7.7.10

Að elta Daedalus við Hóla í Hjaltadal

Prinsessurnar eru mættar, og eins og því fylgir mikil gleði, fylgir auðvitað allskyns vesen, eins og til dæmis svefnleysi og andvaka tengd þeirri yngstu. Hún sefur orðið mjög illa aftur og ég er ekki alveg nógu hress með það. EN svona er það nú bara, og þetta verður ekki aftur tekið :) En það er hægt að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur, og það er afskaplega sterk tilfinning ákkúrat núna.

Við hjónakornin erum búin að vera afar upptekin í dag við að pakka niður og mála, þetta er eitthvað sem óhjákvæmilega fylgir flutningum, og við ákváðum að vera snemma í því að þessu sinni. Þetta gengur allt vel. Einu áhyggjurnar sem ég hef er að við komumst ekki með allt dótið í einni ferð, en það verður bara að koma í ljós, í versta falli þurfum við að leigja annan bíl og sækja restina.

Undirbúningur fyrir tónleika í næstu viku gengur vel og ég er að upplifa ákveðið öryggi, því ég kann þetta allt svo vel. En það má alltaf betur gera og ég er svo sannarlega að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að vera sem best undirbúinn, það er því ekki hægt að setja neitt út á þetta eins og er. Helsta vandamálið verður sjálfur tónleikadagurinn, verður maður nógu vel hvíldur?, verður maður nógu vel stemmdur?, verður maður heill heilsu?? Þetta leitar á mann daginn út og inn. En maður verður bara að vona, það er ekki margt annað í boði.

Undanfarið hef ég haft hjá mér forláta PS3 tölvu, í eigu Gunnars vinar míns, og við höfum farið á leiguna og spilað einn og einn leik. Sá síðasti sem við spiluðum heitir "Resistance 2" og þar er maður meðal annars að eltast við vonda geimverukallinn í Hjaltadal, það fanst mér afskaplega fyndið, þeir náðu nú nokkuð vel umhverfinu verð ég að segja. En ekki endilega raunsætt, þetta var bara fyndið.

Og fyrir fróðleiksþyrsta þá er vert að hafa augun opin með mogganum á mánudaginn eða miðvikudaginn kemur ;)

Ein í lokin af mæðgunum.


2.7.10

18 að detta í 19 og tónleikar.

Litla skottið er að byrja sinn 19 mánuð í lífinu og það er afskaplega gleðilegt, auk þess sem það minnir mann á það hversu hratt tíminn líður.

Tónleikarnir á þriðjudag gengu bara sæmilega, hefði mátt ganga betur, en var svosem ekkert allt of hræðilegt, það er bara leiðinlegt að vera búinn að eyða öllum þessum tíma og peningum í þetta og vera svo ekki betri en það sem raun ber vitni. Maður missir móðinn aðeins við þetta allt saman og það stóra er eftir!! Ég skil á þessari stundi ekki alveg hvernig ég ætla að fara að þessu, en verð að vona að eitthvað verði til þess að þetta skilist á sannfærandi hátt. En það er ekki hægt að segja að ég sé illa undirbúinn, ég hef verið að undirbúa þetta í mánuð núna og á ennþá um 2 vikur eftir. Þær verða notaðar í það m.a að vinna með píanóleikara annanhverndag, og það er bara eitthvað sem ég hreinlega verð að gera. Í gær birtist svo viðtal við mig í Sunnlenska, sem eykur svosem aðeins meira á stressið, því nú vita ansi margir hvað er að gerast. Úff!! Hættur að hugsa um þetta!

Í dag greiddi ég fyrstu leiguna af nýrri íbúð í Görlitz, og jafnframt þá síðustu af þessari ágætu íbúð sem ég sit nú í. Það er gleði og tregablandin tilfining sem fylgir þessu í bland við stressið sem er byrjað að byggjast upp.

