23.6.08

Blogg til að blogga

Helgin flaut ljúflega hjá, og ég leyfði mér ýmsan ólifnað, þar sem ég er svo óvanur að vera einn heima :) Sökum anna síðustu daga hef ég ekki verið að sinna líkamsræktinni eins og vera ber, en hef nú aftur tekið upp þráðinn. Því var kærkomið að klára þann litla bjór sem þó var eftir í ísskápnum.....og jafnvel kaupa aðeins meira því það var svo lítið til. Nú en Gunnar kíkti hérna við á föstudaginn, og við skelltum okkur á "gula staðinn" svokallaða þar sem við snæddum dýrindis steikur, og drukkum dýrindis bjóra með, auk þess að fá okkur góðan eftirrétt. Á staðnum var sjónvarp, og við, sem erum litlir fótboltaáhugamenn festumst yfir leik Króata og Tyrkja, þar sem við búum nú nánast í Tyrklandi hérna. Ég reyndar hélt með Króonum allan tímann, því mér fannst bara Tyrkir spila leiðinlegan bolta. Við fórum svo heim á leið í byrjun seinni hálfleiks, og keyptum okkur öl á leiðinni. Svo horfum við á seinnihlutann hérna heima á Kurfürsten, voða gaman, en svekkjandi. Svo kíktum við á nokkur óperubrot áður en hann hélt heim á leið.

Laugardagur og sunnudagur fór svo bara í að læra eins og góðum námsmanni sæmir. Hitastigið á Sunnudeginum var svo bara alveg fáránlegt, þá var það nú aðallega rakinn sem náði til manns. Þetta endaði svo allt með heljarinnar þrumuveðri um kvöldið, sem var nú gaman að upplifa, þó maður nú nokkrum sinnum gert það áður. Ég tók einhverjar myndir af því, og mun henda þeim hérna inn við tækifæri, ásamt fótboltaólátamyndum, lúðrasveitar vakningu og rigningamyndum.

Æfing í kvöld, og ég tilbúinn eftir helgina, að takast á við það sem súrkálið hendir að mér :)

1 ummæli:

  1. Þú verður forfallinn eftir næstu helgi. Klikkar ekki á að fylgjast með Þjóðverjum og Tyrkjum takast á.

    SvaraEyða