Jú viti menn hér er hún komin eina ferðina enn, blessuð helgin.
Í gærkvöldi ólgaði hér allt af ólátum og vitleysu vegna þess að Þjóðverjar voru víst að vinna einhvern fótboltaleik. Þetta var þó allt í góðu, og menn skutu upp flugeldum hérna af svölunum, og fólk var öskrandi á gatnamótunum hérna fyrir utan hjá okkur, en þar er einmitt líka lítill pöbb, þar sem svona leikir eru alltaf sýndir. Ég vissi ekki að þessi leikur var í gangi, og brá ekkert smá þegar þetta kláraðist, því þvílík voru öskrin hérna útúm allt. Menn keyrðu hér um flautandi á bílunum sínum, og þegar var flautað á gatnamótunum hér fyrir utan, þá öskraði fólkið, en ef það var ekki flautað, þá var bara púað og hið sívinsæla fokkmerki sett á loft. Ég hentist út í glugga, og tók eitthvað videó af þessu, ef ég nenni að fara klippa þetta eitthvað til, þá kannski hendi ég þessu inn á myndasvæðið mitt um helgina, eða bara einhverntíma.
Í dag fór ég svo í tíma hjá Reiner Goldberg nokkrum, sem hefur gert það gott um allan heim í flest öllum stóru húsunum. Hann er tenór, um sjötugt held ég, og getur enn pumpað útúr sér gullfallegum tónum, m.v hvað hann er gamall. Þetta er einn af þessum mönnum sem hefur greinilega ekki þurft að hafa allt of mikið fyrir tækninni, því hann í raun bara sýnir og svo á maður að herma :) En það er að vissuleiti gott að læra þannig líka þegar maður er búinn að vera svo tæknilega þenkjandi lengi. Þetta er fínn kall, og tekur alls ekki mikið fyrir tímann, sem er mjög gott.
Nú svo á eftir er ég að hendast út að borða á hinum svokallaða "gula stað", sem dregur nafn sitt ekki af þeim sem vinna þar, heldur útliti hússins, þetta er svakalega góður grillstaður, og hrikalega ódýr. Þangað höfum við eiginkonan, farið með alla okkar gesti, að undanskildum þeim frá Holtinu, þar sem við vorum eiginlega ekki búin að uppgötva staðinn þá. En ég hlakka mikið til að borga lítið sem ekkert fyrir mikið sem allt.
BESTU ÞAKKIR fá allir þeir sem lögðu leið sína í kommentakerfið hjá mér. Ég kann virkilega að meta þann hlýhug sem okkur er sýndur. Gaman líka að sjá hverjir það eru sem lesa.
Viel Spass.
Það er nú ansi 'týpískt' fyrir þig að vita ekki einusinni þegar Þjóðverjar eru að leika mikilvæga leiki í Evrópukeppni!
SvaraEyðaÞú getur ekki klikkað á því aftur.
VIð hér á klakanum komumst allavega ekki hjá því að vita af þessu- fótboltinn tröllríður allri dagskrá á Ríkissjónvarpinu en þá er gott að hafa stöð 2 ;)
SvaraEyðaVildum bara óska ykkur hjartanlega til hamingju med giftinguna og komandi fjölskyldumedlim.
SvaraEyðaBkv.
Ása og Søren