28.1.08

Hótel Berlín

Þá erum við komin hingað á 4 hæðina á Hótel Berlín, sem við höfum áður heimsótt, og er með betri hótelum sem ég hef gist á. Og alls ekki svo dýrt, við erum að borga 8900ISK á nótt. Hérna er súper hratt þráðlaust internet sem er innifalið í verðinu á herberginu. Herbergið er stórt og mikið líklega stærra en "íbúðin" hjá brósa og mágkonu í Ástralíu.

Sparnaðarráð #1
Þjóðverjinn er skrýtin tegund af manneskju, það er óhætt að segja það. Þeir eru tildæmis alltaf að spara, og það er gaman að sjá ýmsar birtingarmyndir þess hérna í Berlín, t.d eru rúllustigar hérna á stóru lestarstöðvunum, og þeir eru ekki alltaf í gangi, heldur er skynjari sem setur þá í gang þegar einhver ætlar að nota hann.

Þurfum að hringja í kellinguna á morgun til að fá að vita hvað eru næstu skref, en með góðri lukku ættum við að fá lyklana á morgun, og vonandi að geta gengið frá mestu af pappírsútfyllingum líka. Annars er maður bara farinn að vera svona ligeglad á þessu öllu saman, þar sem þetta er eiginlega bara meira fyndið.

Setti inn nokkar myndir frá loka tímum flutning hérna, hafi fólk áhuga á að sjá þetta alltsaman.

3 ummæli:

  1. Ok! Ég sum sé ligg í KASTI yfir þessari BATMAN mynd - alveg er þetta þinn stíll að setja þennan viðbjóð á netið. Takk takk

    SvaraEyða
  2. hahahahaha..... ÓGEÐSLEGA GÓÐAR MYDNIR AF SYSTUR MINNI ÞARNA! AHAHAHA....!!

    SvaraEyða
  3. já þjóðverjar eru frekar skrýtinn þjóðflokkur :p

    Flottar myndir já og ekki laust við að það vakni upp smá söknuður af þessari fallegu íbúð sem nú er komin með "fallega" skræpótta-blúndu kappa allan hringinn í stofunni.
    Get þó tilkynnt ykkur það ykkur til mikillar gleði að eldhúsinnréttingin rauða er enn á sínum stað!

    SvaraEyða