24.6.10

Einn á ný

Þá eru kona og dóttir farin til Íslands í tvær vikur á meðan ég varð hér eftir til að undirbúa tvenna tónleika. Það hefur bara gengið vel, og fyrir fyrri tónleikana sem eru á þriðjudaginn í næstu viku, er æfing á morgun. Þetta er nú svosem ekki mikið að syngja, en þetta þarf að æfa engu að síður.

Hér er tómlegt í kotinu en rólegt, og það er vissulega afar þægilegt í smá tíma, á meðan maður er að klára ýmsa smáhluti eins og að ganga frá tilfærslu beiðni til rafmagnsfyrirtækisins, segja upp internetinu, senda undirskirfaðan samning til Görlitz, prenta út og raða nótum og pakka niður ýmsu smálegu, svo mætti lengi telja. Það er stundum afskaplega gott að hugsa bara um sjálfan sig, þó ég sé nú þegar farinn að sakna litla kjánapriksins míns og mömmu hennar :)

Nú er ég búinn að setja inn helling af myndum frá Júnímánuði og tveimur myndböndum á myndasíðuna hennar Júlíu. Ég held ég hafi ekki látið fylgja neinn tengil á það síðast þegar við settum inn myndir, en Soffía gerði það alveg örugglega.

En ég bæti þá úr því núna, Hérna er fyrri hlutinn og hérna er seinni hlutinn.




19.6.10

Hiti og leiðindi

Júlía litla er búin að vera nokkuð veik af kvefi og því fylgir auðvitað nefrennsli og vesen. Fyrir tveimur dögum þróaði hún svo með sér afar ljótan blautan hósta og í dag bættist hitinn við! Hún ber sig nú samt mjög vel þrátt fyrir einkennin.

Líklega má kenna foreldrunum um eitthvað af þessu, þar sem við höfum verið á stanslausum þeytingi með hana síðustu daga. En það er bara vonandi að hún verði að einhverju leiti búin að ná sér fyrir Íslandsferðina sem er í næstu viku.

Ég fékk tölvupóst í fyrradag þar sem mér var tjá að vegna veikinda þá þurfti að finna nýjan stjórnanda fyrir stórtónleikana í sumar. Og það var einmit sagt frá því að Kevin McCutcheon myndi taka að sér stjórnina. Sem er mjög gott þar sem ég þekki hann og hann stjórnaði einmitt þegar ég var að syngja í Rheinsberg, ég setti mig því í samband við hann og hann vildi endilega vinna með mér eitthvað fyrir og hjálpa mér að gera þetta allt frambærilegt. Ég fékk svo SMS frá honum í dag þar sem hann sagði mér að Lucia vill nota sinn eigin stjórnanda og hann verður því ekki með.....!!! Ég varð alveg brjálaður, var farinn að hlakka til að vinna með honum aftur, en svona er þetta bara, vona að þessi stjórnandi hennar sé jafn góður og Kevin.

Annars er hér allt gott, og í kvöld á að grilla íslenskar lambalundir í klettakálspestómarineringu með klettakálsspestó sósu og hvítlauks og rosmarin bökuðum kartöflum. Veðrið mætti vera betra en ég leyfi mér ekki að kvarta.

17.6.10

17.Júní 2010 - viðtal í Berliner Morgenpost

Læt ykkur eftir skilning og þýðingu, get græjað það sjálfur á næstu dögum, en fyrst kemur það svona. Það þarf ekki að taka það fram að ég er afar stolltur af þessu, þó ég eigi vissulega eftir að standa við þetta alltsaman :)

ATH þið þurfið að smella á myndina hér fyrir neðan til að opna þetta í lesanlegri upplausn


16.6.10

Bómull í dag

Það uppgötvaðist hérna undir kvöldið að við hjónakornin eigum í dag 2.ára brúðkaupsafmæli :) Ekki langur tími, en hefur liðið afskaplega hratt.

Ég er nýkominn heim frá Görlitz, og þó ég muni fara með tengdó þangað eftir 2 daga, þá mun ég ekki vinna við eitt eða neitt þar fyrr en 18.ágúst, en þá tekur fastráðning mín gildi. Það er fyrst og fremst gott að vera kominn heim. EN það er afar margt sem þarf að fara ráðast í. Ég er orðin nokkuð vel undirbúinn fyrir tónleika sumarsins, og það mjög gott að finna þá tilfinningu. Ég ef vissar áhyggjur af úthaldi meira en öllu öðru, þar sem ég er að syngja um 5 aríur, hver annari erfiðari, auk þess 3 dúetta sem eru líka ekki eitthvað sem maður hristir bara fram úr erminni. En þetta verður bara að fara eins og það fer, of seint að vera eitthvað að velta þessu fyrir sér núna, þó maður geri það alltaf.

