23.7.10

Görlitz, viðbrögð, heimilisfang og eitthvað

Þá erum við alflutt frá Berlín, ferlið var svosem fljótlegt þannig séð. Á miðvikudags morgun kl 5 lögðum við Soffía af stað frá Görlitz til að klára að þrífa og afhenda íbúðina okkar í Berlín. Við vorum komin þangað um 7 leitið og hófust þá aðgerðir. Ég þurfti að fara og skila forláta tröpputrillu ásamt því að henda gömlum vörubrettum sem við vorum með í geymslunni síðan við fluttum út. Þetta gekk svosem stóráfallalaust fyrir sig en tók langan tíma! Þegar ég kom til baka var Soffía búin að þrífa allt og nú fórum við að bera allt út, þegar restin var komin út fóru að renna á mann tvær grímur þar sem ekki var líklegt að þetta kæmist allt í bílinn, sem varð svo raunin. Afhending gekk vel og gerðar voru smávægilegar athugasemdir, en samt ekkert sem ætti að verð okkur allt of dýrt ef ske kynni að við þyrftum að borga einhverjar viðgerðir.

Að afhendingu lokinni tók ég lestina til að sækja nýjan bílaleigubíl svo við kæmumst nú með allt til baka, það munaði svo grátlega litlu að þetta kæmist allt á einum bíl. Þegar á bílaleiguna var komið voru engir bílar til!! Sem var víst afar óeðlilegt ástand, gat svosem verið þar sem við máttum ekki við því :) En loksins fannst bíll á annari leigu, falleg Ford Fiesta, og ég þurfti að hendast nokkra leið með lest og labba talsvert áður en ég komst þangað, þar beið bíllinn og ég gat lagt af stað að sækja Soffíu sem var að bíða með draslinu úti í hitanum á meðan, þá lenti ég auðvitað í talsverðum umferðartöfum og tók það mig því um 40 mínútur að komast heim, sem allajafna tekur um 20 mín. Við komumst svo stóráfállalaust heim á nýtt heimili okkar og þar erum við búin að vera reyna að koma okkur fyrir. Mamma og pabbi voru heimavið og sáu til þess að krónprinsessan hefði nóg að gera, það var afar gott að þurfa ekki að vera með hana í þessu öllusaman, þar sem hún á það til að vera smá handfylli :)

Í gær fékk ég svo senda gagnrýni á tónleikana miklu síðasta föstudag. Hún er vægast sagt góð. Fyrirsögn gagnrýninnar er "Die Geburt eines Startenors" og textinn fer miklu lofi um mína frammistöðu og það lá við að ég sæti hér með gæsahúð að lesa um hvað ég sé frábær :) Ég er auðvitað ekki alveg sammála öllu lofinu sem þarna er sett á prent, en ég verð að læra að taka því, það gæti jú verið talsvert verra. Ég set inn textan síðar þegar ég er komin með þetta í hendurnar og get betur skrifað þetta niður.

Núna tekur við svokölluð Einwohner anmeldung hér í Görlitz, en það þarf að gerast innan tveggja vikna frá flutningi, annars gæti maður átt hættu á sektum. Svo er það bara að klára að henda öllu upp svo maður getir byrjað að undirbúa næsta ár.

Fyrir þá sem hafa hugsað sér að detta í heimsókn svona óvænt þá er nýja heimilisfangið okkar:Biesnitzerstrasse 31, 02826 Görlitz
Og nýji heimasíminn er: 0049-3581-309-9483

Hér eru svo nokkrar myndir frá flutningum og Görlitz.



19.7.10

Classic Open Air 2010 og flutningar!

Tónleikar helgarinnar gengu með eindæmum vel og ég er afskaplega ánægður og stolltur af því að hafa gert þetta og það með sóma. Ekkert fór úrskeiðis, það er afar óvanalegt :) Á tónleikana voru mættir um 6500 gestir í 30 stiga hita, og það var alveg stórkostlegt að standa þarna á sviðinu og gefa af sér. Reyndar fékk ég alltaf á tilfinninguna að fólk hugsaði með sér, jæja þarna kemur nemandinn/óreyndi söngvarinn, líklega kannski bara afþví að það var það sem ég var að hugsa sjálfur :) Viðbrögð fólks eftir tónleikana voru vægast sagt frábær og ég fékk góða dóma og var af mörgum sagður hafa skarað framúr á tónleikunum :) Ég myndi kannski ekki ganga svo langt að segja það, en ef einhver upplifði það þannig er ég afskaplega ánægður.

