28.4.10

Photoshoot og gott veður

Staddur í Görlitz að vanda og tek þar þátt í æfingum sem hafa bara gengið nokkuð vel. Í dag var skipulagður ljósmyndadagur þar sem starfsfólk óperuhússins þarf að mæta í myndatöku fyrir næsta ár. Við fórum til Zittau til þess gjörnings og var bara nokkuð gaman, við fáum svo að sjá og vonandi samþykkja myndirnar á næsta mánudag held ég. Það verður gaman að sjá hvað kom útúr því.

Í gær á æfingu varð ég allt í einu nokkuð veikur, veit ekki hvað gerðist en það þyrmdi yfir mig með miklum höfuðverk og hita! Eftir æfinguna leitaði ég að apóteki, en þau voru auðvitað öll lokuð því klukkan var jú 9 um kvöld. Ég fór samt að leita að því hvar næsta "neyðarapótek" væri. Og viti menn það var langt langt í burtu, en ég var svo heppinn að ég stóð fyrir utan apótek og konan sem var að koma þar út spurði hvort hún gæti eitthvað aðstoðað mig og ég sagði að mig vantaði bara verkjatöflur. Hún bara hljóp inn og náði í fyrir mig og ég borgaði med det samme. Ótrúleg manngæska þar á ferð, hún bjargaði mér alveg. Ég vaknaði svo stálslegin, eða þar um bil í morgun :)

Ég tók nokkrar myndir á símann þar sem myndatakan fór fram, ekki annað hægt að segja en að hér sé fallegt um að litast.



23.4.10

Sumarið er að detta inn!! Gleðilegt sumar :)

Í dag er búin að vera létt sumar stemmning hérna í Berlín, og hitinn að ná 15 stigum. Við erum því búin að draga fram "garðhúsgögnin" og koma þeim fyrir á sínum stað. Ég nýt þess verulega núna að vera heima hjá mér, þar sem hérna er afar gott að vera þegar er fallegt veður. Síðustu daga hef ég haft mikið fyrir því að elda, þar sem fátt er betra en góður matur. Þetta hefur reyndar allt verið svona budget matur, en ótrúlega gott þrátt fyrir það. Í fyrradag var semsagt spergill með prosciutto skinku, brauðteningum og bernais sósu, með því voru svo heimalagaðar franskar. Í gær var svo spínat og ricotta fyllt tortellini í rjómalagaðri hvítvíns-spínatsósu. Og í tilefni þess að ég þarf ekki að mæta á æfingu þessa helgina, þá verður grillað hunangs-dijonlegið svínafillet, með ofnbökuðu grænmeti og graslaukskartöflum.

Ef ég gefst upp á söngnum þá hugsa ég að ég var bara að læra til kokks því mér þykir svo rosalega gaman að elda, og sérstaklega ef það er eitthvað svona sem maður getur gert tilraunir með :)

Við erum búin að vera skoða barnastóla fyrir hjól undanfarna daga því gaman væri að fara geta notað hjólin eitthvað með þeirri litlu. Þeir eru þvímiður flestir í kringum 100 Evrur, og því ekki alveg nógu góður kostur í núverandi stöðu. Erum reyndar að skoða svona ódýrari týpur líka, en maður vill ekki þurfa að beygja sig undir slíkt :) Umhverfi Görlitz býður upp á flottar hjólaleiðir, þá sérstaklega meðfram landamærunum/ánni Neisse til Tékklands, þar eiga að vera ansi margir kastalar á leiðinni :) Sjáum síðar hvort það sé rétt :)

Gleðin er við völd, því sumarið er að koma, hérna stendur mælirinn í 16 stigum og helgarspáin er upp á um 22 °C




