1.2.08

1.febrúar......við flytjum inn!!

Þá er komið að endalokum tæplega 4 vikna tímabils óvissu, flutninga, geðveiki og labbs. Við fórum í IKEA í gær eftir vinnu hjá mér og völdum hina ýmsu skrautmuni til að fylla nýju íbúðina okkar. Við spöruðum í hvívetna...til að hafa efni á sjónvarpinu :) En það fóru næstum 4 tímar í einhverja IKEA geðveiki sem ég nenni ekki að rifja upp. Það endaði allavega þannig að þegar við fórum þaðan, þá var maður ekki alveg viss um hvað myndi gerast næst. En það er nú komið í ljós, og við eigum von á dótinu frá þeim milli 9:45 og 11:45 í dag. Hefði verið betra á öðrum tíma og eflaust hefði ég getað breytt þessu, en ég hafði hvorki tíma né þolinmæði til að standa í því, nógu erfitt var að fara í gegnum sendingaferlið. Nú svo er búslóðin væntanleg eftir kl 14 á mánudag, þannig að það fer nú að styttast ískyggilega í þetta allt saman. Internettengingin er þó það sem skiptir mestu máli og þeir sögðu bara lágmark 2.vikna bið, nema ég væri sérstaklega heppinn. Og í millitíðinni er Janet búin að vera svo elskuleg að leyfa mér að nota aðstöðuna hjá sér þangaðtil.....sem er auðvitað æðislecht.

Þegar við fengum lyklanna að íbúðinni, fékk ég hálfgert sjokk, sem maður mátti nú ekki við! En ég hafði sterklega á tilfinningunni eins og við værum að flytja til helvítis, þar sem allt í einu fannst mér þetta ekki vera eins spennandi og í minningunni. Íbúðin er þó stór og mjög björt. Í ljós kom að við eigum bara um 6 fermetra af flottu stóru veröndinni sem er þarna, og þurfum að deila henni með 2 öðrum íbúðum. Þannig að ekki er nú líklegt að maður verði mikið þar í kvöldsólinni, eins og búið var að gera ráð fyrir og var einn stærsti sölupunkturinn við þessa íbúð, eiginlega eini sölupunkturinn í mínum huga. Nú svo er þarna "þýskt" klósett, sem ég hata meira en allt það leiðinlega í íbúðinn samanlagt. Hvaða útúrdópaði sturlaði einstaklingur kom þessu helvíti inn hjá þjóðverjum???????

Í gær var svo hóptími hjá Janet, sem þýðir í raun það að hún býður öllum nemendum sínum að koma einusinni í mánuði og syngja fyrir hvert annað, sem er aljör snilld, því þarna getur maður farið og æft sig með aríur og annað sem maður er að fara með í fyrirsöng. Ég var nú búinn að sjá eitthvað af þessu liði áður, en hafði ekki heyrt. Þarna voru þó tvær stelpur sem var ánægjulegt að hlusta á. Hinir voru svona meira "work in progress" :)

Nú styttist óðum í áheyrnarprufu (8.feb), og ég er að undirbúa það að segja þeim sem sjá um þetta að ég sé í raun ekki að sækja um neitt hlutverk í óperunum sem þeir eru að setja upp, heldur frekar í tónleikunum sem eru líka haldnir. Veit ekki hvort það mun ríkja almenn ánægja með það, en þeir bjóða uppá það og því sé ég ekkert því til fyrirstöðu að fara þá leið.

2 ummæli:

  1. Hmm... ég hugsa að ég taki með mér ferðakamar þegar ég kem til ykkar! Eru ekki allir hressir með það??

    SvaraEyða
  2. Ég verð nú samta að segja að ég er ekki alveg viss um hvernig þýskt klósett lítur út. Þetta með svalirnar verður ekkert vandamál því svona kynnist maður fólki. Verður ekki bara gaman að standa úti á svölum, horfa á leikinn með Fritz nágranna og sötra bjór?

    SvaraEyða