Helgin er búin að vera gífurlega skemmtileg, við ákváðum að leigja okkur bíl um helgina til að keyra aðeins um Berlín og nærliggjandi svæði. Nú ævintýrið hófst á bílaleigunni, þar komum við og ekkert mál að bóka bíl, nema þegar koma að heimilisfanginu okkar hérna í Berlín, þá var það allt í einu orðið eitthvað vandamál, þar sem ég þurfti helvítis anmeldungið...ég var farinn að sjá fram á að þurfa fara alla leið heim til að ná í það. En svo breytti ég bara í heimilisfangið mitt á Íslandi, og þá var allt í himnalagi!!! Ég endurtek, það er ekki í lagi með þjóðverja!! Við vorum búin að biðja um VW Passat eða sambærilegan, en fengum þess í stað Audi A3, sem er svívirðilega kraftmikill og flottur bíll, með innbyggðu leiðsögutæki(GPS). Ég stillti nú samt tækjunum hlið við hlið og þau voru ekki alltaf sammála sem setti mig stundum í smá klemmu, en það reddaðist nú allt :) Við fórum sem leið lág til Potsdam, sem er borg hérna rétt við Berlín, þar er mikil náttúrufegurð og risastór höll sem við kíktum lauslega á. Svo bar stoppað í Getränk Hoffman, sem er svona drykkjabúð hérna með mikið úrval af flestu drekkanlegu. Keyptum þar fullt, þar sem við vorum nú einusinni á bíl. Þvínæst var haldið heim á leið og í IKEA!! Þar sem við keyptum hillur í gestaherbergið, stofuna og ganginn.......en gleymdum aðal atriðinu!! sem voru gestarúmin :) Þannig að við förum aftur þangað rétt áður en við skilum bílnum á morgun og náum í það sem uppá vantar. Um kvöldið fórum við svo út að borða á fínum Mexíkóskum stað sem heitiir Cancún, þar var bara ansi gott að borða, svo var haldið heim og alls ekki var erfitt að finna stæði hérna nálægt heimilinu, allavega ekki eins erfitt og ég hélt.
Í dag var svo keyrt að Wannsee, sem er svona ein stærsta úti ströndin hérna í Berlín, rosalega flott svæði, förum þangað þegar fer að sumra aðeins. Þvínæst var ekið sem leið lá að skoða eitthvað sem heitir Tropical-Islands, algjörlega ótrúlegt mannvirki hérna ekki langt frá okkur. Það má sjá meira um það ævintýri hérna við hliðina ef þú smellir á myndir. Við erum búin að keyra tæpa 400 km í dag, á hraðbrautinni og í litlum bæjarfélögum hér við hliðina. Ótrulega gaman og ótrúlega gleðjandi. Það er greinilega nóg að skoða.
Jæja, hætta að blaðra og fara setja saman síðasta af IKEA húsgögnunum.
Þetta er ekkert smá mannvirki þetta Trpoical-dæmi. Ég heimta að það verðu farið með mig þangað þegar ég kem í heimsókn.
SvaraEyðaEn hefur það ekkert hvarflað að þér Egill að gerast fréttaritari Rúv í Berlín?? Þú ert svo assgoti pró við þetta.
:)
Já það er bara ekkert mál.
SvaraEyðaSagði frúnni frá þessu kommenti, og þá heyrist úr stofunni: "Hún verður þá að fara drullast hingað í heimsókn!!"
Meira hef ég ekki að segja um þetta mál :)
vá.. ég heyrði alveg "Soffíu-röddina" úr þessu kommenti!
SvaraEyðaLítur allt voðalega spennandi út og ég er orðin voðalega spennt að koma!
Það er ekkert verið að skafa utan af því.... þetta var auðvitað sagt með miklum söknuði Begga mín ;)
SvaraEyðaSagnfræðingurinn ég kveiki á allt öðru en Tropical-mannvirkjunum.
SvaraEyðaWannsee - í þeim flotta stað hófst allur Holocaust-hryllingurinn.
hryllingur eða þarfaverk. Er það ekki bara spurning um political standpoint?
SvaraEyðaAllar tegundir nudds segirðu. Þú hefur auðvitað pantað þér erotískt nudd.
SvaraEyða