2.12.08

Stressið magnast

Eins og lesendur þessarar síðu átta sig líklegast á þá er enn ekkert barn komið í heiminn, en það er væntanlegt.  Átætlaður komutími er fimmtudagur og í allrasíðasta lagi föstudagur.   Þetta er svosem ágætt, nema kannski fyrir þá staðreynd að ég er að fara í mjög stóra audition á laugardaginn.  Það verður ekki áhugavert að mæta lítið sofin í þá þrekraun!   EN eins og ég hef áður sagt, maður verður bara að reyna að gera þetta eins og best getur orðið miðað við aldur og fyrri störf.

Í gærkvöldi skellti ég mér á lokakvöld í keppni í klassískum söng hérna í þýskalandi.  Þessi keppni er eingöngu fyrir Þjóðverja, og er sú stærsta sinnar tegundar í þýskalandi.  Þarna keppa nemendur allastaðar af landinu.   Keppnin fór fram í Deutsche Oper, og við sátum nánast aftast og efst í húsinu, en sáum vel.  Þegar maður situr svona aftarlega sér maður í raun hversu vel söngvarar berast, sem er nú eitt af því allra mikilvægasta sem söngvari þarf að hafa.   Og viti menn, það voru tveir söngvarar þarna sem bárust eitthvað í þessu stóra óperuhúsi, annarsvegar var stelpa sem ég söng með í Fledermaus um daginn og hinsvegar var það sú sem vann, og hún átti það svo sannarlega skilið, fín rödd, þó ekkert sérstaklega spennandi, en mjög fín.   Auðvitað er það ákveðin standard að komast í svona keppni, það ber vott um vinnusemi og mikla tilfinningu fyrir tónlist og flutningi hennar, sem flestir keppenda höfðu gott vald á.   Strákarnir í keppninni voru sérstaklega illa til fara raddlega og ég skil bara ekkert í því hvernig í ósköpunum þessir menn komust áfram!    Ég get reyndar eftir þessa orðahríð bara vonað að mín rödd muni berast í komandi áheyrnarprufum, og að þetta sé nógu gott hjá mér.  Ég set sjálfan mig að sjálfsögðu á sama standard og ég ætlast til að af öðrum sem ég horfi á, annað væri bara fásinna. Mér skils á fólki sem þekkir til að þetta sé hin svokallaði "þýski skóli", þar sem mikil áhersla er lögð á tónlistarlega hæfni og ákveðna fegurð, sem virðst vera fólgin í því að syngja voðalega létt og veikt, og skv því sem ég sá í gær virkar það bara alls ekki!!   Það er mikilvægara að leyfa hverri rödd að vera eins og hún er og reyna að ná fram þessu svokallaða "klangi", eða fókus í röddinni.  Ef þetta er ekki til staðar, þá skiptir bara engu máli hvað þú ert með fallega rödd, ef þú berst ekki yfir hljómsveit, þá þarftu eitthvað að endurskoða.   Ég ítreka, ég veit ekkert hvort ég get þetta sjálfur en ég veit að það sem ég sá í gær var ekki rétt.  Og endaði á að vera mjög óspennandi fyrir vikið.

Jæja, þá er að halda áfram daglegu lífi, fer í tíma hjá Janet seinnipartinn, þann fyrsta  í rúmar 3 vikur. 

2 ummæli:

  1. Þú hefur skellt þér, en gaman. Hvernig fannst þér Annika Ritlewski (3. sæti - Adieu notre petite table, Manon)? Hún er að syngja með mér í Konzerthaus og mér finnst hún alveg frábær. Og miklum mun betri heldur en Denise sem vann - hún hefur jú raddstyrk, en vá hvað hún er spes. Og bara ekkert sérstaklega klár, því miður, né músíkölsk...

    Sorry btw að ég skellti svona á þig í gær! Átti víst að vera uppi á sviði, hélt ég hefði pásu....
    Heyri í þér bráðlega, fylgist annars reglulega með hérna...

    SvaraEyða
  2. Öh, já, also, ég þekki sumsé Denise úr komische oper ravel kór dæminu (nei, ég er ekki bara að tjá mig um það sem ég sá á netinu um keppnina...!)

    SvaraEyða