Hitinn og birtan nær þó að gleðja mann eilítið, hér er alveg yfirgengilegur hiti búinn að vera, og manni er varla stætt á að vera utandyra til lengri tíma. Það er um 10 gráðum lægri hiti innandyra og því stundum gott að vera bara þar, en maður verður aðeins að fá smá sól af og til.

Hér að lokum sumarleg og skemmtileg mynd af ungfrúnni ennþá 18 mánaða að hoppa á trampólíni, alveg stórmerkilegt finnst mér, fyrir svona lítið eintak :)




29.6.10

NEI!, hitinn, ofnæmið og tónleikar

Ég frétti það að dóttir mín litla væri búinn að uppgötva "The Power of NO!", hún segir nei ef hún vill ekki eitthvað, það er að vanda leiðinlegt að vera ekki nálægt til upplifa þetta með eigin eyrum, en ég hef nú tilfinningunni að þetta verði orð sem maður fær að heyra of oft á næstu mánuðum :) Hún nýtur lífsins í sveitinni og það er bæði erfitt en skemmtilegt að heyra það, þar sem mér finnst ég vera að svipta hana ákveðnu frelsi með því að eltast við drauminn minn. Og ég skil að mörgu leiti afhverju fólk hættir því sem það elskar að gera til þess að eiga meiri tíma með börnunum sínum. Ég verð bara að vona að Júlía litla græði líka eitthvað á því að búa í öðru landi, þar sem hlutrnir eru ekki eins sjálfsagðir og á Íslandi.

Hér hefur verið vægast sagt steikjandi hiti síðustu daga, og það þykir mér nú ekki leiðinlegt, þó afar heitt sé og maður er ekki fyrr búinn að skipta um bol þegar hann er orðinn blautur aftur! Í dag á þó að vera met dagur í hita. Opinberar mælingar sýna 32°C, sem þýðir að þá nálgast hitinn 38-40°C hérna á veröndinni seinnipartinn í dag. Ég get þvímiður lítið notið þess með bjór eða annað gott áfengi í hönd þar sem ég er að syngja á tónleikum í kvöld. Ég var að koma af æfingu og þar gekk allt ágætlega. Ég er reyndar búinn að vera farast úr ofnæmi og vaknaði gersamlega stíflaður í morgun, ég trítlaði mér út í næsta apótek og keypti mér svolítið sem mig hefur alltaf langað í sem hjálp gegn ofnæmi, en það er svokallað "neti pot", þetta nota margir söngvara og fólk með ofnæmi, og ég verð að segja að eftir að hafa nota þetta einusinni, líður mér miklubetur, það er bara hreinleg eins og ég geti andað mun léttar. Ég mæli því með þessu fyrir alla sem þjást af kvefi, ofnæmi eða þurrki í nefholi.

Ég fæ að vanda sendar myndir frá Íslandi, þar sem sú littla er við völd og hér birti ég eina sem mér þótti skemmtileg :)



24.6.10

Einn á ný

Þá eru kona og dóttir farin til Íslands í tvær vikur á meðan ég varð hér eftir til að undirbúa tvenna tónleika. Það hefur bara gengið vel, og fyrir fyrri tónleikana sem eru á þriðjudaginn í næstu viku, er æfing á morgun. Þetta er nú svosem ekki mikið að syngja, en þetta þarf að æfa engu að síður.

Hér er tómlegt í kotinu en rólegt, og það er vissulega afar þægilegt í smá tíma, á meðan maður er að klára ýmsa smáhluti eins og að ganga frá tilfærslu beiðni til rafmagnsfyrirtækisins, segja upp internetinu, senda undirskirfaðan samning til Görlitz, prenta út og raða nótum og pakka niður ýmsu smálegu, svo mætti lengi telja. Það er stundum afskaplega gott að hugsa bara um sjálfan sig, þó ég sé nú þegar farinn að sakna litla kjánapriksins míns og mömmu hennar :)

Nú er ég búinn að setja inn helling af myndum frá Júnímánuði og tveimur myndböndum á myndasíðuna hennar Júlíu. Ég held ég hafi ekki látið fylgja neinn tengil á það síðast þegar við settum inn myndir, en Soffía gerði það alveg örugglega.