Nú þá tók við einn dagur í "hvíld", því á Sunnudeginum(í gær) fluttum við búslóðina til Görlitz á nýja heimilið okkar. Afskaplega erfiður dagur í gær en nú þegar búið er að bera allt þá er þetta allt annað og maður getur farið að anda rólegar :)
Bestu þakkir til allra sem komu og hjálpuðu til!! Það er virkilega ómetanlegt að þekkja svona gott og duglegt fólk. :)

Meira síðar,
Hér eru svo myndir frá tónleikunum. (sjónarhornið er kannski ekki það best en svona er það nú bara)




11.7.10

Müggelsee, Paul, hitinn og yfirvofandi stress...já og Mogginn

Síðustu daga hefur nánast verið hér óbærilegur hiti hér í Berlín, ég get auðvitað ekki leyft mér að kvarta. En í dag var ákveðið að skella sér í strandferð til Müggelsee, sem er einn af vinsælum strandsvæðum í Berlín. Þegar þangað var komið gengum við fyrst í gegnum svokallað FKK bereich, sem hljómar líklega eins og eitthvað úr seinni heimsstyrjöldinni :) En þýðir í raun Frei Körper Kultur Bereich, eða Frjálsra Líkama Menningar Svæði (ótrúlega léleg þýðing, en stuttlega kallast það nektarnýlenda á íslensku). Strandir hér skiptast yfirleitt í tvö svæði. Og hefði maður verið á þeim buxunum........eða ekki :) þá hefði maður get verið á nánast einka strönd í engum troðningi með Júlíu, þar sem nektarströndin var afar lítið notuð, í staðin var allt í klessu og troðningi á hinni ströndinni, þar sem við vorum. Sú stutta skemmti sér þó vel og öllum leið afar vel, í 35+ gráðunum sem hér voru í dag. Það er ekkert lát á þessum hita næstu daga, líklega eitthvað þrumuveður á þrijðudag en svo heldur þetta bara áfram. Allt í einu virðist 200 Evru loftkæling ekki svo dýr :)

Ég hef verið mikið upptekinn af Paul von Oberhausen, sem hefur verið að segja til um úrslitin á HM, og hingað til hefur hann verið með 7 af 7 rétt. Það er eitthvað að standa á sér núna, þar sem gull-leikur Hollendinga og Spánverja er í gangi. Paul hefði mátt segja okkur hversu leiðinlegur leikurinn yrði svo við þyrftum ekki að horfa á hann, en svona er lífið.

Stressið er að hefjast þar sem fyrsta æfing er á morgun, með stjórnandanum. Ég tel mig vel undirbúinn og því á þetta nú ekki að vera of mikið vesen. Þetta er í raun allt spurning um hvernig formi ég er í raddlega, hitt er bara einfaldlega í lagi!!!!

Auglýsingar fyrir Classic Open Air tónleikana eru bókstaflega allsstaðar, og þá meina ég allsstaðar, ég rakst eina slíka á göngu um daginn og lét bara taka mynd af mér með henni. Þó ekki sé beint minnst á mig á auglýsingunni, þar sem ég er ekki nógu stór fiskur ennþá, þá er samt gamana að sjá metnaðinn sem í þetta er lagður. Mér skilst að það séu bara ÖRFÁ sæti laus, sem þýðir að ég fæ að syngja fyrir um 7000 manns á föstudaginn kemur, sem er frábært.

Fyrir Mogga aðdáendur þá er viðtal við mig í mánudagsmogganum á morgun 12.7.2010

Birti hérna tvær myndir frá síðustu dögum.

