Verður gaman að sjá hvað kemurútúr því.

5 ummæli:

  1. nammm þetta lítur ekkert smá girnilega út !

    SvaraEyða
  2. Þar borgarinn bráðnaði' á tungu
    að bandararískum sið.
    Öll borð þar og búnaður sungu
    er bragðaði' eg góðgætið.

    SvaraEyða
  3. Þessi fer á "things to do before I die" listann..... :)Ekki að það sé neitt sérstaklega á planinu !

    SvaraEyða
  4. Thegar Søren kemur og hleypur Berlínar marathon, thá verdur thú nú ad fara med mig á "The Bird";o)

    SvaraEyða
  5. Jésúss, hvað ég hlakka til að fara þarna með þér, mömmu og pabba og heilum stór-kór.... að vorlagi!
    Ættarfylgjan

    Panta borð einhvern tíma á bilinu 5-8 júní. .. "þá mega sko fuglarnirt fara að vara sér" eins og segir í gömlum revíutexta.

    SvaraEyða