Stefnan er tekin á heimsókn í sendiráð Íslands hér í Berlín á morgun, þar sem boðið hefur verið til veislu í tilefni þjóðhátíðardags. Tengdó kemur svo um kvöldið og við tekur þá smá dagskrá í kringum það :) Að því loknu verð ég hér eftir einn í kotinu næstu tvær vikurnar, og þær verða nýttar mjög vel.

Fleira var það nú ekki í bili, meira síðar.

14.6.10

Zapraszamy do Polska

Hér er komin smá pása á góða veðrið, en það er búið að vera nánasta óbærilegur hiti hérna síðustu daga :) Sem er í raun ekkert til að kvarta yfir, en maður finnur muninn á því að vera einhversstaðar sem túristi annarsvegar og svo íbúi hinsvegar. Núna skilur maður afhverju spánverjar eru yfirleitt hvítir en ekki mökkbrúnir eins og Íslendingarnir í utanlandsferðunum sínum :) Ef planið er ekki að liggja á sundlaugarbakkanum og sötra bjór og kokteila á milli þess sem maður kælirsig niður í sjónum eða sundlauginni, þá er eins gott að hafa góða loftkælingu og halda sig innandyra!

Æfingar hafa gengið mjög vel og er ég svo gott sem búinn að undirbúa tvö lítil hlutverk fyrir næsta vetur, sem er afskaplega góð tilfinning, þó ég vilji auðvitað vera að undirbúa stór hlutverk í staðin. En maður fær að njóta fjölskyldunnar betur með þessum hætti, og það er mikilvægt núna að geta verið með þeim, því næstu tvö ár gætu orðið erfið hvað það varðar. En ég nenni ekki að hugsa um það núna.

Soffía og Júlía eru nýfarnar aftur til Berlínar og ég þarf að vera hérna 2 daga í viðbót. Við skoðuðum dýragarðinn hérna í Görlitz, sundlaugina, og svo fórum við til Póllands, sem var ekki eins gaman fyrir mig eins og ég hafði vonað. Mér tókst nefnilega að skilja veskið mitt eftir í rútunni sem flutti okkur þangað. EN það blessaðist nú allt sem betur fer, eftir að ég hafði hlaupið í ofboði langar leiðir, aðeins til að komast að því að ég var að fara í öfuga átt!! Ég hljóp því langar leiðir aftur til baka :) Að stoppistöð rútunnar, og þar beið ég í um 45 mínútur þangað til rútan sem við tókum kom aftur. Það var til happs að bísltjórinn hafði fundið veskið mitt og geymt. Og auðvitað var það líka happ að ekki mikið af fólki er að ferðast með þessum rútum. Það voru því fagnaðar fundir þegar rútan kom inn á bílastæðið og blikkaði mig til að láta mig vita :) Ég sá því afarlítið af Pólandi í þessari ferð, en nóg til að vita að 1 Zloty er það sama og 25 cent c.a. Þetta gerir Póland aðeins ódýrara en þýskaland, vandamálið er bara það að þar talar engin þýsku eða ensku, þannig að maður er ekkert rosalega vel staddur :) Maður þarf bara að legga það á sig að læra smá hjá pólskumælandi kollegum :)

Nóg um það, ég er svo á leið heim til Berlínar á miðvikudag, en þar tekur við heimsókn tengdarmóðurminnar, sem verður án efa mjög ánægjuleg. Planið er að taka bíl og keyra aftur til Görlitz :) En það verður nú bara gaman. Ekki leiðinleg leið og veðurspáin er ágæt, þó ekki sama geðveikin og búni er að vera :)

Meira er vart hægt að troða í eitt blogg að sinni. Lýk þessu á mynd frá bjórbrugghúsi, sem gerir vægast sagt mjög góðan bjór, ólíkt því sem ég hef áður smakkað. Útsýnið frá veröndinni og næsta nágrenni er líka æðislegt. Þangað til næst.....


10.6.10

In the Görlitz

Jæja þá er bara áframhald á sumrinu, og við littla familíjan komin á framtíðar heimilið. Reyndar erum við hérna í örstuttu stoppi. Erum búin að flytja svona 1/10 af dótinu okkar :) Leigði sérstaklega stationbíl til verksins, og tók þann ódýrasta til að spara :) Það kom svo á daginn þegar ég ætlaði að sækja bílinn, að engin bíll var til í þeim flokki sem ég hafði pantað. Þau buðu mér svakalegan BMW limmó, sem var svakalega flottur. En sökum plássleysis þurfti ég að afþakka og ítreka fyrri beiðni. Það varð svo úr að bíll fannst á annari SIXT leigu við KuDamm. Ég þurfti þvímur að sætta mig við að fá dýrasta stationbíl sem völ var á, eða Mercedes E-Class T :) Sjálfskiptur, allt rafstillt, cruise control og auðvitað fínt pláss. Flutingar gengu vel og við komumst í litzið um 2 og hálfum tíma eftir brottför. Erum núna á ágætis gistiheimili í boðui óperunnar, en þetta er á 3 hæð í alt-bau, sem samsvarar um 6.hæð í nútímabyggðum húsum, og auðvitað er engin lyfta. Það er því afar mikilvægt að klikka ekki á því sem taka á með ef fara á útur húsi :)

