Byrja nú á þakklæti til allra sem sendu okkur hamingjuóskir í commenta kerfinu.
Ég birt hér létta frumorta vísu (afþví ég er orðin svo gamall), sem fékk margar ágiskanir. En svarið er að sjálfsögðu einfallt í kjölfar nýjustui frétta héðan frá Kurfürstenstrasse.
Hvað er ég?
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
tilheyri samt, án þess að vinna.
Lítið ég gef nema kærleik í hjarta
Tek mér það leyfi aðeins að kvarta
þegar ég þarf þess því þannig ég lifi.
Hræðslu ég vek þó sumum í huga
þó er ég saklaus en næ fólk að buga
gefðu mér ást þína, líf og hjarta
ég hef mér þá eitthvað í lífin'að skarta.
því að ég þarf þess og þannig ég lifi.
-------
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
tilheyri samt, án þess að vinna.
Lítið ég gef nema kærleik í hjarta
Tek mér það leyfi aðeins að kvarta
þegar ég þarf þess því þannig ég lifi.
Hræðslu ég vek þó sumum í huga
þó er ég saklaus en næ fólk að buga
gefðu mér ást þína, líf og hjarta
ég hef mér þá eitthvað í lífin'að skarta.
því að ég þarf þess og þannig ég lifi.
-------
Æfingar eru hafnar á fullu fyrir Leðurblökuna, og ekki hægt að segja annað en að það sé komin tilhlökkun í mann. Þetta er skemmtileg sýning, og mjög fyndin. En svo veit maður ekki hvað þessi leikstjórnarnemar ákveða að gera með þetta. Vonandi verður það bara nokkuð eðlilegt....sem er líklega fjarlægur draumur, þar sem óperu og leiksýningar hérna í Berlín eru að verða þekktar fyrir allskyns rugl eins og fólk hlaupandi um nakið á sviði, rotnandi kanínuhræ á videóskjá, osfrv rugl. Það er í raun magnað hvað "listin" er í huga sumra ljótt hugtak. Á lít á sjálfan mig sem frekar umburðarlindan, en þegar kemur að algjörri afbökun á söguþræði og birtingu atriða sem bara hafa ákkúrat ekkert með söguna að gera, þá verður maður soldið skúffaður. EN þetta er auðvitað mín skoðun, það eru misjafnar skoðanir á þessu eins og svo mörgu öðru. En ég er búinn að mæta á 2 æfingar, þar sem mikið er talað á þýsku, og ég skil nánast ekki helminginn af því sem er sagt, en ég skil oftast nóg til að ná útgangspunktinum. Þetta tekur allt tíma, en ég hef með mér í þessu eina norska mótleikkonu, sem talar góða þýsku, og útskýrir fyrir mér ef ég alveg úti á þekju! Þetta er semsagt bara fínasta fínt!
Nú af veðrinu er það að frétta að hér er bara gjörsamlega búið að vera steikarveður í rúma viku, og virðist ekkert lát vera á. Það er ekki laust við að maður biðji um rigningu eða kulda í einn dag! En ekki mikið meira en það, því þá er maður að svíkja grundavallar prinispp, að allt er betra en veðrið á Íslandi :) Eða svo til maður saknar þess þó af og til í mestu hitnum.
Jæja, ekki hef ég meira að segja að sinni.
"Ég get alveg látið eina tillögu flakka, en kýs að gera það ekki að svo stöddu?"
SvaraEyðaÞetta var það sem ég sagði um þennan kveðskap (gátu) - þóttist vita um hvað það snérist, en gat reyndar ekki tengt það með lógískum hætti.
Til hamingju aftur, Kurfurstenstrassingar.:9
Hjartanlega til hamingju bæði tvö. Líst vel á komu litla sporðdrekans. Þessi fregn kemur í kjölfar fjölda svipaðra fregna hér úr sveitinni. Þetta verður algert barnasprengjuár :)
SvaraEyða