Ég er allavega með rissjónvarpið mitt hérna og er búinn að bjóða íslendingunum að kíkja hingað að horfa ef þeir vilja. Eigum þó eftir að heyrast frekar í dag og ræða þessi mál. Held að það verði gaman að kíkja í bæinn, en spurning hvort maður eigi eftir að sjá eitthvað eða njóta þess......ég meina það verður umtalsvert meira af fólki þar en er á öllu íslandi :) Jæja sjáum hvað setur.
Æfingar fyrir "Die Fledermaus" ganga bara sæmilega, þó finnst mér soldið skipulagsleysi einkenna æfingaferlið hjá þessu fólki. Það var t.d sent út æfingaplan fyrir rúmum mánuði, sem ég prentaði út og hengdi upp hjá mér til að muna þetta allt saman og til að skipuleggja tímann minn þannig að ég verði ekki mikið fjarverandi frá vinnu. Það gekk allt vel, þangað til þau sendu annað plan, og annað og annað, sem við erum að vinna eftir í dag. Þetta er orðið allt of ruglingslegt, og varð til þess að ég gleymdi æfingu sem ég átti að vera á í gær! Það er eflaust erfitt að setja svona saman svo öllum líki, en svona er það bara. Svo er ein leikstýran þarna sífellt blaðrandi að útskýra sína sýn á málið og hvernig hún sér atriðin og það fer stundum bara fullt af mikilvægum tíma í blaður og vitleysu. En þau eru svosem ekki ein um það, svona virðist þetta bara vera allsstaðar sem ég hef komið. Þetta er bara framtíðin í þessu, ef maður kemst inn í þennan bransa.
Jæja þarf að fara dusta rykið af þýsku fótboltasöngvunum svo maður sé liðtækur í kvöld:
Zieht den Bayern die Lederhosen aus,
Lederhosen aus, Lederhosen aus
Zieht den Bayern die Lederhosen aus,
Lederhosen aus, Lederhosen aus
(við lagið Yellow Submarine)
---------------------------------
Freude schöner Fußballzauber,
das ist unser Sankt Pauli,
Zuckerpässe, Zaubertore, Fußballgötter allesamt,
Kurzpassspiel und Übersteiger, so kriegt das nur einer hin,
Freudeschöner Fußballzauber,
das ist unser Sankt Pauli,
La, La, La, La, La, La, La, La, La, La
--------------------------------
das ist unser Sankt Pauli,
Zuckerpässe, Zaubertore, Fußballgötter allesamt,
Kurzpassspiel und Übersteiger, so kriegt das nur einer hin,
Freudeschöner Fußballzauber,
das ist unser Sankt Pauli,
La, La, La, La, La, La, La, La, La, La
--------------------------------
Steht auf, wenn ihr deutsche seid.
Steht auf, wenn ihr deutsche seid.....
Steht auf, wenn ihr deutsche seid.....
-----------------------------
Auf geht's Deutschland–schiesst ein tor'
Auf geht's Deutschland–schiesst ein tor'
Svo áhugasamur er Egill nú
SvaraEyðaum Evrópukeppnina' í knattspyrnu
að æfingum gleymir,
um meistara dreymir
og veitir við trjáhöggi viðspyrnu.
sé þig alveg fyrir mér "fótboltabullast" blindfullur niðri í miðbæ berlinar (uhhh NOT! )
SvaraEyðaÞað er með ólíkindum að hægt sé að hafa svona lítinn áhuga. Ekki nóg með að þetta eru 4 liða úrslit heldur ber að hafa í huga að Tyrkir eru örugglega 70% af þýsku þjóðinni.
SvaraEyða