Varð að taka mynd af mér við eitt af fjölmörgum skiltum til sýnis í Berlín.
Júlía að skemmta sér við Müggelsee

7.7.10

Að elta Daedalus við Hóla í Hjaltadal

Prinsessurnar eru mættar, og eins og því fylgir mikil gleði, fylgir auðvitað allskyns vesen, eins og til dæmis svefnleysi og andvaka tengd þeirri yngstu. Hún sefur orðið mjög illa aftur og ég er ekki alveg nógu hress með það. EN svona er það nú bara, og þetta verður ekki aftur tekið :) En það er hægt að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur, og það er afskaplega sterk tilfinning ákkúrat núna.

Við hjónakornin erum búin að vera afar upptekin í dag við að pakka niður og mála, þetta er eitthvað sem óhjákvæmilega fylgir flutningum, og við ákváðum að vera snemma í því að þessu sinni. Þetta gengur allt vel. Einu áhyggjurnar sem ég hef er að við komumst ekki með allt dótið í einni ferð, en það verður bara að koma í ljós, í versta falli þurfum við að leigja annan bíl og sækja restina.

Undirbúningur fyrir tónleika í næstu viku gengur vel og ég er að upplifa ákveðið öryggi, því ég kann þetta allt svo vel. En það má alltaf betur gera og ég er svo sannarlega að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að vera sem best undirbúinn, það er því ekki hægt að setja neitt út á þetta eins og er. Helsta vandamálið verður sjálfur tónleikadagurinn, verður maður nógu vel hvíldur?, verður maður nógu vel stemmdur?, verður maður heill heilsu?? Þetta leitar á mann daginn út og inn. En maður verður bara að vona, það er ekki margt annað í boði.

Undanfarið hef ég haft hjá mér forláta PS3 tölvu, í eigu Gunnars vinar míns, og við höfum farið á leiguna og spilað einn og einn leik. Sá síðasti sem við spiluðum heitir "Resistance 2" og þar er maður meðal annars að eltast við vonda geimverukallinn í Hjaltadal, það fanst mér afskaplega fyndið, þeir náðu nú nokkuð vel umhverfinu verð ég að segja. En ekki endilega raunsætt, þetta var bara fyndið.

Og fyrir fróðleiksþyrsta þá er vert að hafa augun opin með mogganum á mánudaginn eða miðvikudaginn kemur ;)

Ein í lokin af mæðgunum.


2.7.10

18 að detta í 19 og tónleikar.

Litla skottið er að byrja sinn 19 mánuð í lífinu og það er afskaplega gleðilegt, auk þess sem það minnir mann á það hversu hratt tíminn líður.

Tónleikarnir á þriðjudag gengu bara sæmilega, hefði mátt ganga betur, en var svosem ekkert allt of hræðilegt, það er bara leiðinlegt að vera búinn að eyða öllum þessum tíma og peningum í þetta og vera svo ekki betri en það sem raun ber vitni. Maður missir móðinn aðeins við þetta allt saman og það stóra er eftir!! Ég skil á þessari stundi ekki alveg hvernig ég ætla að fara að þessu, en verð að vona að eitthvað verði til þess að þetta skilist á sannfærandi hátt. En það er ekki hægt að segja að ég sé illa undirbúinn, ég hef verið að undirbúa þetta í mánuð núna og á ennþá um 2 vikur eftir. Þær verða notaðar í það m.a að vinna með píanóleikara annanhverndag, og það er bara eitthvað sem ég hreinlega verð að gera. Í gær birtist svo viðtal við mig í Sunnlenska, sem eykur svosem aðeins meira á stressið, því nú vita ansi margir hvað er að gerast. Úff!! Hættur að hugsa um þetta!

Í dag greiddi ég fyrstu leiguna af nýrri íbúð í Görlitz, og jafnframt þá síðustu af þessari ágætu íbúð sem ég sit nú í. Það er gleði og tregablandin tilfining sem fylgir þessu í bland við stressið sem er byrjað að byggjast upp.

Hitinn og birtan nær þó að gleðja mann eilítið, hér er alveg yfirgengilegur hiti búinn að vera, og manni er varla stætt á að vera utandyra til lengri tíma. Það er um 10 gráðum lægri hiti innandyra og því stundum gott að vera bara þar, en maður verður aðeins að fá smá sól af og til.

