Þetta hátíðarblogg mitt er nú ekki langt. En ég er kominn aftur til Berlínar og eiginkonan varð eftir á landi ísa. Já kallinn er bara búinn að gifta sig öllum að óvörum......en það var auðvitað meiri nauðsyn en eitthvað sem átti að gerast strax, því verður svona "alvöru" síðar, þar sem við vonandi getum boðið einhverjum :)
Nú athöfnin tók litlar 5 mín hjá Sýslumanni á Selfossi í stórgóðu veðri. Begga frænka og sá gamli voru vottar. Systkyni mín sem ennþá eru heima, voru viðstödd ásamt þeirri gömlu. Þetta var mjög ánægjuleg stund, og það sem átti upphaflega að vera bara gallbuxur og eitthvað létt, varð aðeins formlegra en maður hafði planað. Að lokinni athöfn var skálað í freyðivíni niðri við á, og svo haldið á Rauða húsið á Eyrarbakka, þar sem hópurinn fékk sér að borða brúðkaupsmat. Alltsaman var þetta nú búið kl 16:00. Ekki flókið það...... hjónakornin héldu svo í Fléttarann, þar sem við steinsofnuðum. Þegar við rifum okkur svo upp, þá var pöntuð pizza og gott fólk kom í heimsókn og gladdist með okkur. Ég flaug svo aftur hingað til Berlínar í dag, og gat því ekki notið 17.júní, eins og hefði verið gaman. Fékk einnig póst frá sendiráðinu íslenska, og þau voru með eitthvað boð í dag hérna í Berlín, sem ég missti þvímiður líka af. Hefði gjarnan viljað mæta og sjá aðra hérna, maður gerur allt of lítið af því.
Jæja, daglegt streð hefst á morgun, þar sem ég fer á sérstaka framburðaræfingu vegna Leðurblökunnar sem verður sýnd þann 13 Júlí nk.
Ekki var það meira að sinni, en hér er rakt og fínt, eins og vanalega og ég lýkþeim 17. með köldum bjór og Battlestar Galactica.

JUST MARRIED :)
Til hamingju eða eins og maður segir á Hebresku; Mazeltov!!
SvaraEyðaInnilega til hamingju með þetta!!
SvaraEyðaTil hamingju bæði tvö með hnappelduna. Þið losnið sem sagt við lögfræðing inn á heimilinu...
SvaraEyðaHjartanlegar hamingjuóskir þið bæði tvö :).
SvaraEyðaKnús frá Huldu frænku
Innilegar hamingjuóskir.
SvaraEyðaVar það Mr. Stones sem gaf ykkur saman?
Af þvi að þú varst að lýsa brúðkaupsnóttinni á langar mig að benda þér á að pumpa frænda þinn um hvernig brúðkaupsnótt á að vera og ræða svo um hvort væntingar karla og kvenna séu líkar :-)
Við kellurnar horfum á þetta í bíómyndum, svokölluðum stelpumyndum og grenjum smá en karlarnir trúa líklega því sem þeir sjá...
Tek undir með ámundsen og öllum öðrum hér: Mazel Tov! Takk fyrir síðast! Það var ekkert smáræðis gaman að sjá ykkur hjónakornin :-))
SvaraEyðaInnilega til hamingju með þetta. Þið eruð bara falleg og flott :)
SvaraEyðakv. Ósk Gunnarsdóttir
Það er hver stórfréttin á eftir annarri, innilega til hamingju sæta par :) eða sætu hjón :)
SvaraEyðaKv. Guðný frænka
Innilega til hamingju með giftinguna- var að enda við að hitta sætu eiginkonuna þína...:)
SvaraEyðaBestu kveðjur, Herdís
Já - þetta var sko góður dagur. Takk enn og aftur fyrir að leyfa mér að vera með. Gott ef ég er ekki bara pínu montin og upp með mér :-)
SvaraEyðaThe Vott!
Elskurnar mínar, innilega til hamingju með þetta allt saman,var ekki búin að lesa bloggið fyrr en núna, svo að enn og aftur: Til hamingju.
SvaraEyðaBesta kveðja frá Ástu og Gústa.