21.4.10

Örskotsstund

Þá er ég kominn heim til Berlínar í stutta hvíld, ekki það að ég sé að erfiða eitthvað í Görlitz, en það er ótrúlega gott að vera heima hjá sér. Ég bý semsagt á Gistiheimili í gamlabænum í Görlitz á meðan á æfingum stendur. Ég verð að segja að ég er afskaplega þreyttur á svona gamlabæjar stemmningu, þó yfir henni geti nú alveg verið viss sjarmi. Ég er bara ekki kaffihúsatýpan, nema ég þurfi að komast á internetið :) Íbúðarleit hefur staðið yfir síðustu vikurnar og það má svosem alveg segja að úrvalið af íbúðum er nokkuð gott í Görlitz. Staðurinn skiptist semsagt í Gamlabæinn, Innri bæinn og svo Suðurbæinn, sem er svona kjarninn í bænum, svo raðast utan um það svona littlir kjarnar sem bera ýmis nöfn. Við fundum svakalega fína íbúð í suðurbænum, sem er afskaplega falleg með öllu glænýju, ásamt uppþvottavél, og er svona ákkúrat á grensunni hvað leiguverð varðar. Við erum núna bara að bíða eftir því að skrifa undir leigusamning, og þá getum við flutt inn 1.Júlí ef okkur sýnist svo, en líklega verður það eitthvað seinna samt. Neikvæðu punktarnir við íbúðina eru þeir að svalirnar eru afar litlar og snúa út að umferðargötu. Þetta er held ég fjölfarin gata, en það á eftir að koma í ljós hversu mikið ónæði verður af því. Teikningar gera ráð fyrir að bæði svefnherbergin snúi út að götu en stofan snýr inn að afskaplega rólegu garðsvæði með littlum leikvelli. Í 6-7 mín fjarlægð er svo sundlaug, dýragarður og verslun. Leikskóli er rétt handan við hornið 1-2 mín. Og svo stoppa almennigssamgöngur beint fyrir utan. Þetta gæti því aðeins verið betra ef svalirnar væru stærri! En svona er þetta bara, það er fínt að þetta sé frá. Nú á bara eftir að flytja.

Ég var kominn heim um 2 í nótt, vegna þess að lestarnar ganga svo hálfvitalega frá Görlitz. Það var óhugnanlega kalt í nótt, um 0°C, og svona haust veður, alveg ótrúlega óþolandi. Svo var hérna hörku haglél í dag en núna skín þó allavega sólin, þó kalt sé.

Í morgun var svo farið með ungfrúnna í tvær bólusetningar, Júlía vissi nokkurnvegin hvað var að fara gerast því hún varð mjög hrædd þegar læknirinn kom, og svo var bara öskrað, þetta er líklega afar vont. Núna er hún bara að hvíla sig og er annsi dösuð í útliti og skapi.

Ég á von á því að þurfa að hendast til baka annaðkvöld, en næ vonandi að njóta þess aðeins hérna með familíunni þangað til. Í kvöld verður spargel í prosciutto ásamt nýjum(eins og hægt er) kartöflum. Þetta er alltaf ótrúlega gott.

Þangaðtil næst..........

18.4.10

að leiðarlokum..............???

Þá er ég staddur í Görlitz, fallegri og lítilli borg austast í þýskalandi. Æfingar hafa gengið vel síðust daga, og það er erfitt að vera fjarri fallegu fjölskyldunni minni. En svona er bransinn! Maður veit ekki neitt og kann ekki neitt nema það sem maður hefur ákkúrat núna! Það er kannski fullt en manni finnst það alltaf og lítið, sama hvað er átt við, maður vill alltaf gera betur, og oft betur en maður veit innst inni að maður getur, það er ekki gaman, en einhverra hluta vegna reynir maður alltaf áfram, er það það sem gerir okkur mennsk? eða er það bara almennt leið fólks til að halda lífi? Ég vil ekki drepa neinn úr leiðindum, eða leiða fólk til þess að halda að ég sé kominn að leiðarlokum í lífinu, en þetta er eitthvað sem ég velti fyrir sér oft og iðulega á þessum tímapunkti í lífinu. Er þetta það sem ég vil? ef ekki, hvað er það þá sem ég vil? Margir segja manni að vera ekki að hugsa of mikið um þessa hluti, en hvernig er annað hægt?

