15.12.08

Stóra ömmu og afa vikan

Jæja, þá eru foreldarnir farnir á flugvöllinn.  Hér er búið að vera líf og fjör síðustu viku, með fullt hús af fólki.  Júlía hefur verið frekar óvær og virtist vera að taka einhverjum framförum á Minifominu, en það er eitthvað breytast aftur, því eru skemmtilegar andvökunætur framundan og með vinnu er það svona eitthvað sem væri gaman að sleppa við.  En svona er það nú bara.

Hér var farið á jólamarkað, og smakkaðar Thüringer Wurst, sem eiga að vera með þeim upprunalegustu sem eru til.  Þær eru allavega svakalega góðar og alvega þess virði.  Þó eru þær nú ekki eins spes ef maður kaupir þær og eldar sjálfur, en alveg ætar.  Jólamarkaðir eru algerlega troðnir og ánægjan við að fara og skoða er nákvæmlega engin, sem er alger skömm.  Þetta á að vera eitthvað svona skemmtilegt jólaupplifelsi en er í staðinn ergelsi á því að komast ekkert áfram og sjá ekki neitt fyrir fólki.  Já maður þarf eitthvað að hugsa sig um ef maður ætlar að mæta á svona markað.

Hér er annars lítið að gerasta framundan, bara reyna að hvíla sig sem mest maður getur á milli þess sem maður reynir að vinna eitthvað þessa síðust daga fram að jólum.  Ég fékk reyndar hringinu frá Burgeramtinum hérna í Þýskalandi, ég hefði svosem getað sagt mér það fyrirfram, en ég verð að viðurkenna að mig grunaði að ég fengi þetta símal.   Málið snérist semsagt um það að spyrja hvort eftirnafnið hennar væri rétt skrifað, því ég heiti jú Egill, en hún verður Egilsdóttir, og þeim fannst svona að það ætti að vera Egillsdóttir, sem er svosem ekkert ólógískt, en svona er það bara ekki á Íslandi, og það var bara ekkert mál, þeir voru bara að doubletékka.

Jæja best að fara hvíla sig, ætlaði að hendast á tónleika hjá Dísu vinkonu minni hérna í kvöld en er bara svo gjörsamlega búinn á því núna að ég kemst ekki, þvímiður :(

Ég lík svo þessu bloggi á "peace out" frá Júlíu Egilsdóttur, sem hefur þetta væntanlega frá frænku sinni á gullskónum.
 
Og að sjálfsögðu eru komnar nýjar myndir!!!!

5 ummæli:

  1. Ánægð með Júlíu mína - ánægð með samherjar í friðarbaráttunni ;)

    Kveðja
    The Golden girl.

    SvaraEyða
  2. æjj elsku sæta litla barn :)
    með taktana á hreinu..hugsuðurinn mikli !

    SvaraEyða
  3. Æðislegar myndir ;)
    Kristín Ósk

    SvaraEyða
  4. Ótrúlega svöl! :-)

    SvaraEyða
  5. Á gullaldarárum mínum táknaði merkið sem ungfrú Júlía er þarna að sýna, sigur, sbr. Churchill í heimsstyrjöldinni síðari. Hún er bara að gefa til kynna að sigur muni vinnast á magastandinu. :)

    SvaraEyða