Það kom að þeim tímapunkti þar sem ég þurfti að játa mig sigraðan fyrir öflum náttúrunnar. Júlía er búin að versna og versna síðustu daga, og þetta var komið á það stig að hún var lítið sem ekkert búin að drekka í næstum sólarhring. Það var því tekin sú líðræðislega ákvörðun að gefa henni örlítið af lyfinu sem við ætluðum ekki að gefa, fyrr skyldi annað fullreynt. Við erum ss búin að reyna nudd, jurtate, Minifom og ég veit ekki hvað og hvað. En Dicycloverine virkaði, og það besta við það er að við notðum bara mjög lítið. (Takk Þröstur fyrir að benda okkur á þetta). Ég er samt búinn að panta nokkuð vinsælt hómópatalyf sem ég ætla að nota ef það kemur fyrir jól, það heitir ColicCalm og er auðvitað frá Bandaríkjunum, það er talað um 90% árangur með því og ég er frekar til í að nota það en Dicyclóið, ef ég hef val.
Ég hentist í tíma í dag hjá Wolfgang, og var súper ánægður með hann að venju, þetta er snillingur, ég hef sagt það áður og segi það enn. Við erum búin að kaupa jólatré og það er líklega um 2m hátt, og kostaði okkur aðeins 10 evrur, sem er vel sloppið, verst að við þurfum að eyða duglega í jólaskraut á það :) Hefðum átt að hugsa þetta aðeins áður en við keyptum :) Ég er annars bara kominn í jólafrí og hlakka til að hætta hugsa um vinnuna og söngin í bili. Maður hefur gott af því að taka sér smá pásu.
Nýjar myndir af Júlíu eru komnar inn á
myndasvæðið fyrir þá sem eru enn áhugasamir um slíkt.
Mikið er gott að heyra að henni líði betur - verst að þurfa að leita neyðarúrræða! Rosa fínar myndir, eins og alltaf - gullfalleg stúlka sem þið eigið :) Kveðja úr snjó og skemmtilegheitum á suðurlandinu.
SvaraEyðaKristín Ósk
Svipurinn er óborganlegur :)
SvaraEyðaÆ, samt gott að frétta að þetta hafi virkað sem síðasta úrræði - þar til annað betra finnst. Fallegar myndir :-)
SvaraEyðahttp://explosm.net/comics/1500/ hahah :)
SvaraEyða