Af söngmálum er allt gott mér er að fara fram sem aldrei fyrr og er ég að verða ögn bjartsýnni á þetta en ég hef verið, þó ég hafi alltaf talið að ég gæti þetta á endanum. Það er bara svo satisfying þegar blóð sviti og tár skila sér. Ekki má það heldur seinna vera þar sem ég er skráður í eina af stærstu söngkeppnum Evrópu eftir rétt rúmar 2 vikur, vona bara að erfinginn láti sjá sig fyrir þann tíma, ekki væri á pressuna bætandi :)
Á morgun er svo stefnan tekin á "Quantum of Solace", að loknum tíma hjá Janet, það verður fróðlegt að sjá hvað hún segir um framfarirnar þar sem ég hef ekki verið í tíma hjá henni í næstumþví 3 vikur. En Wolfgang títtnefndur hefur verið að taka upp slakann í millitíðinni, með þessum fína árángri sem ég er að upplifa. EN þetta er háð því að ég einbeiti mér virkilega og læri heima, sem ég geri núna í mun meira mæli, þar sem ég sé loksins að þetta sé að skila einhverju.
Óléttuhornið:
Allt er tilbúið hér sem fyrri daginn. Þó á að taka meira blóð úr S, bara til að vera viss. Ég er búinn að hringja í barnalæknastöð hérna ekki langt frá, og þau eru tilbúin að taka barnið í svokallaða U2 skoðun. U1 er framkvæmt þegar barnið fæðist, og svo U2 annarsstaðar. Óléttutaskan er tilbúin, með "heimferðarfötunum" og fleira dóti. Ísskápurinn fullur af Powerade sem á að notast til orkugjafar í fæðingu. Hér er semsagt bara allt tilbúið. Fullt tungl þann 13 nóv ýmislegt gerist á fullu tungli..... spennan eykst.

ég er bara ekki alveg að ná þvi að það sé bara komið að þessu .... bara nokkrir dagar - það væri samt alveg mega töff og cool ef erfinginn kæmi 1. des
SvaraEyða;o)
Hafa þjóðverjar ekki heyrt talað um rafræn skjöl? :)
SvaraEyðaKveðja úr sunny Reykjavík
Sko hér er þarfasti þjónn heimilanna FAX tæki!! Hvort sem þú trúir því eða ekki. Það er eins rafrænt og það verður hér þvímiður.
SvaraEyðaSenda þeir þá grín fax á félagana? hehe... ekki það að öll tölvutækni verður sennilega flutt úr landi upp í skuldir íslendinga erlendis svo Reykjavík framtíðarinnar verður sennilega að reiða sig á bréfdúfur og flöskuskeyti :p
SvaraEyða