Í gær söng ég á tónleikum á stað sem heitir "Teehaus im Englischen Garten", þetta var nú bara kósí andrúmsloft og ekki alslæmt. Þó var sú sem söng með mér á einhverjum villigötum, þar sem hún virtist ekki kunna mikið utanbókar, sem varð henni svolítið til mikillar minkunar, ég þakka nú fyrir þá innrætingu sem ég fékk í söngskólanum, að maður fari ekki á svið með nótur. Þetta er þó ekki eitthvað sem ég lifi eftir, en er alltaf gott að hafa í huga, þar sem nóturnar bæði trufla mann og draga verulega úr innihaldi texta. En ég á það til að gleyma textum og því hef ég einstaka sinnum tekið með mér nóturnar til að draga úr stressi :) En allavega þetta gekk nú bara ágætlega, ég er enn að basla með ýmis raddleg vandamál, en það er sem betur fer ekki alltaf eitthvað sem fólk heyrir. Áfram heldur vinnan. Eftir tónleikana var ég beðin um eiginhandaráritun.... sem var mjög áhugaverð upplifun :) Þangað mættu, af íslendingum, fyrir utan Soffíu, Einar, Gunnar og Erla konan hans. Það var ótrúlega gaman að fá þau þangað, þar sem það kostaði 10 EUR inn og ég bjóst nú satt best að segja ekki við því, og það er nú bara rúmur 1500. kall í dag.
Við fórum svo á nettan ítalskan stað við Mehringdamm eftir á og fengum okkur dýrindis pizzu, þ.e við Soffía fengum okkur eina Pizzu saman og ég fékk mér 0,5l rauðvín og hún kókglas. Fyrir þetta borguðum við litlar 12EUR, sem er nú ekki svo slæmt. Ég fékk 100EUR útúr tónleikunum, sem má bara teljast fínt á þessum síðustu og verstu tímum.
Í dag er svo stefnan tekin á IKEA þar sem á að versla inn barnagjöf frá tengdaforeldrunum :) Já hér er IKEA opið á sunnudegi, en bara í dag, þar sem það var lokað á föstudaginn vegna þjóðhátíðardagsins. Set myndir af bæjarferð okkar hjóna þann daginn inn hérna einhverntíma á næstu dögum. Nú tekur svo við undirbúningur fyrir tvær áheyrnarprufur sem eru dagsettar 28.okt og 28.nóv meira um það síðar.
Óskalistann minn fyrir þessi jólin má sjá á óskalistasíðunni á Amazon. Ég er alltaf að uppfæra, þannig að endilega kíkja reglulega inn ef þið eruð alveg í skítnum. Það góða við þetta, er að þið getið látið senda beint heim til mín, innpakkað og tilbúið :)
Fyrir þá sem ekki kunna á Amazon (hóst**soffía**hóst) eða kunna ekki grunninn í Þýsku :) Þá þarf bara að velja það sem á að senda og smella á "In den Einkaufswagen" hægramegin á síðunni. Svo þarf að haka við "Als Geschenk Versenden" og svo bara "Zur Kasse Gehen".
Fyrir þá sem ekki kunna á Amazon (hóst**soffía**hóst) eða kunna ekki grunninn í Þýsku :) Þá þarf bara að velja það sem á að senda og smella á "In den Einkaufswagen" hægramegin á síðunni. Svo þarf að haka við "Als Geschenk Versenden" og svo bara "Zur Kasse Gehen".
Hamingjuóskir:
SvaraEyðaFyrsta eiginhandaráritunin og fyrsta greiðslan -
nú fer allt að fara í gang.
Það kemur nú ekki fram hve margir voru á tónleikunum, né heldur hvaða fólk var þarna um að ræða.
Þú ert orðinn óskaplega þýskur með þessu jólagjafaskipulagi.:) ORDNUNG MUSS SEIN!
Það voru líklega á bilinu 60-80 manns á tónleikunum og aldurinn var á bilinu 25-99 gæti ég trúað, ætli 50% hafi ekki verið yfir 50.
SvaraEyðaMig minnir nú að ég hafi verið með óskalista síðustu 2 árin :) Ég tel bara að óskalistinn tryggi að maður fái kannski eitthvað af því sem manni raunverulega langar í :)
vúhú.. fyrsta eiginhandaráritunin (af mörgum ;) )
SvaraEyðatil hamingju með tónleikana, og eiginhandarárituna...ef ég hebbði vitað af þeim, hefði ég komið. Sjáumst væntanlega í hóptíma á laugardaginn.
SvaraEyðakv Hildigunnur nú í Berlín