18.1.09

12 tímar, nútímaverk, besame og eitthvað fleira

Það má segja að dagurinn hafi hafist á því að sofa í eina 12 tíma, sem er nú ekki algengt hér á bæ. En í ljósi þess að littla dóttir mín og eiginkona eru nú farin af heimilinu til Íslands, þá gefst manni kostur á slíkum munaði :) 

Nú dagurinn hófst á því að fara beint að æfa mig, því þetta syngur sig nú ekki alveg sjálft.  Svo var hentst á æfingu í Listaháskólanum hér í Berlín.   Æfingin gekk vel og við náum öll vel saman sem þarna erum, ekki skemmir að ég þekki nokkuð vel til 3 af meðsöngvurum mínum.  Tónskáldið var mætt á svæði til að svara spurningum um verkið og ef það væri eitthvað sem þarf að laga.  Nú svo hófst æfingin eftir að búið var að láta okkur öll fá headphones, þetta virkar þannig að við fáum línuna okkar spilaða í eyrun, þar sem ekkert mark er takandi á nótnagildum, þögnum og takkt stærðum.  Það er svosem fínt og æfingin gekk svakalega vel, eiginlega mikið betur en ég þorði að vona.  Svo r önnur æfing á morgun og svo bara kvikmyndaupptaka og tónleikar á þriðjudag.

Á leið heim  með lestinni, söng fyrir mig vinkona mín, sem syngur bara Besame Mucho, og gerir það með hrikalega breiðu og leiðinlegu víbratói, auk þess að vera klædd í svona "ESSO flíspeysu" sem er nú ekki alveg til þess að auka á gleðina hjá fólkinu.  Hún tók þó inn slatta af pening sýndist mér, allavega meira en margir aðrir sem maður hefur séð í lestunum hérna.

Nú inn er komið SJÓÐHEITT VIDEÓ,  en áður en horft er skal skilja fordóma og vanþekkingu eftir við lyklaborðið.  Hlutar í vídeóinu gætu farið fyrir brjóstið á vitleysingum sem hafa annan húmor en ég.  Eins mega þeir sem telja sig betri foreldra en okkur einnig sleppa því að horfa.
Góða skemmtun.


Guð blessi Ísland.


7 ummæli:

  1. hahahaha snilld :)
    hún er nú meira krúttið :)

    SvaraEyða
  2. bimbirimbirimbam - ég get ekki séð vídeóið, hlakkaði voða til og lofa því að ég verð ekki með neina sleggjudóma :) Þarf ég að vera með eitthvað sérstakt forrit til að geta gluggað í þetta?
    kv. Kristín Ósk

    SvaraEyða
  3. Það þarf vera með flash uppsett, það sama og er notað til að skoða Youtube td. Ef þú getur skoðað Youtube þá áttu að geta skoðað þetta.

    SvaraEyða
  4. Gaman var að sjá yndið ykkar "live", hún er alveg yndisleg. Flott myndband :)
    Kv. Dagný Ösp (Soffíu frænka)

    SvaraEyða
  5. Mynd sem tjáir meira en mörg orð og undirbúningur áhorfenda undir áhorfið reyndist ekki hafa verið í samræmi við upplifunina sem síðan átti sér stað.

    SvaraEyða
  6. Jæja, ég fór í aðra tölvu og gat loksins horft á dömuna. Viðvaranir voru með öllu óþarfar - bara yndislegt að sjá dömuna svona live :) Og þessar hrotur - hlýtur bara að vera fallegasta hljóð í heimi - ég tala nú ekki um eftir andvökunætur!
    Kv. kristín ósk

    SvaraEyða
  7. Mikið er hún dásamlega falleg hún Júlía litla.
    Bestu kveðjur frá Fróninu fagra.
    Aðalheiður

    SvaraEyða