Hvar skal byrja..... hm jú kannski er best að byrja bara á henni Júlíu. Hún er óvær og hefur verið það sérstaklega mikið síðustu 2-3 daga (ekki alveg viss hvaða dagur er lengur). Við erum með sterkt lyf sem skiptist í krampastillandi og verkjastillindi, sem ekki er mælt með að gefa börnum undir 6 mánaða. Þetta hefur þó verið gefið með góðri raun hér og þar. EN þetta lyf kannast lyfjafræðingar ekki einusini við hérna í þýskalandi. Ljósmóðirin segir að það sé eflaust ekki góð hugmynd að gefa þetta, en ef við verðum gjörsamlega búin á því þá ættum við kannski að prufa. Ég er ekki tilbúinn að gefa henni þetta alveg strax, þó mig dauðlangi til þess. Ég var að byrja á að reyna að gefa henni Te í dag, sem inniheldur, kamillu, fennel, anís og eitthvað meira sérsniðið fyrir colic, sem er ekki einusinni víst að hún sé með. Hún virðist meira vera að gráta núna af því að hún er svöng...!!! Það er svosem hugsanlegt, en sjáum hvað teið gerir, það getur tekið 12 tíma fyrir svona lagað að virka. Ég er einnig búinn að panta hómópatalyf á netinu og það er spurning hvort það geri eitthvað. Ég vil gera allt annað en að setja greyið á lyf.
Ég hentist í bíó á þrifjudagskvöld, fyrir valinu varð "The day the earth stood still", hún er ekkert spes og ég mæli ekkert sérstaklega með henni.
Ég er búinn að forvitnast aðeins um áheyrnarprufur á nýju ári, og þann 27.janúar er ég semsagt að syngja fyrir agenta hjá ZBF. Svo 26.febrúar er ég að syngja fyrir lítið hús rétt utan við Berlín, í litlum bæ sem heitir Neustrelitz. Þetta er allt voða spennandi. Ég þarf svo að senda inn DVD með upptöku af mér fyrir KammerOper Schloss Rheinsberg, sem er árlegur viðburður, og veikindi orsökuðu það að ég gat ekki sungið fyrir þau fyrr á þessu ári. Þetta verður eflaust hrikalega spennandi. Nú svo erum við á leið heim í febrúar, og verðum í 2 vikur, m.a til að skýra þá litlu og opinbera millinafnið hennar. Eins ætla ég að syngja fyrir Íslensku Óperuna, og sjá hvort þau vilji eitthvað með mig hafa :)
Gunnar og Erla eru að kíkja til okkar í kaffi núna eftir smá stund. Vona að sú litla verði til friðs :
svo er ein mynd í lokin.

Júlía er sæt :)
SvaraEyðaKv. Gullfrænkan
voðalega er hún nú lík mömmu sinni á þessari mynd :)
SvaraEyðaJá jólaskraut ... en:
SvaraEyðaheimahnýttar slaufur - í dökkgrænum, djúprauðum og gylltum tónum eru fínasta skraut! Bara kaupa blómavír og borða í metravís. Og hnýta svo!Rauðköflóttar/skotaköflóttar eru líka fínar.
Það þarf ekkert að kaupa annað nema ljósaseríu og auðvitað stóru stjörnuna á toppinn... handa fröken Júlíu.
H.Ág.
... og svo batnar nú litlu stýri...