Ég er að hendast til Wolfgang núna á eftir nokkrar mínútúr, ég fór semsagt líka í tíma hjá honum í gær :) er búinn að eyða um 400 Evrum í söng í þessum mánuði, þetta kostar mikið og vonandi nær þetta nú að standa undir sér bráðum. En komandi námslán ná kannski að bjarga einhverju, þar sem núverandi laun ná rétt að dekka mat og leigu, eitthvað minna verður það í mars, en svona er það bara, ekki vera vanþakklátur fyrir það sem maður þó hefur.
Hérna fyrir neðan birti ég svo myndband frá því í gærkvöldi, þar sem ég er að syngja hina fáránlega erfiðu "Di rigori armato il seno" úr Der Rosenkavalier eftir Richard Strauss. Fyrir þá sem ekki vita þá er þessi aría eina tenórhlutverkið í þessari 6 tíma löngu óperu... ansi magnað ekki satt :)
Flott :)
SvaraEyðaÞað verður ekki annað sagt hér en að þetta megi ekki verða mikið betra.
SvaraEyðaVááááhh!
SvaraEyðaH.Ág.