........sem ég var búinn að lofa eru ss þær að von er á nýjum leigjanda hérna hjá okkur á Kurfürstenstr.75. Vandamálið er það að viðkomandi mun ekki borga neina leigu í 18 ár, sem er ókostur :) En það er samtsem áður talsverð tilhlökkun hér á bæ, og spennandi tímar framundan. Líklegast vita flestir af þessu núna, og því kannski ekki um neinar stórfréttir að ræða, en fínt að gera þetta bara svo á official hátt. Von er á þessum háæruverðuga gesti um 20.nóvember, sem er bara fínasta fínt. En maður fer þá ekki mikið heim um jólin held ég......þetta verður bara lítið ævintýr í staðin. Litla fjölskyldan á Kurfürstenstrasse........kannski ekki alveg nafn á barnabók, en verður að duga :) Þá er þetta loksins komið útúr skápnum og maður getur farið að missa útúr sér ýmislegt hérna á blogginu, sem maður er hingaðtil búinn að vera passa sig á :)
Í öðrum fréttum er það helst að ég er að fara syngja Alfred í "Die Fledermaus" hérna í Berlín þann 13 Júlí nk. Þetta er spennandi verkefni, og frekar erfitt hlutverk fyrir mig, en hvenær er svona lagað ekki erfitt, það þarf bara að vera skemmtilegt líka og þá gengur þetta allt upp!
Nú svo er bara steikjandi hiti hérna og búið að vera síðustu daga, alveg ótrúlega magnað, sama hitastig og á Rhodos!! Sem er alveg spaklega skemmtilegt. Það er bara spáð áframhaldandi hita hérna og steikjandi sól.........svona er lífið maður!!
Jæja, nóg í bili....gömlu spili....úti á þili.
Til hamingju með það brósi minn :)
SvaraEyðaTil hamingju sæta par :):)
SvaraEyðakv. Herdís frænka!
Innilega til hamingju, frábær vidbót í Thýskalandsævintyrid :)
SvaraEyðaKv. Gudny frænka
Til hamingju!
SvaraEyðakv
aev
Þetta er alveg frábært! Gæti ekki verið betri blanda!
SvaraEyðaTakk kærlega fyrir ógleymanlega daga á Rhodos!
Peace!
Vala frænka
Hjartanlega til hamingju ;o)
SvaraEyðaKvedja frá The Ekelunds
Óskum ykkur innilega til hamingju.
SvaraEyðaVið hjónin erum afskaplega ánægð með tímasetninguna hjá ykkur því hugsanlega kemur nýr sporðdreki í ættina. Aldrei nóg af þeim!
Ef ykkur vantar uppeldisráð þá bendum við á bloggfærslur Sælu andarinnar...
Bestu kveðjur,
AÐalheiður og Skúli
Frábært að heyra innilega til hamingju :)
SvaraEyðakv. Ósk Gunnarsdóttir