Júlía litla hefur verið talsvert óvær síðustu daga, og lítið er því um svefn á okkur umsjónaraðilunum. Tengdó eru nýfarin heim og m&p mætt á svæðið, það er voða gaman að hitta fólkið sitt, en maður er kannski alveg nógu úthvíldur. Þegar þetta er skrifað eru þau úti í göngutúr með barnið og Soffía sofandi. Ég er hinsvegar á leiðinni í tíma hjá títtnefndum Wolfgang.
Við erum búin að fá fullt af góðum gjöfum frá góðu fólki, og langar mig að nota þennan vettvang til að koma á framfæri MIKLUM þökkum til ykkar allra.
Foreldrarnir komu færandi hendi og við erum nú tilbúin í jólahaldið, höfum allt til alls. Þau komu líka með lyfin Minifom og Dicycloverine Chlordide, til að hjálpa í baráttunni við óværuna. Minifomið viriðist ekki vera að skila tilætluðum árangri en það er rétt að gefa því séns í þessa 2-3 daga sem er talað um að maður eigi að gefa það. Ef það virkar ekki þá neyðumst við til að prufa að gefa hitt, sem ég er ekki mikið hrifin af, en hvað getur maður gert..... það er ekki boðlegt að horfa upp á barnið kveljast svona, og við gerum lítið gagn örmagna af þreytu, þannig að þarna ættu að leysast tvær flugur í einu höggi. Við erum búin að sýna ljósmóðurinni okkar þetta og hún telur að þetta sé í lagi, en ætlar að rannsaka aðeins Dicycloið.
Jæja meira var það ekki í bili. Á mánudag/þriðjudag koma svo FULLT af nýjum myndum. Stay tuned.
Til lukku með nafnið. Mjög fallegt- hlakka til að heyra hitt.
SvaraEyðaBara til að bögga ykkur aðeins þá voru tvíburarnir að vakna til skiptis á korters fresti þegar þeir voru 1 árs...vona að daman lagist fljótt- maður getur orðið nett geðv.. á svefnleysi ;)
kv. úr jólasnjónum á klakanum
Ósk
... og elsku barnið svona kvalin og hvíldin lítil hjá henni og ykkur. Æ, vonandi fer eitthvað að virka.
SvaraEyðaMinnist alveg hærðilegrar, hræðilegrar nætur fyrir 29 árum; litla fegurðardísin stjörf eins og fjöl i fangi föðurins og móðirin í símanum að "gráta út" lækni.
... ógleymanleg nótt.
Júlía, já, Júlía - og bannað að afbaka voanandi? Klassiskt og kvenlegt nafn.
Heilsu- og hvíldarkveðjur
H.Ág.
Ég er með hugmynd að millinafni ef þið eruð í mjög miklum vandræðum.
SvaraEyðaHvernig hljómar Júlía Helen Egilsdóttir
Til hamingju með fallega nafnið hennar Júlíu! Sendum ykkur hlýjar kveðjur :-)
SvaraEyða