17.11.08

Ég trúi bara ekki að....

...það sé tæp vika síðan ég bloggaði síðast!  Svo hratt líður tíminn núna að maður veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið.   Hér er ss nóg að gerast.  Ég fór 2x í bíó í síðustu viku, auk þess að syngja í svona opnum tíma hjá "advanced" nemendum Janet, svo var farið til Wolfgang, síðan á masterklass sama dag og svo í brunch og einkatíma á sunnudeginum, það má sannarlega segja að mikið hafi gerst á stuttum tíma :)  Sem er gott.

David heyrði auðveldlega framfarirnar í röddinni, og er alveg sammála þessari nýju stefnu, hann gat sýnt mér og sagt mér hvernig ég væri að gera og ætti að gera það sem ég er að gera núna og hvernig er best að þróa það. EN hann stoppar mig ekki af þegar ég er að beita of miklum þrýstingi á raddböndin, en það gerir hinsvega Wolfgang og  því er mjög gott að vera hjá honum þessa dagana.  Mér bauðst annar tími hjá David í gær, þar sem einn hætti við, og ég allranáðarsamlegast afþakkaði..... sem ég hélt ég myndi aldrei gera með tíma hjá David!!  EN málið er bara þannig núna að hver tími kostar hjá honum 17.þús ISK, og það munar sannarlega um 37þús kall.  Wolfgang lækkaði tímaverðið hjá sér á laugardaginn úr 60 í 50 þar sem við erum farnir að þekkjast betur.  Þetta munar ansi miklu!!  Sérstaklega þar sem hann er vel þess virði.
Ég var búinn að segja frá því að núna finnst mér ég fyrst eiga einhvern séns í þennan bransa og hlakka til að takast á við þetta.

Tilhlökkun vegna komu frelsarans er í lágmarki, þó manni hlakki alveg til, en maður er bara svo mikið búinn að bíða, að þetta er bara svona eitthvað sem maður fer ekkert að hugsa um fyrr en allt fer af stað, sem er líka ágætt, ekkert að vera alltaf að hugsa um þetta heldur geðinu í lagi.

Óléttuhornið:
Nú í fjarveru minni hefur kjarnakonan hún Soffía ráðist í það að þrífa íbúðina hátt og lágt, og þá á ég við nánast hvern krók og kima sem hægt er að finna í búðinni.   Þetta er soldið til marks um það hvað henni líður í raun vel, þar sem það truflaði hana ekkert að vera ólétt :)  Eða allavega ekki mikið.  Nú eru bara um 3 dagar í settan dag, og ég er sem fyrr að vona að barnið láti sjá sig í fyrsta lagi á næsta sunnudag eða 23 nóv, nú eða eitthvað aðeins seinna en það, því eins og ég held ég hafi áður minnst á þá eiga sambönd á milli Vatnsbera foreldris og Sporðdreka barns að vera mjög erfið EN hinsvegar Bogamanns barn..... það er allt annað!   Það er gaman að taka það fram að David Jones á einmitt afmæli þann 23 :)  Hann er búinn að stinga upp á sínu nafni fyrir barnið þegar það fæðist, eins og svo margir aðrir :)  Hann heitir nefnilega David Lynn Jones, og ef þetta er strákur þá á hann að heita David Lynn, en ef stelpa, þá Lynn David.   Greinilega mikið búið að hugsa þetta....... EN ég held ekki :)

Gaman væri að sjá uppástungur fólks um nöfn á erfingjann, hvort sem það er stelpa eða strákur. Og ég held að fólk geti svosem sleppt því að stinga upp á Jón Páll, þar sem sá brandari er orðinn frekar þreyttur :)  (NB við erum búin að finna nöfn hvort sem það er stelpa eða strákur)
 

6 ummæli:

  1. Sko bogamannsbörn eru bara dásamleg börn, þarft ekkert að hafa fyrir þeim, nei nei (getur bara spurt BS og KS)

    En hvað varðar nöfn ... þá sting ég upp á Lára ef það verður stelpa hahah og Sigtryggur ef það verður drengur!

    :)

    SvaraEyða
  2. ....Nei - ég hætti við að segja það sem ég ætlaði að segja, en það tengist brandara. :)
    "The plot thickens"

    SvaraEyða
  3. Ég geri ráð fyrir því að þú munir eftir "Láru-ræðunni" sem þú fékkst hér í sumar Bergþóra ;)

    Kv
    SJ

    SvaraEyða
  4. Jú jú ég man eftir henni - Lára klára ;)

    bkben

    SvaraEyða
  5. Það læðist að mér sá grunur að Birkir og Birkirína séu á topp 5 listanum ykkar :) hehe

    SvaraEyða
  6. Sonurinn: Drapnar (takið eftir p í miðjunni)

    Dóttirin:
    Páldröfn

    Liggur í augum uppi!

    H.Ág.

    SvaraEyða