Nóg um það, ég hef eytt þessum sunnudegi í að röllta um Görlitz og skoða fegurð borgarinnar sem ég er að flytja til í Ágúst. Þetta er fallegur bær, og næstu tvö árin er ég til í að búa hérna, en hvað gerist svo? Ég er kannski að hugsa hlutina of langt fram í tímann, eins og venjulega, en svona er það bara. Fór á skriðdýrasýningu hérna í dag, ekki alveg 8 Evru virði en ég gerði þó eitthvað :) Í gær hentist ég í sundlaug staðarins, og hún er afa flott, og ég held að Júlía litla muni njóta þess í botn. Við erum líklega komin með afar fallega íbúð hérna í Görlitz, en auðvitað ekki fullkomna eins og óskað var eftir :) En afskaplega fallega og eflaust dýra miðað við nettó laun, en við ættum að ráða við það. Við ráðum þá líklega ekki við að vera á bíl eins og planið var, en þurfum við bíl!!!??

í óperunni gengur vel, og ég er að standa mig vel í því litla hlutverki sem ég hef fengið úthlutað, skrítið að upplifa það að ég sé að gera of lítið!!! Mér hefur alltaf fundist ég vera að gera of mikið, en nú er það annað :) Sem er kannski gott mál, því ég hef þá tíma fyrir fólkið sem er mikilvægt í mínu lífi.

Ég rakst um daginn á lag á youtube sem hefur virkileg a setið með mér síðustu daga, og ég get engan veginn losnað við það úr hausnum á mér. Lagið heitir "In the end" og er eftir ástralskan lagahöfund og söngvara sem heitir Scott Matthew, textinn er merkilegur, því hann talar eins og um dauðann sé að ræða, en mér finnst hann eiga svolítið við mínar tilfinningar sem söngvari/tenór, þetta er afskaplega mikið það sem fer í gegnum hugann áður en ég fer á svið. Aðeins of mikil heimsspeki segja einhverjir, en þetta er svolítð í átt við sannleikann held ég :) Þetta er ástæðan fyrir því að þetta er svona erfitt. Ef þið kíkið á þetta ekki pæla of mikið í myndbandinu, því það er skrítið :) En textinn er fallegur, sama hvernig á það er litið. Kiri Te Kanawa sagði mér þó á sínum tíma svolítið sem mér finnst hljóma satt þó þessi texti segi meira en mörg orð um mig. Hún sagði að "fólk er komið til að heyra þig syngja vel og takast vel upp", "það borgar engin pening til að heyra þig mistakast", þetta er alveg rétt og það gerir mistökin, í raun, þeim mun verri, því þá ertu að bregðast þeim sem koma að hlusta. Ég mun þó alltaf reyna að gera mitt besta og það er það eina sem ég get gert!

Hér eru svo léttar myndir frá Görlitz/Zgorzelec í sólinni :)




12.4.10

Sumarið lætur á sér kræla

Þá er maður nú alveg að vera kominn með alveg nóg af skítaveðri hérna síðustu 7 mánuði eða svo. Ég var einmitt að skoða myndir frá því á páskum í fyrra sem voru einmitt um 11. apríl, og þá sat ég út í léttri skyrtu og stuttbuxum að hringja heim til Íslands með Júlíu. Núna fer maður ekki út nema í þykkum jakka. Hérna eru þó að blómstra Kirsuberjatrén sem eru alltaf jafnflott, það er svona ágætis vorboði.

Hér er svosem ekki margt að gerast nema hvað ég fékk SMS frá óperunni í Stuttgart þar sem þeir voru að spyrja hvort ég hefði áhuga á að koma í prufu hjá þeim, sem ég vil auðvitað reyna, hér eru reyndar loksins allir sjóðir tómir og ég hef þurft að fá peninga að láni til að halda það út sumarið. Ég er í einhverri lægð núna þar sem ég var að frétta hvað ég fengi í nettólaun í óperunni í Görlitz, það er nokkuð lægra en ég hélt. Og því verða líklega nokkuð strembin næstu tvö ár. En svona er það nú bara. Hvað getur maður svosem lengi sagt að þetta sé bara næsta skref?? En fram til þessa hefur mér líkað vel við fólkið í Görlitz og bærinn virðist vera fínn, þó rólegur sé. Maður hefur kannski bara gott af því að komast á stað þar sem maður getur ekki farið í bíó og ekki keypt sér Sushi!! Maður kannski spara þá, en líklega finnur maður sér þá bara eitthvað annað til að eyða peningum í, eins og tildæmis að fara í ræktina og í rosalega flottu glænýju sundhöllina sem er þarna á staðnum. En maður verður víst að reyna að trúa því að þetta gangi allt upp á endanum eins og venjulega.

