5.5.08

Grillen, gegrillen

Í gær var MasterClass David Jones og Janet Williams, þar sem undirritaður söng við mikinn fögnuð viðstaddra :) Þetta var sem fyrr mjög fróðlegt og skemmtilegt, en þetta var mjög langur dagur. Hófst kl 8:30 þegar ég reif mig á fætur til að byrja að undirbúa daginn, en ég söng 2 aríur í gær. Og fyrir þá sem ekki vita hvað masterclass er eða hvernig það fer fram, þá er það í grunninn þannig að fólk sem vill sýna sig og fá kennslu um leið fær að syngja eitthvað fyrir salinn og svo situr "masterinn" og leiðbeinir hvað má betur fara og hvernig er hægt að gera betur osfrv. Maður lærir mjög mikið við þessu tækifæri, þar sem maður þarf bæði að syngja og einbeita sér að tækni á sama tíma. Að loknum masterclassanum þurfti David að halda til Lundúna, þar sem hann er að kenna í dag og á morgun, og svo kemur hann aftur hingað til Berlínar á morgun, og gistir eina nótt áður en hann fer til USA. Við sem eftir vorum kíktum á kaffihús þar sem var drukkið og spjallað fram eftir nóttu. Eða réttara sagt við vorum rekin út um kl 00:00, og þá fórum við á annan stað þar sem við vorum til kl 3, þá tók ég leigubíl heim, og vaknaði svo "endurnærður" til að fara vinna í morgun. Ég er lítið búinn að vera heima hjá mér síðustu vikuna, sem er soldið skemmtilegt, en ferlega þreytandi til lengdar, en hvað gerir maður ekki til að kynnast fólki í bransanum og brjóta upp daginn? Á laugardaginn var mér boðið heim til konu sem var hérna einusinni mjög stór mezzósópran hér í landi, hún kennir við Hans Eisler háskólann hérna í Berlín, svakalega fín kelling. Ég staldraði stutt við því ég eiginlega nennti þessu ekki, en þetta var bara svakalega fínt. Ég var eiginlega búinn að taka þá ákvörðun að fara ekki og var búinn að finna fína afsökun. Við Soffía ætluðum svo að fara og eyða deginum niðri í bæ, en ég eyðilagði það. Við fórum reyndar niður í bæ og versluðum smá sumarfatnað og fengum okkur að borða, EN það hefði nú verið gaman að eyða meiri tíma með SJ, þar sem við erum ekki mikið búin að sjást þessa vikuna, en ég valdi það að vinna frekar í "networking", því það er bara svo hrikalega mikilvægt, sérstaklega núna fyrst, þegar ég er að reyna að koma mér af stað.

Dagurinn í dag er svo barasta búinn að vera fínn, mikil sól og 25 stiga hiti núna í kvöldsárið. Ekki amalegt það. Maður er bara ekki vanur svonalöguðu. Það er reyndar búið að vera frekar "leiðinlegt" veður hérna síðustu daga, 15-17 gráður, skýjað, rigning osfrv. En við höfum það bara mjög gott þrátt fyir það.

Nú styttist óðum í tónleikana í Gristow, og er generalinn fyrir það núna á miðvikudag, og ég sit sveittur í sólinni að reyna að læra alla texta fyrir þann tíma. Vegna vinnu fyrripart dags, hef ég ekki getað einbeitt mér eins að lærdómi eins og ég hefði viljað, en það er kominn tími til að spýta í lófana og fara taka sig á!!

Ég var búinn að frétta það að það mætti ekki grilla utandyra hérna í Berlín, og það er í raun ekki mikið um það að fólk sé að grilla hérna almennt. En svo spurðist ég aðeins fyrir, og viti menn, það er víst allur gangur á því. Maður þarf bara að hringja í "burgeramt" sem er svona sveitastjórnarskirfstofa hérna og spyrja, því það er víst mismunandi milli svæða hvort þetta sé leyft eða ekki! Jæja, ég spurði svo nágrana minn hvort þetta væri í lagi, og hann sagðist allavega grilla þegar honum sýndist, og hann hélt það væri í góðu lagi, þannig að við fáum okkur þá kannski eitthvað lítið grill á næstu dögum :)

Meira var það ekki í bili.

4 ummæli:

  1. alltaf gaman að lesa bloggin :)

    Það er víst þannig í Milano, þar er stranglega bannað að grilla, sérstaklega með kolagrilli - man ekki hvort það voru einhverjar sérstakar reglur með gasgrill. En það er þó bara vegna mengunar, ef að allir borgarbúar færu nú að grilla...fjúff!

    jæja back to the books :(

    SvaraEyða
  2. Til hamingju með sönginn. Gaman að heyra að eitthvað er að ganga þarna úti. Úr því ég er byrjaður á hamingjuóskunum þá til hamingju með íbúðina bæði tvö. Flottar myndir.

    SvaraEyða
  3. Má ekki grilla utandyra? Þessir Þjóðverjar sko... Við ætluðum einmitt í Mauerpark að grilla í gær en gátum hvergi keypt einnota grill, hvað er það? Enduðum með að elda bara heima. Sem var mjög huggulegt :)

    en heyrðu, hvaða mezzó var þetta þarna í HE?

    SvaraEyða
  4. Mezzoin er Uta Priew. Já þetta er skrítið, en það er svosem satt að þetta yrði ansi laglegt ef jafnstór prósenta borgarbúa hérna tæki nú upp á því að fara grilla, þá væri það ekki gott fyrir loftslagið.

    SvaraEyða