7.9.08

Að ferðast um heiminn

Frúin átti góðan afmælisdag, og margir gerðu sér ferð á bloggið hennar til að senda afmæliskveðju. Sem er gott.

Nú um helgina tókum við bílaleigubíl til að skjótast til Dresden, þar sem frændi hennar Soffíu býr. Þetta var svona dagsferð, og að sjálfsögðu var EOSinn með í för. Þetta er mjög falleg borg, og við fengum svona "túrista rúnt" um svæðið, sem var mjög gaman. Við fórum svo að borða á einum af mínum uppáhalds stöðum að borða á..... Maredo. En þvímiður var þetta ekki góður staður, þar sem við þurftum að bíða í rúman klukkutíma eftir matnum. Og ekki nóg með það, þjónustu "stúlkan" (var rúmlega 5tug), var bara með leiðindi.... sem er svosem ekkert nýtt hérna í þýskalandi, hér er ekkert til sem heitir þjónustulund. Leiðindin voru allavega þannig að hún þrætti fyrir það að við værum búin að bíða svona lengi eftir matnum, og sagði að við þyrftum bara að gjörasvovel að vera þolinmóð, þar sem það var fullt að gera á staðnum!!!? Sem er afsökun sem ég hef áður heyrt á þýskum veitingastöðum. Nú yfirþjónnin kom svo stuttu seinna og sagði okkur að það hefði orðið eitthvað klúður, og við þyrftum að bíða aðeins meira, og sagði að við mættum fá salat eða eitthvað að drekka á kostnað hússins í staðin, sem var svosem eðlilegt í ljósi þess hvað við vorum búin að bíða lengi. Þegar kom svo að því að borga, þá var sú 5tuga sko alls ekki á því að gefa okkur eitt eða neitt fyrir biðina, og það þurfti að kalla aftur til yfirþjóninn, sem leiðrétti málið, en það tók um 5-10 mín að fá kellinguna til að skilja það og koma með réttan reikning. Þetta endaði svo á því að hún sagði, "takk fyrir komuna" (á þýsku auðvitað :)). Ekki datt henni í huga að biðjast afsökunar eða eitthvað í þá áttina! Maður skilur bara ekki svona dónaskap á stöðum sem þessum, en svona er það bara í þýskalandi. En bara með því að segja í lokin, "ég bið ykkur að afsaka hvernig þetta er búið að vera og ég vona að þið eigið ánægulegt kvöld", eða eitthvað svipað, hefði hugsanlega dugað til að ég færi þaðan sáttur, en nei svo var nú aldeilis ekki. Ég mun þó áfram venja komur mínar á Maredo hér í Berlín, þar sem þar hefur aldrei neitt klikkað, maturinn alltaf góður og starfsfólkið svona sæmilegt og kurteisara en í Dresden.

Nú svo eftir að hafa skoðað borgarljósin, var haldið heim á leið á bensanum. Dresden er í um 2 klst fjarlægð frá Berlín, og því var þetta frekar þægilegur skottúr. Sunnudagurinn fer svo bara í ekki neitt, og ætlunin er að drekka 2-3 rauðvínsglös og kannski spila smá tölvuleik "ef maður sé í stuði".

Óléttuhornið:
Mæðraskoðun var á föstudag, þar sem við hittum nýja ljósmóður, sem talar enga ensku, það gekk nú vel þrátt fyrir það, og allt lítur vel út og eins eðlilegt og hægt er að vonast til. Það er þó alltaf truflandi þegar er verið að fara með manni yfir skilmálana, maður fær alltaf á tilfinninguna að það eigi eitthvað eftir að koma fyrir mann af því sem er verið að lesa upp. Því það er alveg slatti af allskyns klausum þarna sem geta orðið til þess að barnið þurfið að fæðast á spítala, en ekki fæðingarheimili. EN ég hef þá trú að þetta eigi nú bara all eftir að ganga. Ég er búinn að dreyma fyrir kyni barnsins í 3-4 gang og alltaf er það strákur. Hvort þarna sé um óskhyggju að ræða eða sannleika veit maður auðvitað ekki, en mín reynsla er sú að ég dreymi oft öfugt við það sem er að fara gerast :) Þetta er því bara eins og sumum finnst að það eigi að vera.........óljóst :)

Myndir hérna

4 ummæli:

  1. Svipuð er reynsla okkar á Hróa á Selfossi: við gleymdumst. Það var afsakað í bak og fyrir og þurftum ekki að borga krónu fyrir. Verulega ánægjuleg viðbrögð, end förum við þangað líklega aftur.
    Fínn er hann, þessi EOS :)

    SvaraEyða
  2. Það er/var það sama hérna heima, hér var rekið prógramm sem hét MFS (Meðganga, fæðing, sængurlega) og þá gátu konurnar sem tóku þátt í því átt börnin sín í hinu svonefnda Hreiðri á Kvennadeild Lansans.

    MFS var eftirsótt og komust færri að en vildu, enda geðveikt flottur aðbúnaður í Hreiðrinu - sé miðað við old-style stáldæmið inni á fæðingarstofunum. ...

    Jájá, svo ég komi mér að því sem er líkt með þessum prógrömmum er s.s. skilmálarnir, það mátti bókstaflega ekkert - alls ekki neitt - koma upp á svo dömunum yrði ekki vísað á oldý-fæðingarstofunar í stað Hreiðursins. Gaman að því :-) Vonandi gengur þetta allt vel áfram - og allar líkur á því auðvitað!!!

    En talandi um Hreiður, þá ætlar Hreiðar að flytja til Finnlandiavodkans á fimmtudaginn kemur.

    Já, hann er sannarlega hress hann EOS, Einar Olav Salvarsson :-) Ágætis myndir. Panta svo að við förum á Hagendazz þegar við komum! :-)

    SvaraEyða
  3. Að eignast strák hefur hingað til flokkast undir að fá gull en að fá stelpu er ígildi silfurs. Þetta er hinsvegar breytt þar sem stelpan er orðin að bronsi. "Hvað er þá silfur ?" mætti þá spyrja. Svarið er: þroskaheftur strákur

    SvaraEyða