Hér að lokum sumarleg og skemmtileg mynd af ungfrúnni ennþá 18 mánaða að hoppa á trampólíni, alveg stórmerkilegt finnst mér, fyrir svona lítið eintak :)




29.6.10

NEI!, hitinn, ofnæmið og tónleikar

Ég frétti það að dóttir mín litla væri búinn að uppgötva "The Power of NO!", hún segir nei ef hún vill ekki eitthvað, það er að vanda leiðinlegt að vera ekki nálægt til upplifa þetta með eigin eyrum, en ég hef nú tilfinningunni að þetta verði orð sem maður fær að heyra of oft á næstu mánuðum :) Hún nýtur lífsins í sveitinni og það er bæði erfitt en skemmtilegt að heyra það, þar sem mér finnst ég vera að svipta hana ákveðnu frelsi með því að eltast við drauminn minn. Og ég skil að mörgu leiti afhverju fólk hættir því sem það elskar að gera til þess að eiga meiri tíma með börnunum sínum. Ég verð bara að vona að Júlía litla græði líka eitthvað á því að búa í öðru landi, þar sem hlutrnir eru ekki eins sjálfsagðir og á Íslandi.

Hér hefur verið vægast sagt steikjandi hiti síðustu daga, og það þykir mér nú ekki leiðinlegt, þó afar heitt sé og maður er ekki fyrr búinn að skipta um bol þegar hann er orðinn blautur aftur! Í dag á þó að vera met dagur í hita. Opinberar mælingar sýna 32°C, sem þýðir að þá nálgast hitinn 38-40°C hérna á veröndinni seinnipartinn í dag. Ég get þvímiður lítið notið þess með bjór eða annað gott áfengi í hönd þar sem ég er að syngja á tónleikum í kvöld. Ég var að koma af æfingu og þar gekk allt ágætlega. Ég er reyndar búinn að vera farast úr ofnæmi og vaknaði gersamlega stíflaður í morgun, ég trítlaði mér út í næsta apótek og keypti mér svolítið sem mig hefur alltaf langað í sem hjálp gegn ofnæmi, en það er svokallað "neti pot", þetta nota margir söngvara og fólk með ofnæmi, og ég verð að segja að eftir að hafa nota þetta einusinni, líður mér miklubetur, það er bara hreinleg eins og ég geti andað mun léttar. Ég mæli því með þessu fyrir alla sem þjást af kvefi, ofnæmi eða þurrki í nefholi.

Ég fæ að vanda sendar myndir frá Íslandi, þar sem sú littla er við völd og hér birti ég eina sem mér þótti skemmtileg :)



24.6.10

Einn á ný

Þá eru kona og dóttir farin til Íslands í tvær vikur á meðan ég varð hér eftir til að undirbúa tvenna tónleika. Það hefur bara gengið vel, og fyrir fyrri tónleikana sem eru á þriðjudaginn í næstu viku, er æfing á morgun. Þetta er nú svosem ekki mikið að syngja, en þetta þarf að æfa engu að síður.

Hér er tómlegt í kotinu en rólegt, og það er vissulega afar þægilegt í smá tíma, á meðan maður er að klára ýmsa smáhluti eins og að ganga frá tilfærslu beiðni til rafmagnsfyrirtækisins, segja upp internetinu, senda undirskirfaðan samning til Görlitz, prenta út og raða nótum og pakka niður ýmsu smálegu, svo mætti lengi telja. Það er stundum afskaplega gott að hugsa bara um sjálfan sig, þó ég sé nú þegar farinn að sakna litla kjánapriksins míns og mömmu hennar :)

Nú er ég búinn að setja inn helling af myndum frá Júnímánuði og tveimur myndböndum á myndasíðuna hennar Júlíu. Ég held ég hafi ekki látið fylgja neinn tengil á það síðast þegar við settum inn myndir, en Soffía gerði það alveg örugglega.

En ég bæti þá úr því núna, Hérna er fyrri hlutinn og hérna er seinni hlutinn.