En ég bæti þá úr því núna, Hérna er fyrri hlutinn og hérna er seinni hlutinn.




19.6.10

Hiti og leiðindi

Júlía litla er búin að vera nokkuð veik af kvefi og því fylgir auðvitað nefrennsli og vesen. Fyrir tveimur dögum þróaði hún svo með sér afar ljótan blautan hósta og í dag bættist hitinn við! Hún ber sig nú samt mjög vel þrátt fyrir einkennin.

Líklega má kenna foreldrunum um eitthvað af þessu, þar sem við höfum verið á stanslausum þeytingi með hana síðustu daga. En það er bara vonandi að hún verði að einhverju leiti búin að ná sér fyrir Íslandsferðina sem er í næstu viku.

Ég fékk tölvupóst í fyrradag þar sem mér var tjá að vegna veikinda þá þurfti að finna nýjan stjórnanda fyrir stórtónleikana í sumar. Og það var einmit sagt frá því að Kevin McCutcheon myndi taka að sér stjórnina. Sem er mjög gott þar sem ég þekki hann og hann stjórnaði einmitt þegar ég var að syngja í Rheinsberg, ég setti mig því í samband við hann og hann vildi endilega vinna með mér eitthvað fyrir og hjálpa mér að gera þetta allt frambærilegt. Ég fékk svo SMS frá honum í dag þar sem hann sagði mér að Lucia vill nota sinn eigin stjórnanda og hann verður því ekki með.....!!! Ég varð alveg brjálaður, var farinn að hlakka til að vinna með honum aftur, en svona er þetta bara, vona að þessi stjórnandi hennar sé jafn góður og Kevin.

Annars er hér allt gott, og í kvöld á að grilla íslenskar lambalundir í klettakálspestómarineringu með klettakálsspestó sósu og hvítlauks og rosmarin bökuðum kartöflum. Veðrið mætti vera betra en ég leyfi mér ekki að kvarta.

17.6.10

17.Júní 2010 - viðtal í Berliner Morgenpost

Læt ykkur eftir skilning og þýðingu, get græjað það sjálfur á næstu dögum, en fyrst kemur það svona. Það þarf ekki að taka það fram að ég er afar stolltur af þessu, þó ég eigi vissulega eftir að standa við þetta alltsaman :)

ATH þið þurfið að smella á myndina hér fyrir neðan til að opna þetta í lesanlegri upplausn


16.6.10

Bómull í dag

Það uppgötvaðist hérna undir kvöldið að við hjónakornin eigum í dag 2.ára brúðkaupsafmæli :) Ekki langur tími, en hefur liðið afskaplega hratt.

Ég er nýkominn heim frá Görlitz, og þó ég muni fara með tengdó þangað eftir 2 daga, þá mun ég ekki vinna við eitt eða neitt þar fyrr en 18.ágúst, en þá tekur fastráðning mín gildi. Það er fyrst og fremst gott að vera kominn heim. EN það er afar margt sem þarf að fara ráðast í. Ég er orðin nokkuð vel undirbúinn fyrir tónleika sumarsins, og það mjög gott að finna þá tilfinningu. Ég ef vissar áhyggjur af úthaldi meira en öllu öðru, þar sem ég er að syngja um 5 aríur, hver annari erfiðari, auk þess 3 dúetta sem eru líka ekki eitthvað sem maður hristir bara fram úr erminni. En þetta verður bara að fara eins og það fer, of seint að vera eitthvað að velta þessu fyrir sér núna, þó maður geri það alltaf.

Stefnan er tekin á heimsókn í sendiráð Íslands hér í Berlín á morgun, þar sem boðið hefur verið til veislu í tilefni þjóðhátíðardags. Tengdó kemur svo um kvöldið og við tekur þá smá dagskrá í kringum það :) Að því loknu verð ég hér eftir einn í kotinu næstu tvær vikurnar, og þær verða nýttar mjög vel.

Fleira var það nú ekki í bili, meira síðar.