Í dag hófst mikið aðhald í fjármálum, þar sem allir sjóðir eru svo gott sem búnir!! Þetta er afar óþægileg tilfinning, því peningarnir eru til, bara ekki ákkúrat núna :) Það hefur því verið sett upp stíft plan í neyslu, og það byrjar þannig að við höfum skammtað okkur 100 Evrur á viku í mat handa fjölskyldunni, það ætti nú að ganga ágætlega fyrir sig. En svo hefur verið skammtað 50 Evrum á mann til að endast út mánuðinn. Fyrir það má versla sér áfengi, kebab, föt eða hvað sem hugurinn kann að girnast. Verði svo afgangur af þessu veltur hann í sparnað :) Það er afar leiðinlegt að hugsa um þetta, en nú er bara svo komið að þetta verður að gerast. Við eigum hérna tvo erfiða mánuði fyrir höndum, en aðallega eru það mánaðrmótin Júní-Júlí, en þá þurfum við að borga leigu fyrir tvær íbúðir auk hálfs tryggingargjalds sem er um 1700 Evru, en launin verða um 600!! Þannig að það eru skrítnir mánuðir framundan. Júlí-Ágúst gæti svo hugsanlega reddast :) En nóg af svona leiðindamálum og að öðrum.
Maður finnur ekki mikið fyrir úrslitum Júróvisjón hérna í þýskalandi, en maður þó hefur fengið að heyra frá nokkrum kollegum að þeir hafi gefið Íslandi sitt atkvæði. Skiptir mig svosem engu máli en alltaf gaman að heyra.
Hér er ískallt ennþá en það gæti farið að hlýna um komandi helgi. Þetta er, eins og líklega hefur áður komið fram, alveg ömurlegt!!
Síðustu helgi var ég í Görlitz því þar voru tvær sýningar, það gekk alltsaman bara ágætlega. Það hefur ekki farið framhjá lesendum þessa bloggs að ég skarta þar afar flottri "grímu", en nú er svo komið að húðin á mér hefur sagt nei við notkun svo áreitandi efna. En skallahettan er límd á þannig að byrjað er að hreinsa húðina með spritti, svo er sett lím á húðina til að halda grímunni. Éf þjáist því núna af ljótum rauðum blettum og miklum þurrki á húðinni, en er held ég, loksins búinn að fá rétta kremið við þessu, leikhúsið borgar það fyrir mig, og það er bara lítið mál, sem betur fer. En þetta er hræðilegt, því þetta tekur alveg um viku að hverfa og er verulega óþægilegt. Ég er svo bara á fullu við að undirbúa tvenna tónleika í sumar, sem hafa gífurlegt vægi fyrir mig sem söngvara, þó þeirborgi vissulega lítið. En maður er alltaf í þessum sporum sem byrjandi, að "láta sig bara hafa það".
Hér hefur einnig verið gestkvæmt síðustu vikuna, fyrst fengum við Systu frá Úthlíð í heimsókn sem stoppaði þó stutt, og þvínæst þær mæðgur Álfrúnu og Dagnýu frænkur Soffíu. Álfrún er á 3 mánuðum yngri en Júlía og náðu þær afar vel saman, og merkilega skemmtilegt að sjá þær leika sér.
Í lokin er svo ein létt "gangsta" mynd af ungfrúnni.