Ég er byrjaður að æfa fyrir leðurblökuna, og eins og ég komst að í dag, þá á ég líka að vera á æfingum fyrir My Fair Lady, sem ég var afar ósáttur því því ég er ekki að fá borgað fyrir þær æfingar, ég hafði því samband við umboðsmanninn sem reddaði því strax að ég fengi borgað, sem er þá afar gott :) Á morgun er svo síðasta sýning af Miljónamærinni, og eftir það er húsið farið í sumarfrí, nema hvað að æfingar halda áfram fyrir næsta leikár, fram til 17.júní. Þá kemur tengdó í heimsókn og nóg að gerast þá vikuna. Svo fer hópurinn(mínus ég) heim til Íslands í 2 vikur og ég hef þá tækifæri til að leggja 120% í lærdóm, sem er alltaf gott.

Í dag og í gær hefur verið kæfandi hiti hérna í saxlandi, og ég held bara öllu þýskalandi!! Við vorum að flytja í gær og keyrðum bílinn inn í port sem tilheyrir okkar byggingu, þar sýndir hitamælirinn í bílnum 38.5°C og maður fann það nokkuð vel. Okkur líst bara vel á íbúðina, þó það líti út fyrir að upp muni koma skipulagsleg vandamál, þar sem þetta er ekki alveg klippt og skorið eins og við héldum :) En það á væntanlega eftir að rétta sig af eins og alltaf.

Fórum í dag í göngutúr, og heimsóttum meðal annars afar flottan dýragarð, sem er starfræktur hérna í Görlitz, og það verður að segjast eins og er að ég átti ekki von á því að þetta væri svona flott, og kostar svosem ekki mikið. Enduðum daginn á brugghúsi við ánna Neisse, sem virkar einnig sem landamæri Póllands og þýskalands. Nokkrar myndir voru teknar í ferðinni, sem verða birtar síðar en ég hendi hérna inn einni af okkur feðginunum í góðu stuði :)


5.6.10

Sumarið er loksins komið.......allavega í bili.

Síðan síðast, þá hefur það gerst að sumarið gekk í garð, og ekki seinna vænna. Í gær og í dag höfum við fengið að njóta hitastigs sem er vel yfir 20 gráðum, og í dag skreið mælirinn í rúm 31 hérna á svölunum. Það varð því úr að við gátum notað skítódýru útisundlaugina sem við .keyptum handa ungfrúnni fyrir einhverju síðan, þegar við héldum að sumarið væri að koma :)

Sú litla hefur verið merkilega pirruð undanfarna daga og er erfitt að festa hönd á hverju um kennir, en líklegast er að þetta sé einhver blanda af veikindum, persónulegum þroska og svefnleysi. Hverju sem um er að kenna, þá væri afar ljúft að þessu færi að ljúka, þar sem þetta er afar þreytandi. Orðaforði og málnotkunarhæfileikar gera æ meira vart við sig og það er afar gaman að verða vitni að því. Það eru samt einhverjir hljóðmyndurþættir sem eftir eiga að smella í gang, en ég á nú von á því að svoleiðis sé það nú bara almennt.

Ég er á leið til Görlitz enn eina ferðina, bæði til að sýna síðustu sýningu af "Der besuch der alten Dame" og svo til að taka þátt í 6 daga æfingaferly fyrir Leðurblökuna, sem ég mun taka þátt í næsta árið þarna. Maður fær nánast ekkert borgað fyrir þetta og það er eiginlega sorglegt að láta sig hafa það, en sem áður þá verður maður að líta á það að hver einasta evra í vasann er þvímiður nauðsynlega eins og sakir standa.

Hér í hitanum hefur greinilega verið ákveðið að skrúfa fyrir heita vatnið, því við höfum ekki fengið neitt heitt vatn hérna inn í 2 daga!! Þetta var líka alltaf að gerast síðasta sumar en pirraði kannski ekki svo mikið. Maður hefur því brugðið á það ráð að fara ekki í sturtu og til að vaska upp hefur maður einfaldlega bara soðið vatn í potti og helt í vaskinn :) Maður kann að bjarga sér:)

Ég kveð ykkur að sinni með myndum frá sumrinu hérna á svölunum :)