30.12.08

Til hamingju með daginn



Sá gamli heldur nú hátíðlegan afmælisdag, eða þann fyrsta síðan hann varð afi :)  Ég límdi hér saman tvær ólíkar myndir sem ná líklega yfir um 30 ára tímabil.  Sá gamli hefur elst vel og sendum við honum afmælisóskir héðan frá Berlín.

Héðan er annars allt gott að frétta, í gær var rólegur dagur í þeim skilningi að hlutfallslega hefur líklega verið minnst grenjað.  Þó var mikið vælt og sú litla sefur eiginlega ekki öðruvísi en í fanginu á mömmu eða pabba.  Það er frekar þreytandi, en betra en að hafa hana grenjandi.   Ekki er ljóst hvað olli þessum umskiptum, en mjólkurvöruneysla mömmunnar gæti verið faktor.  Ég fór allavega með hana í hefðbundinn pabba-dóttur göngutúr um kl 2 eins og ég hef gert undanfarnar nætur.  Líklega er maður að skapa sér eitthvað víti með þessu, en mér er eiginlega alveg skítsama, svo lengi sem maður fær frið.  Soffía fékk allavega að sofa yfir 6 tíma og ég í kjölfarið eitthvað svipað.  Það var fínt.    Hef ekki upplifað það að sofa fram yfir kl 16 á daginn síðan ég var í menntaskóla, og það er nú langt síðan, en það gerðist í morgun, ó þvílík skelfing að elska þig :)

Annars er allt gott að frétta héðan fyrir utan það eina sem kemst að þessa dagna.  Ég er búinn að vera ná að horfa á alla sjónvarpsþætti sem hér eru búnir að vera safnast upp.  Ég hef vissar áhyggjur af því að þetta verði nú ekki eins gaman þegar ég byrja að vinna aftur á nýja árinu, en það er slagur sem ég tek þegar að því kemur.    

Hér á heimilinu þarf nú aðeins að skoða neyslu matvæla með tilliti til mjólkuóþols, sem við gefum okkur að sé málið.  Ég stóð frammi fyrir því í gærkvöldi að vera elda kjöt og meðþví, en hvernig gerir maður sósu án smjörs og rjóma....??!?!?  Hmm..... það er nú bara hreint ekki svo flókið, maður bara sleppir smjöri og rjóma!  :)   Allaveg notaðist ég bara við hefðbundna uppskrift og sleppti áðurnefndu, það virkaði bara svona líka vel.  Sauð upp sósuna sjálfur frá grunni, það er hrikalega gaman, svona rétt eins og henda í humarsúpu, sem ég tel nú að sé orðin ákveðin sérgrein hjá mér, ætla að henda í eina allavega þegar við komum til Íslands í febrúar.

Af söngmálum er það að frétta að mér var að berast inn á borð að taka þátt í tónleikum sem marka eiga Wannsee fundinn mikla sem fór fram 20.janúar 1942 hérna í Berlín. EN fyrir þá sem ekki þekkja það, þá má segja að þar hafi hafist það sem kallað var "Die Endlösung", eða "lausnin á gyðingavandanum".   Nú..... þetta er ss eitthvað próject sem ég komst inn á í gegnum Janet Williams og á að vera samstarfsverkefni Ísrael og þýskalands, ekki skil ég alveg afherju ég er í þessu, en svona er það nú bara :)  Þetta er eitthvað hrikalega framúrstefnulegt, sem er nú ekki mitt "cup of tea", en svona er það nú bara ég er loksins í þeirri aðstöðu að geta ekki alveg sagt nei við verkefnum.  Það verður vissulega áhugavert að sjá hvað þetta ber í skauti sér.  Ég leit svo á að verkefnin felast í "exposure" eins og staðan er í dag.

Jæja, sú sem allt vald hefur á heimilunu kallar og ég þarf að bregðast við því, með göngutúr, klukkan er jú að nálgast 2.........  Góða nótt og til hamingju með daginn afi :)

4 ummæli:

  1. Flott mynd :)

    Já það er vonandi að þetta mjólkur-dæmi sé málið svo að litla prinsessan fari nú að sofa meira og grenja minna :)

    SvaraEyða
  2. Ég þakka góðar kveðjur með vekjandi mynd og sendi til baka von um að næturgöltur fari nú minnkandi.
    Gott fyrir ykkur að fá tilfinningu fyrir því hvernig svefnmálin verða þegar mínum aldri er náð :)

    SvaraEyða
  3. Til hamingju með hlutverkið, föðurinn, og að vera búinn að finna þetta út með mjólkina. Vonandi verður framhaldið þægilegt. Bestu kveðjur! Þrösturinn Freyr

    SvaraEyða
  4. Varðandi sósuna:
    skiptu grunninum upp í tvo potta;
    annan án
    hinn með.
    Og allir verða harla glaðir í hjarta - og vonandi maga.

    Rebbi ráðagóði

    ... barnastýrin sem lentu í að verða mín barnabörn (6 og 8 ára) kalla mig þessu nafni!
    H.Ág.

    SvaraEyða