Við erum að sjálfsögðu líka búin að fylgjast með "skýrslunni", og verð ég að segja að þar kemur ekkert nýtt fram, staðfestir aðeins það sem allir vissu. Ótrúlega leiðinlegt og þurrt efni sem engin getur gert neitt við sama þó við búum í lýðræðisþjóðfélagi, þá held ég að það hugtak sé afskaplega merkingarlaust í svona litlu þjóðfélagi eins og Íslandi, þar sem allt er orðið rotið í gegn, og mjög fáir hafa það virkilega slæmt. Það verður engin bylting þegar fólk hefur efni á að lifa.

10.4.10

Fram og til baka en ekki kemur sumarið!

Við vorum að koma aftur til Berlínar eftir 5 daga dvöl í Görlitz. Planið var að fara skoða íbúðir og það gerðum við, þetta var nú öllu auðveldari prócess en þegar við vorum að standa í þessu hérna í Berlín fyrir rúmum 2 árum. Núna kann maður reyndar aðeins meira í þýskunni og því veit maður hvað maður að biðja um og þorir mun frekar að hringja. Margt var skoðað og til að byrja með skoðuðum við aðeins í miðbænum og gamla bænum, en við komumst fljótt að því að við erum ekkert 101 lið sem getur búið í svona þröngu götu samfélagi, með enga náttúru að sjá útum gluggan. Við fórum því í svona rúnt með almenningssamgöngum bæjarins og komumst fljótt að því að það er nánast sama hvar við búum, því það er hægt að komast nánast allt þarna fótgangandi eða hljólandi og það á stuttum tíma. Nú eða nýta almenningssamgöngurnar sem er ekki flókið mál. Á endanum vorum við farin að skoða íbúðir í úthverfum borgarinnar, þar sem ekki er langt í grænar grundir og fallega náttúru. Þar skoðuðum við fullt af íbúðum en sem áður heyrir til algerra undantekninga að íbúð innihaldi eldhúsinnréttingu. Í gær fundum við svo eina sem við ákváðum að skella okkur á, meira um það síðar, því eins og litli bróðir vil ég ekki jinxa neitt. Á mánudag/þriðjudag, vitum við hvort við séum samþykkt sem leigjendur, og þá kannski hendir maður inn einhverju meira.

Í Görlitz var skítakuldi, þó kom reyndar einn góður dagur, en skítakuldi engu að síður. Ungfrúin var vissulega dugleg að hendast svona með foreldrum sínum um allan bæ, og það tók oft á. Hún er orðin ansi ákveðin/frek og það tekur virkilega á taugarnar að hafa hana með sér, þ.e ef hún hefur ekki neitt að gera. Bærinn venst svosem ágætlega, og býr yfir ákveðnum sjarma, þegar maður veit hvert maður á að fara og hvað á að skoða :)

Æfingar hafa gengið mjög vel, og ég hef fengið mikið hrós fyrir sérstaklega skýran og fallegan þýskuframburð í söng :) Auk þess fæ ég afar litla tilsögn í leikrænum tilþrifum :) Sem þýðir að ég sé að gera allt rétt. Hingað til hefur því gengið nokkuð vel.

Ljúkum þessu á myndum :)
Júlía litla að leik

Óperuhúsið í Görlitz, vinnustaðurinn :)

Görlitz, Péturskirkjan (vinstri) og svo Pólland (hægri)



4.4.10

Gleðilega Páska

Hérna er ein Páskamynd af frændsystkinunum Júlíu og Gabríel :)

Að auki eru komnar inn nokkrar myndir frá Páskaferð Middelfartsfjölskyldunnar til Berlína, hérna.